Vikan


Vikan - 26.09.1968, Side 5

Vikan - 26.09.1968, Side 5
hvers konar myndir sá vill sjá, sem skrifar umrætt bréf, það er sjálfsagt eitt- hvað háfleygt, líklega helzt með elektróniskri tónlist við, fyrst þessi sakleysis- lega og fallega mynd fer svona í taugarnar á honum og vekur ótta hans um and- lega hrörnun þjóðarinnar. Ég persónulega vorkenni innilega því fólki, sem hef- ur svo einhliða smekk að það einskorði sig við klass- íska tónlist og vilja ekki heyra annað, og því sem ekki getur haft gaman af að sjá öðru hvoru léttar og skemmtilegar kvikmyndir, þó þær skilji ekki mikið eftir hjá manni. Því þarf allt að vera svo yfirmáta háfleygt og hátíðlegt, hlað- ið menningarlegu listræni? Að lokum þetta til Kvik- myndaunnanda: Ég er sannfærð um að margir hafa skemmt sér konung- lega á myndinni „Sound of Music“, þó þeir hafi skilið að hún var ekkert menningarlegt afrek í kvikmyndagerð, og þetta fólk tel ég hafa heilbrigð- an hugsunarhátt, og ég vona að við eigum eftir að sjá margar myndir svipað- ar „Sound of Music“. Með þökk fyrir birting- una. Kin með meðalgreind. LEIKSKÓLAR Kæri Póstur! Mig hefur oft langað til að skrifa þér. Ég ætla að biðja þig að svara nokkr- um spurningum fyrir mig. 1. Hvað þarf ég að vera gömul til að komast í leikskóla og hvenær byrjar hann? 2. Hvað er námið langt? 3. Á hvaða dögum er kennt? 4. Hvar er skólinn? Með fyrirfram þökk. Ein tólf ára. PS: Hvernig er skriftin og stafsetningin? í Reykjavík eru starf- andi þrír leikskólar, Leik- skóli Þjóðleikhússins, Leik- skóli Leikfélags Reykja- víkur og Leikskóli Ævars Kvarans. Lágmarksaldur fyrir inn- töku í skóla Þjóðleikhúss- ins og Ævars eru sextán ár, en seytján hjá Leikfé- laginu, svo að þú verður víst að hafa nokkra bið- lund. Hjá Leikfélaginu byrjar kennslan 1. okt., hjá hinum um svipað leyti, nema stundum heldur fyrr hjá Ævari. Skóli Ævars starfar í rauninni sem undirbúningsskóli fyrir hina, og hefur hann engin inntökupróf eins og þeir. Hjá Ævari er skólinn tveir vetur, en síðan er hægt að fá sérstaklega undirbúning undir inntökupróf í hina skólana. Leikfélagsskólinn er þrír til fjórir vetur og starfar í tveimur deildum. Hjá Ævari er kennt kl. fjögur til sjö laugardaga og sunnudaga, hjá Leikfélag- inu tvo til fjóra tíma alla daga. Námstilliögun og skólatími í Þjóðleikhúss- skólanum mun vera all- svipaður og hjá Leikfélag- inu. Skóli Þjóðleikhússins er til húsa í Lindarbæ, Lindargötu 9, Reykjavík, skóli Ævars í Edduhúsinu, Lindargötu 9 A, en skóli Leikfélagsins í Tjarnarbæ við Tjarnargötu. Skrift og stafsetning standa vonandi til bóta. FISKUR OG VATNSBERI Kæra Vika! Ég les alltaf stjörnuspána mína, ég er fædd bæði í Vatnsberanum og Fiska- merkinu. í Vísi og Vikunni á ég Vatnsberann en í Morgunblaðinu á ég Fiska- merkið. Viltu svara mér hversvegna ég á ekki sama merkið í öllum tilfellum? Ein sem er fædd nítjánda febrúar. Eftir því sem við kom- umst næst eftir að hafa ráðgazt við stjarnspaka menn hefst tímabil fisk- anna með nítjánda febrú- ar, svo að eftir því ættir þú að tilheyra því merki. En raunar eru ekki allir fróðir menn sammála um hvar merkin skiptist. En ekki ætti þetta að skipta neinu meginmáli, því að fólk eins og þú, sem fætt er á mörkum tveggja merkja, hefur hvað oftast eiginleika beggja jafnt. Góða skemmtun! ■N GSIFTEPPI ÚTVEGUM MEÐ STUTTUM FYRIRVARA WILTON OG AXMISTER GÖLFTEPPA- DREGLA. BREIDDIR: 70 cm. 90 cm. 274 cm. 366 cm. OG 457 cm. ÖNNUMST ÁSETNINGU. FILT FYRIR- LIGGJANDI. Greiðsluskllmálar FYRIRLIGGJANDI GÖLFTEPPI OG MOTTUR. STÆRÐIR: 70 x 130 cm, 70 x 140 cm, 70 x 340 cm, 81 x 160 cm, 91 x 173 cm, 114 x 183 cm, 137 x 198 cm, 180 x 230 cm, 180 x 275 cm, 230 x 275 cm, 275 x 275 cm, 275 x 320 cm, 275 x 365cm, 200 x 300 cm, 250 x 350 cm, FriOrik Bertelsen LAUFÁSVEGI 12 - SÍMI 36620 38. tbl. VIKAN 5

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.