Vikan


Vikan - 18.05.1967, Side 45

Vikan - 18.05.1967, Side 45
halda sig frá Troy, en Sampson líkaði vel við hann. - Hefurðu hitt Troy? — Sampson kynnti mig fyrir honum í Las Vegas fyrir nokkr- um mánuðum. Við fórum þrír saman út að skemmta okkur og fólkið virtist þekkja hann, hvar sem hann fór. Allir spilaverðirnir þekktu hann, ef að það eru með- mæli. — Það eru ekki meðmæli. En hann átti sitt eigið spilavíti í Las Vegas einu sinni. Hann hefur gert ýmislegt. Ég held ekki, að barnsrán væri fyrir neðan hans virðingu. Hvernig stendur á því að Troy var með Sampson? — Ég fékk á tilfinninguna, að hann ynni fyrir Sampson, en ég er ekki viss. Hann er furðufugl. Hann horfði á mig og Sampson spila, en vildi ekki taka þátt í því sjálfur. Ég tapaði þúsund dollurum þetta kvöld, Sampson vann fjögur þúsund. Þangað leit- ar auðurinn, sem hann er fyrir. Hann brosti gleðilaust. - Kannski Troy hafi verið að reyna að koma vel fyrir, sagði ég. - Kannski. En þessi bastarður fór í taugarnar á mér. Heldurðu, að hann sé flæktur í þetta? — Ég er að reyna að komast að því, sagði ég. Þarf Sampson á peningum að halda, Bert? — Andskotinn, nei! Hann er milljóneri. — Hversvegna ætti hann þá að standa í braski með skúrk eins og Troy. —• Hann þarf að drepa timann. Arðurinn veltur inn frá Texas og Oklahoma, og honum leiðist. Sampson er fæddur peningaskap- ari á sama hátt og ég er fæddur peningatapari. Hann er ekki ham- ingjusamur, nema hann græði: Ég er ekki hamingjusamur, nema ég sé að tapa. Hann snöggþagnaði, þegar Miranda kom inn í stofuna. — Tilbúin? spurði hún. — Ekki hafa áhyggjur af mér, Bert. Hún strauk honum létt um aðra öxlina. Ljósbrún kápan opn- aðist að framan og hnellin, peysu- klædd brjóst hennar, ydduð eins og spjót, voru hálf óþolinmótt loforð og hálfstígandi ógnun. Hún hafði greitt úr hárinu og burstað það aftur fyrir eyrun. Þegar hún leit kankvíslega á hann var það eins og ögrun. Hann kyssti hana létt og blíð- lega á kinnina. Ég vorkenndi honum ennþá. Hann var sterkur og vel gefinn, en leit út fyrir að vera nákvæmlega jafn gamall og hann var, þarna sem hann stóð hjá henni í bláteinóttum jakka- fötunum. Hann var of þreyttur og of gamall til að temja hryssu eins og Miröndu. 15. Vegurinn upp á skarðið fikraði sig uppeftir brekkunum, gegn um grárykugan kjarragróður og rauða, úthöggna kletta. Með því að standa á bensíngjöfnni hélt ég hraðanum á nítíu. Vegurinn mjókkaði og varð krókóttari, eft- ir því sem við komum hærra. Ég sá í svip brattar brekkur, stráðar stórum steinum, víð gljúfur, klædd með fjallaeikum og síma- línurnar, sem strengdar voru milli gljúfraveggjanna. Rétt í svip greindi ég sjóinn eins og bláan vegg milli tveggja fjalla- tinda, svo beygði vegurinn inn í landið og ekkert varð nema fjöll- in umhverfis, villt, grá og köld, því nú komum við uppundir skýin. Framhald í næsta blaði. HVAR E R ÖRKIN HANS NOA? Það er alltaf sami lcikurinn f henni Ynd- isfríð okkar. Hún hcfur falið örkina hans Nóa cinhvers staðar í blaðinu or hcitir RÓðum verðlaunum handa þeim, sem getur fundið örkina. Verðlaunin eru stór',kon- íektkassi, fullur af bezta konfekti, oe framleiðandinn er auðvitað Sælgætisserð- in Nói. Nafn Heimill Síðast er dreglð var hlaut vcrðlaunin: Hafdís ósk Sigurðardóttir, Vixinjaganna má vitja 1 skrifstofu Skipholti 44, Reykjavík. viinmnat. 20. HDSMCBUR rNú eru góð kaup í boði" Uppþvottalögurinn ,,3 hands LIGHTNING" er í stórri, en ókaflega handhægri plastflösku, sem inni- heldur rúmlega 1 lítra. Uppþvottalögurinn er bland- aður LANOLINI og fer því mjög vel með hendurnar. Tappinn, sem er af nýrri gerð, hindrar óþarfa sóun og óþrif. Mildur og góður ilmur. Leirtauið verður skínandi fagurt ó augabragði. Spyrjið um verðið, og þér munuð sannfœrast um, að góð kaup eru í boði INNFLYTJANDl GLÓBUS HF. 20. tbi. VIKAN 45

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.