Vikan


Vikan - 26.09.1968, Page 6

Vikan - 26.09.1968, Page 6
 ALLTAF FJÓLGAR VOLKSWAGEN Sími 21240 HEKLA hf Laugavegi 170-172 DAGLEGT Það kemur oft fyrir að við fáum bréf frá ungmennum, sem eru í öngum sínum út af bólum og fílapenslum. Hvað á að gera? Fílapenslar (acne) eru mjög algengir hjá báðum kynjum á kynþroskaskeiði, en þó tíðari og orfiðari viðfangs bjá piltum. Þeir breiðast út um andlit, brjóst og bak, og ungt fólk, sem hefir feita húð er oít mjög þjáð af þessum ófögnuði. Á kyn- þroskaskeiði er mikil breyting á hár- og fitukirtlum húðarinnar. Hársekkirnir fyllast af fitu, og þegar kirtlarnir stíflast, víkka svitaholurnar. Þar sem bakterí- ur eru alltaf fyrir hendi á yfir- húðinni, geta þær auðveldlega komizt í opnar svitaholurnar og orsaka ígerð, sem lýsir sér sem bólur og kýh. Það getur verið að bólgan hjaðni þegar bólan springur og tæmir sig, og skilji ekki eftir ör. En bólgan getur líka verið dýpri og orsakað slæm kýli. Sumir fá aðeins nokkra fíla- pensla, en aðrir geta fengið út- brot um allt andlitið og niður á bak og brjóst. Ungar stúlkur fá oft bólur um leið og mánaðar- legar blæðingar, en venjulega hættir það af sjálfu sér á 20—25 ára aldri. Það er álitið að hormónar hafi áhrif á myndun fílapensla, auk- in framleiðsla kynhormóna hef- ur áhrif á fitumyndun í fitu- og hárkirtlum, en þeir eru þó ekki eina orsökin. Þar koma líka til næringarefni, nautnalyf, og ýms efni sem notuð eru í snyrtivörur og lyf. Hvað næringarefnin snertir er það aðallega dýrafita, súkkulaði og önnur sætindi, einnig t.d. feitur ostur, sem hafa áhrif á fitumyndun í húðkirtlum. Lyf, sem innihalda bróm og joð, geta líka orsakað fílapensla. Áður var bróm mikið notað við taugaveiklun og flogaveiki, en nú eru önnur lyf komin í stað- inn, svo „bróm“ bólur eru sjald- HIILSUFAR gæfar. Öðru máh gegnir með joð, sem oft er notað í kveflyf. Ef fólk fær útbrot við notkun slíkra lyfja, þá stafar það af joðinni- haldi í þeim. í sumum snyrtivörum eru efni sem geta orsakað útbrot og fíla- pensla, fólk hafi ofnæmi fyrir þeim efnum og útbrotin geta valdið því að fitukirtlar stíflist. Við fílapenslum eru engin „töfralyf" til, er lækna þá á ör- skömmum tíma. Eins og áður var getið um er álitið að hormónar hafi þarna eitthvað að segja. Það hefir gefið góða raun, bæði hjá piltum og stúlkum, að fá hormónagjafir, og þá auðvitað aðeins eftir læknisráði. Fæðan hefur mikið að segja. Daglegt fæði ætti að vera ávext- ir, grænmeti, magurt kjöt, fisk- ur, (þó ekki mikill fiskur og alls ekki feitur), kartöflur, mjöl- matur, undanrenna, áfir og þurr- mjólk, B- og C-vítamin. Það ætti lika að forðast mikið krydd, reyktan mat og áfengi. Það er líka nauðsynlegt að hreyfa sig mikið, vera í góðu lofti og sól (háfjallasól) og passa að hægðirnar séu í góðu lagi. Það nauðsynlegasta til að koma í veg fyrir að ör myndist eftir bólur, er að viðhafa mikið hrein- læti. Húðina á að þvo og þurrka vel með mjúku handklæði, strjúka húðina með þunnri sali- cylsprittblöndu, og ef nauðsyn krefur að nota áburð sem inni- heldur fúkalyf og brennisteins- blöndur. Það er hægt að kreista fílapensla út, en það verður að gera með ítrustu varfærni, og það er hægt að fá þar til gert verkfæri. (Það má aldrei nota til þess neglurnar). Ef nabbinn er rauð.ur og þrútinn skal varast að snerta hann, fyrr en hann er orðinn það grafinn að auðvelt sé að ná greftrinum út. Á eftir er gott að þvo húðina með spíri- tus- eða bórblöndu. Ef kýlin eru slæm, er nauðsynlegt að láta lækni gera við þau ........ 6 VIKAN 38. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.