Vikan


Vikan - 26.09.1968, Side 22

Vikan - 26.09.1968, Side 22
lífsnauðsyn fyrir það. í því felst nokkur hætta fyrir þessar manneskj- ur; þörf þeirra fyrir náin tengsli við annað fólk getur gert þær óhæfi- lega áhrifagjarnar og jafnvel und- irgefnar. Innhverfa vogmennið notar til- finningarnar einnig sem mælikvarða allra hluta, en það reynir hins veg- ar að halda sjálfstæði sínu gagn- vart því, sem örvar það og hrífur, til að halda eigin persónuleika sterkum og óháðum. Það reynir að hemja samúðarkennd sína, sem er ekki síður sterk en hjá úthverfu gerðinni, með því að einbeita henni á eitthvert ákveðið atriði eða per- sónu. Þessi einbeiting tilfinning- anna gerir þær að jafnaði heitari og sterkari. Þótt vogmenni þessar- ar gerðar séu yfirleitt róleg og jafn- vel kæruleysislega glaðvær á ytra borði, þá búa oft sterkar og sárs- aukafullar ástríður undir þeirri skel. Uthverfa gerðin verður yfirleitt til við áhrif frá sól og Júpíter, sú innhverfa er handgengin mána og Satúrn. Báðar vilja skapa heim, er gæði þær fágun, næmleika, hóg- værð og velvilja. Frönsku málararn- ir Boucher og Watteau þykja hafa túlkað báðar þessar manngerðir stórvel. Meiri félagsveru en vogmennið getur varla. Það er ekki einungis gagnsýrt mannúð og tillitssemi, heldur eru tengslin við umheiminn drjúgur hluti persónuleika þess. Það ber fúslega byrðar annarra, vill gera öllum rétt og lagar sig eftir kringumstæðum, reynir að skapa samræmi milli sín og umhverfisins. En ekki er því að neita að þessi mikla félagshneigð getur tekið á sig miður geðfelldar myndir. Henni fylgir rík löngun til að þóknast öðrum. Þessi kvenlegi eiginleiki kemur jafnt fram hjá vogmennum af báðum kynjum. Þegar hann gengur út í öfgar, koma fram smjaðrarar og daðurdrósir, sem láta sér fátt um raunverulega verðleika. Vogmenni með veika skapgerð grípa oft til þessa hátternis. I aug- um þeirra er fyrir mestu að hljóta lof og hrós, jafnvel þótt ekki sé nema á yfirborðinu. Einlægasta ósk vogmenna er að ná góðu samkomulagi við annað fólk. Þess vegna eru þau jafnan reiðubúin til málamiðlana og bráða- birgðalausna. Engir geta betur en þau umborið galla náungans,- í þol- inmæði og umburðarlyndi ganga þau eins langt og framast er unnt. Þau eiga furðuhægt með að setja engan hjá, og miklu máli skiptir þau að sýna aldrei af sér vonzku og valda engum áhyggjum eða þjáningum. Engum vilja þau gera rangt til; vogin er, sem menn vita, tákn réttlætisins. Hún er einnig tákn jafnvægisins. Þegar önnur skálin sígur, lyftist hin. Gangi vogmenni að eigin dómi of langt á einhverju sviði, sem þau forðast að vísu eins og heitan eld- inn, þá reyna þau að jafna það upp með einhverju móti. Enginn dregur í efa góðan vilja Framhald af bls. 19 /--------------------\ ÍSlENDiNGAR í VOGINNf Dr. Kristinn Guð- mundsson, ambassador. Ölafur Jóhann Sig- urðsson, rithöf. Ösvaldur Knudsen, kvikmyndatöku- maður. Rögnvaldur Sigur- jónsson, píanó- leikari. Sigríður Einars frá Munaðarnesi. Sigvaldi Hjálmars- son, blaðam. Snorri Hallgríms- son, prófessor. Stefán íslandi, óperusöngvari. Veturliði Gunnars- son, listmálari. Agnar Klemens Jónsson, ráðu- neytisstjóri. Guðmundur Daníelsson, rith. Guðmundur G. Hagalín, rith. Jakob Frímanns- son, kaupfélags- stjóri KEA. Jóhannes Kjarval, Listmálari. Jón Axel Péturs- son, bankastjóri. Jónas Haralz, hagfræðingur. --------------------/ vogmennisins. En því miður getur sá vilji verið veikur. Vogmaðurinn er í eðli sínu fágaður og fíngerður, sýnir jafnvel viss úrkynjunarein- kenni. Hann er fremur lítið gefinn fyrir að ráðast á Ijón, sem standa í vegi hans. Þetta leiðir meðfram af því, hve hin karlmannlegu him- intungl sól og Mars njóta sín illa í merkinu, en hin kvenlega, feg- urðarelska Venus lætur þeim mun meir að sér kveða þar. Þetta kem- ur vogarkonunni sérstaklega til góða, en vogarkarlinum veldur þetta vissum erfiðleikum. Hann skortir árásarlöngun, útþenslu- hneigð og viljafestu og sniðgengur átök og árekstra eftir beztu getu. Oft á hann erfitt með að ákveða, hvort hann eigi að láta til skarar skríða eður ei, en lýkur yfirleitt samvizkusamlega því, sem hann hefur einu sinni byrjað á. Honum lætur vel að leggja síðustu hönd á verk, sem aðrir hafa að mestu leyti unnið. Hann er enginn berserkur, er treystir á líkamsafi sitt til átaka. Hann stefnir að andlegri og fagur- fræðilegri fágun, reynir að gera líf- ið geðfelldara og þægilegra. Það sem góðmenni þetta á erfið- ast með er 'að segja nei. Af góð- vilja og greiðasemi við aðra hirðir hann oft lítt um eigin hagsmuni, enda verða margir til að 'misnota góðsemd hans. Hann verður að stæla sig til að glata ekki persónu- leikanum og forðast það að um- hverfið gleypi hann með húð og hári. Friðarstefna hans getur orð- ið að hreinni uppgjöf. Ef vel á að fara, verður hann að gera sér Ijóst. að friðurinn fæst ekki fyrirhafnar iaust, frekar en annað. Hinar tvær skálar vogarinnar tákna í senn knýjandi orku og hem- il, kröfu og hik. Stígi vogmenni skref áfram, hneigist það helzt að því að taka það næsta aftur á bak. Sem dæmi um það hve erfitt vog- menni eiga með að ákveða sig er bent á frásögn franska miðalda- skólaspekingsins Buridans af asna, sem svalt í hel milli tveggja hey- stakka, þar eð hann gat ómögulega ákveðið úr hvorum hann ætti að éta. Segja má að asni Buridans sé sá draugur, sem ofsæki vogmenni flestum öðrum fremur. Þeir greind- ari sjá við honum með því að bræða saman andstæðurnar, sem glíma ( huganum; hinir heimskari hneigjast hins vegar oft af þessum sökum til sljóleika og aðgerðaleysis. Þeir eru álíka settir og á milli steins og sleggju. Af þessu öllu má Ijóst vera að vogmaðurinn er í eðli sínu góður maður, þótt persónuleikinn mætti vera sterkari. Hann bætir þó skort sinn á viljafestu að verulegu leyti upp með greind, sem hann yfirleitt hefur í betra lagi. Hann er fyrir- taks sáttasemjari, þar eð hann á auðvelt með að taka hlutlausa og skilningsfulla afstöðu til deiluaðila með ólík sjónarmið. Hugur hans stefnir mjög að því að sætta and- stæður, jafnvel þær sem ósættan- legar virðast. Hann er húmanisti, laus við ofstæki, niðurrifslöngun og kredduþrælkun. Þegar um það er að ræða að bjarga mönnum, fórn- ar hann gjarnan hugmyndum. Vogmenn kváðu vera óauðkennd- ari á útlitinu en nokkrir aðrir. Þó hefur verið á það bent að fólk á málverkum van Dykes og Watte- aus, grannvaxið, fíngert og aristó- kratískt útlit, sé dæmigerð vegar- börn. Hjá karlmönnum ( þessu merki má oft greina vissa kven- lega drætti. Andlitssvipurinn er oft mjög breytilegur eftir þv! hvernig stendur á stjörnum. Júpíter fylgir hressilegt bjartsýnisbragð en íhug- ull gruflsvipur Satúrn. Vogarkonur eru venjulega ele- gansinn sjálfur holdi klæddur og upplagðar sýningardömur fyrir tízkuhúsin. Þær eru einnig oft frá- bærar á leiksviði, eins og dæmi Eleonoru Duse sannar bezt. Andlit- ið er oftast ávalt með reglulegum dráttum, líkaminn grannur og vel byggður, hreyfingarnar einkennast af samræmi. Svipurinn ber bæði vott um góðleika og glaðværð. Hvað klæðaburð snertir, skákar enginn vogarkonunni í smekkvísi og glæsiieika. Hún vill falla mönn- um í geð og töfra þá. Tilfinning fyrir samræmi línu og litar liggur henni ( blóðinu. Hún hefur mætur á fremur daufum litum með marg- víslegum blæbrigðum, grábláu, Ijós- grænu, rósrauðu. Ilmvötn velur hún af kostgæfni og hefur hárið gjarn- an sítt og lítið eitt bylgjað. Sá vottur kvenleika, sem fæstir vogkarlar eru lausir við, kemur einnig fram í klæðaburði þeirra. A því sviði hneigjast þeir alloft að einhvers konar tilgerð og snobbi. Frá Venusi fá vogmennin létt- leika og glaðværð, sem fer vel í loftmerki, frá Satúrn alvöru sem úr þessu dregur. Sem fyrr er á drepið, komast þau auðveldlega úr jafn- vægi og miklar geðshræringar geta orðið líkamlegri heilsu þeirra hættu- legar. Fyrir nýrnasjúkdómum eru þau talin sérstaklega viðkvæm. Til- finningasemi þeirra lýsir sér til dæmis í því, að þau eru fljót að roðna ef eitthvað óþægilegt ber við. Um samkomulagsmöguleika vog- arinnar við merkin í fyrri hluta dýra- hringsins hefur verið skrifað í fyrri greinum. Tveimur vogmennum kemur yfir- leitt vel saman, sem að Kkum læt- ur. Þau hjálpast að því að fága smekk sinn, en örva llka, þegar þannig stendur á, tvíveðrung þann og uppgjafarhneigð, sem eru þær hættur er vogmenni þurfa sérstak- lega að vara sig á. Vog og sporðdreki eru nágrann- ar, en samt sem áður fer bezt á því að þau hafi sem minnst saman að sælda. Þeim mun dýpra sem þau skyggnast í hugarfylgsni hvors ann- ars, þeim mun fleira greinir þau á um. Oft stendur voginni beinlínis stuggur af sporðdrekanum. Hins vegar takast fljótt og auð- veldlega kærleikar með vog og Framhald á bls. 48. 22 VTKAN 38- tbL

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.