Vikan


Vikan - 18.05.1967, Blaðsíða 8

Vikan - 18.05.1967, Blaðsíða 8
-mesta GEYM-NÝJUNG ársins compact KÆLISKAPUR 2501. með áberandi bezta geymslurýmið — með tilliti til utanmáls, aðeins 60x60x118 cm. Jafn nýtízku- legur og línur tízkuteiknarans. 3 hillur, sem hægt er að draga út, 22 lítra frysti- hólf, 2 grænmetisskúffur, 4 hillur í hurðinni, þá neðstu má víkka út eftir flöskustærð. Segullæsing. Er á hjólum. KPS 250 lítra compact kæliskápurinn ... byggður eftir kröfum tímans ... NÝTÍZKULEGASTI SKAPURINN Á MARKAÐNUM Aðalumboð: Einar Farestveit & Co. hf. Vesturgötu 2 ÚTSÖLUSTAÐIR: Baldur Jónsson sf., Hverfisgötu 37. Verzlunin Álfhóll, Kópavogi. Stapafell, Keflavík. Har. Eiríksson, Vest- mannaeyjum. Kaupfélagið Höfn, Selfossi. Verzl. Sig. Pólmason- ar, Hvammstanga. Ódýrustu Tauþurrkararnir ó markaðnum. Verð pr. stk. 10.400,00. Hagstæðir greiðsluskilmólar. v* ÖOInstorj? - Sfml 10322 j EFTIR EYRANU GITTE HEFUR í MÖRG HORN AÐ LÍTA Þegar Gitte Hænning kom fyrsta sinni hingað til lands, var hún ekki hærri í loftinu en svo, að hún þurfti að standa uppi á stól til þess að ná til hljóðnem- ans. Þið, sem nú eruð 16 ára, munið kannski ekki eftir þessu, því að þið hafið þá verið á fimmta árinu eða þar um bil. Gitta litla kom fram á skemmtunum í Austurbæjarbióí og söng m.a. „Giftes med far- mand“, ásamt föður sínum, Otto Hænning, sem lék undir á gítar. Nú er Gitta orðin 21 árs. Og enn syngur hún af hjartans lyst — og leikur í kvikmyndum. Htut- verk hennar í Rauðu skikkjunni var síður en svo frumraun henn- ar fyrir framan myndavélarnar. Hún hafði teikið í 10 kvikmynd- um áður, en þær kvikmyndir voru ekki á þessari bylgjulengd- inni — það voru téttar dans- og söngvamyndir. Flestir munu á einu máli um, að það hafi verið bjarnargreiði vilð stúlkuna að fela henni hlutverk Signýjar í Rauðu skikkjunni. Gitta nýtur mikilla vinsælda í Þýzkalandi ekki síður en í heima- landi sínu og skandinavísku tönd- unum yfirleitt. í Þýzkalandi hef- ur hún sungið inn á fjölmargar hljómplötur og hafa sumar þeirra komizt í efstu sæti vinsældalist- anna. Hún var aðeins 13 ára, þegar fyrsta platan hennar kom á markaðinn í Þýzkalandi og 14 ára, þegar hún kom fram í sjón- varpi þar i landi, en um það leyti var hún byrjuð að leika í dönskum kvikmyndum. Fyrstu kvikmyndirnar hétu „Ullabella“ og „Han, hun, Dirch og Dario“. En vel að merkja. Hún var aðeins 9 ára, þegar hún söng inn á fyrstu hljómplötuna. Fyrst í stað var hún aldeilis ekki á því, að fara að syngja inn á plötu. Hún var sannfærð um, að krakk- arnir í skólanum mundu bara stríða sér með þvi. En pabbi hennar vat klókur. Hann leiddi henni fyrir sjónir, að kannski ANDRES INDRIDASON Gitte vr.r aðeins níu ára, þegar hún byrjaði að syngja með föður sínum. Hún stóð uppi á stól, þegar hún skemmti í Austurbæjarbíói á sínum tíma. 8 VIKAN “■ tbl'

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.