Vikan - 30.05.1968, Qupperneq 32
ONSON
KVEKJARAR
Vanti ykkur tækifærisgjöf þá muniö Ronson. Ronson
kveikjarar fyrir dömur og herra, fjölbreyttara úrval en
nokkru sinni fyrr, einnig úrval af borðkveikjurum.
EinkaumboS:
I. GUÐMUNDSSON & CO. HF.
Hverfisgata 89, Reykjavík.
y Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Einhverjir erfiðleikar verða í sambandi við persónu sem þú hefur í þinni þjónustu. Þú gerir mjög góða verrlun, sem þú getur að verulegu leyti þakkað ráð- gjöfum þínum. Þér verður lítið úr verki á föstudag. 0 Vogarmerkið (24. september — 23. október) Vinkona þín hefur lent í slæmri klípu og leitar ráða þinna. Þú verður upptekin mörg kvöld vik- unnar við söngæfingar eða eitthvað slíkt. Þú rifjar upp gömul kynni við skólafélaga þinn.
Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Gættu heilsu þinnar eins vel og þér er unnt. Þú hef- ur útlending á þínum snærum, líklega verðurðu að sjá um uppihald hans að einhverju leyti. Reyndu að komast hjá að vera að heiman næturlangt. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Þú tekur þátt í hrekkjum félaga þinna, en líklega fáið þið það ríkulega borgað. Þú verður sérstaklega heppinn á laugardag. Þér mun ganga ótrúlega vel með verk sem þú tekur að þér á fimmtudag.
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Þú færð kærkomið tækifæri til að ná þér niðri á ákveðinni persónu. Einn yfirmanna þinna sýnir þér verðskuldað traust og skaltu nota þér hagstæðan byr eins og þú hefur bezt vit á. Bogamannsmerkið (23. nóv. — 21. desember): Ákveðin persóna lætur sér mjög annt um þig og sýnir á margan hátt vináttu sina. Þú neyðist til að taka að þér skyldustörf fyrir félagsskap er þú starf- ar í. Eyddu frístundunum útivið.
Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Utanaókomandi truflanir valda því að þú verður að fresta ferðalagi um sinn. Þú færð sérstakt tæki- færi tíl að láta ljós þitt skína. Þú kynnist persónu sem hrifur þig vegna glæsilegrar framkomu. Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Sporti ykkar félaganna frá því í vetur er nú lokið. Þú ert nokkuð laus í rásinni, vantar einhvern fast- an punkt til að miða að. Taktu ekki neinar fjár- hagslegar skuldbindingar að þér.
Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Vertu ekki alltaf að ráðleggja öðrum, þú veizt sjálfur hvað það getur verið erfitt að þiggja slíkt. Þú eignast nýja kunningja í gegnum áhugamál þín. Líkur eru á löngu ferðalagi. A# Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Þú kaupir þér grip sem á eftir að verða þér og fjölskyldunni til mikillar ánægju og dægrastytting- ar. Sjúkdómstilfelli vissrar persónu verður til að raska frístundum þínum. Heillatala er fjórir.
Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Atvikin haga því svo til að þú verður aðal drif- fjöðrin í félagahópnum. Yfirmaður þinn veitir þér áminningu, sem þú ættir að taka til íhugunar. Þrjár persónur verða þér til mikillar ánægju. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Þú færð góðar fréttir frá ættingjum sem dveljast fjarti. Afskiptasemi vissrar persónu á eftir að hita þér 1 hamsi. Þér verður boðið í afar virðulega veizlu mjög bráðlega.