Vikan


Vikan - 18.05.1967, Page 27

Vikan - 18.05.1967, Page 27
□ □ MYNDIR: KRISTJÁN MAGNÚSSON. að er oft sagt, að listamenn eigi erfitt með að koma sér saman og rífist eins og hundar og kettir hvenær sem þeir hittist. Þessu var sannar- lega ekki til að dreifa á kynn- I ingarkvöldi sem Bandalag ís- | lenzkra listamanna hélt í marz- mánuði síðastliðnum. Þar voru saman komnir listamenn af öllum stærðum og gerðum: rit- höfundar, leikarar, listmálarar, söngvarar, arkitektar og fleiri. Og þeir undu glaðir eina kvöld- stund í Þjóðleikhúskjallaranum við mat og drykk og skemmtu sér eins og bezt verður á kosið. Kynningarkvöld af þessu tagi eru nýbreytni í starfsemi Banda- lags íslenzkra listamanna og ætlunin er að halda þau í fram- tíðinni öðru hverju til þess að auka kynni og vinsamleg sam- skipti milli listamanna. Ljós- myndari Vikunnar tók nokkrar svipmyndir á skemmtuninni og á þessari opnu birtum við nokkrar þeirra. <5 Jón Leifs, tónskáld og gegnt honuxn Þorbjörg kona hans. Með þeim eru Sif Sigurðardóttir og Ólöf Magnúsdóttir. Ævar R. Kvaran, leikari, Agnar Þórð- arson, rithöfundur og Jóliannes Jóhann- esson, listmálari, ræðast við á barnum. O Listmálararnir Kristján Davíðsson og Steinþór Sigurðs- son. Skúli Halldórsson, tónskáld formaður skemmtinefndar, Guðmundur Guð- jónsson, söngvari og Magnús Skúlason, sonur Skúla. Stein- unn Magnúsdóttir, kona Skúla, Kristín Bjarnadóttir, kona Guðmundar og Sigurveig Hjaltested, söngkona. Dansinn dunar: Á myndinni sjást; Kristinn Reyr, rit- höfundur, Sigurður A. Magnússon, rit- höfundur og I»or- valdur Þorvaldsson og Herdís Þorvalds- dóttir. O

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.