Vikan


Vikan - 26.09.1968, Qupperneq 18

Vikan - 26.09.1968, Qupperneq 18
egóismans. Þegar allt kemur til alls, fylgir mikil sjálfstilfinning öllum merkjunum í fyrri hluta dýrahrings- ins. Ljónið vill vinna sér eins víð- óttumikið lífsrými og mögulegt er, jómfrúin stefnir að klassískri full- komnun eigin persónuleika. Hjá voginni tekur að kveða meira að umburðarlyndi og djúpri samstarfs- hneigð. Vogin er loftmerki, líkt og tví- burarnir og vatnsberinn. Fólk allra þessara merkja er félagsverur, en ó mjög misvíðtækan hótt. Hjá tví- burunum er félagshneigðin fremur yfirborðskennd og kemur yfirleitt fram í heldur lauslegum kunnings- skap, líkt og ó milli skólafélaga. í voginni verður félagsskapurinn dýpri og nónari og hjó vatnsberan- um að brasðralagi, sem tekur til allra. í síðari helmingi dýrahringsins umhverfist persónuleikinn og verð- ur æ víðfeðmari. Félagsvitundin, hópvitundin er vakin. Skipulagt samstarf hefst í voginni, öðlast auk- inn þroska í sporðdrekanum, væðist hugsjón í bogmanninum og snýst ( steinbukknum í hugmynd um ríki, þjóð. Venus er það himintungl sem Með henni hefst haustið. Á fyrsta þriðjungi þess ríkir jafnvægi milli dags og nætur, en nóttin vinnur á. Ljósi og hlýju förlar; það verður dimmt ó kvöldin. Síðustu óvextir sumarsins falla af trjánum: friðar- tókn og hvíldar. Ytri form og efnis- leg verðmæti hverfa í skuggann; hugur mannsins leitar innar. Þeirri þróun gróðurins er hófst með hrútn- um lauk með jómfrúnni. Jafnlengd dags og nætur í voginni tóknar jafnvægið milli hins fullunna verks og þeirra afla, en undirbúa hrörn- un þess. Það mó því eðlilegt kalla að tókn þessa tíma ó mótum tveggja miss- era sé vogin — tvær skálar vegandi salt á stöng. Hún er tákn jafnvægis og tengsla milli tveggja andstæðna, sem bæta hvor aðra upp. Hér gild- ir hinn gullni meðalvegur umfram allt annað. Andfætlingur vogarinnar í dýra- hringnum er hrúturinn. I hrútnum felst frumeldurinn, vorleysingarnar, hin fyrsta sköpun, ólm og dýrsleg. Vogin er hins vegar sú er skapar jafnvægi vélar og hemla, sóknar og varnar. Hjó henni víkur trylltur ofsi fyrir slökun og friðsemd. Segja mó að með jómfrúnni Ijúki misseri Oft á vogmaðurinn erfitt með að ákveða, hvort hann eigi að láta til skarar skríða eður ei, en lýkur yfirleitt samvizku- samlega því, sem hann hefur einu sinni byrjað á. Honum lætur vel að leggja síðustu hönd á verk, sem aðrir hafa að mestu leyti unnið. Hann er enginn berserkur, sem treystir á líkamsafl sitt til átaka. Hann stefnir að andlegri fagurfágun, reynir að gera lífið geð- felldara og þægi- legra. mestu ræður í voginni. Hér er hún þó ekki holdleg og jarðnesk eins og í nautinu, heldur kemur fram sem Venus-Úranía, gyðja himnesks kærleika, fegurðar, réttlætis, sann- leika, lista. Hún samtengir mann- eskjurnar öllu fremur með samúð, andlegu aðdróttarafli og þörf fyrir samræmi heldur en með fýsnum og ástríðum. Og Venus er móðir Erosar eða Amors, sem alls staðar er skjót- andi sínum örvum, og fegurð henn- ar vekur hjá mönnum ómótstæði- lega þrá eftir að sameinast þessari fegurð, annaðhvort áþreifanlega (líkamlega) eða andlega. Þessi fegurðardýrkun vogmenna gerir þau listræn og fagurfræðileg í þankagangi, og gætir þess því meira sem óhrif Venusar í merkinu eru meiri. Sólin, tókn sóknarafls og þrótt- mikillar og drottnandi karlmennsku, á hins vegar illa heima í þessu merki. Eftirtektarvert er að kóngar og einvaldar, fæddir í vogarmerki við sólaráhrif, hafa oft reynzt litlir gæfumenn. Má þar til nefna Frakka- konungana Karl tíunda og Lúðvík Filippus, sem var steypt af stóli í byltingunum á fyrrihluta nítjándu aldar, Játvarð sjötta Englandskon- 18 VIKAN 38- tw-

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.