Vikan - 26.09.1968, Síða 27
„Þessi hljómsveit okkar var tómt grín,“ segir Pete
Shotton. „Skiffle-tónlistin var í algleymingi um þetta
leyti, og allir reyndu að spila og syngja eins og þeir
gátu. Eg lék á þvottabretti af því að ég bar ekkert
skynbragð á tónlist. En ég var vinur Johns og þess
vegna varð ég að vera með.“
John var að sjálfsögðu hljómsveitarstjórinn og það
gekk ekki á öðru en rifrildum og átökum innan hljóm-
sveitarinnar.
,.Eg reifst við þá, sem ég vildi losna við,“ segir John.
„Ef einhver reyndi að derra sig, þá varð hann að gera
svo vel og fara úr hljómsveitinni.“
I hinum skólanum, Liverpool Institute, gerðist hið
sama og í Quarry Bank. Skiffle-hljómsveitir skutu upp
kollinum hver af annarri. Ivan Vaugham var í Liver-
pool Institute eins og áður er sagt. 15. júní 1956 kom
hann með skólabróður sinn og kynnti hann fyrir vini
sínum John. Ivan hafði talað mikið um John og hljóm-
sveit hans, Quarrymen. Ivan hafði engan áhuga á tón-
list, en þessi skólabróðir hans hafði það og vildi ólmur
kynnast John og hlusta á hljómsveitina hans.
John man aðeins óljóst hvað gerðist þennan dag.
Hann varð dauðadrukkinn, þótt hann væri enn ungur
að árum. Aðrir muna það hins vegar vel, sérstaklega
Ivan, sem kynnti fyrir honum — Paul McCartney.
„Þá gerðist það,“ segir John. „Ég kynntist Paul, og
það var upphafið að þessu öllu saman.“
Þriðji kafli
P AIJ L
Paul McCartney fæddist 18. júní 1942 í einkastofu á
Walton-sjúkrahúsinu í Liverpool. Hann var sá eini af
Bítlunum, sem fæddist við svo glæsilegar aðstæður. Þeir,
sem að honum stóðu, voru venjulegt alþýðufólk, og
besrar hann fæddist, var stríðið í algleymingi, svo að
iafnvel þeir sem áður höfðu verið bjargálna börðust í
bökkum. Hins vegar hafði móðir hans verið yfirhjúkr-
unarkona á fæðingardeild þessa sjúkrahúss. Þess vegna
hlaut hún eins góða aðhlynningu og umönnun og unnt
var að láta í té, þegar hún kom á sjúkrahúsið til að eign-
ast fvrsta barn sitt.
Móðir hans, María Patricia, hafði hætt, að vinna á
sjúkrahúsinu rúmu ári áður, þegar hún giftist föður
hans, og hafði þá fengið vinnu á skrifstofu heilbrigð-
isnefndar. Ættarnafn henar var Mohin, og hún var af
írsku bergi brotin, eins og eiginmaður hennar.
Jim McCartnev hóf vinnu hjá fyrirtækinu A. Hannay
og Co. í Liverpool fjórtán ára gamall. Þetta fyrirtæki
kevpti og seldi baðmull. Jim McCartney taldi sig vera
trúlausan, en hins vegar var konan hans kaþólsk. Hann
fæddist 1902 og átti tvo bræður og fjórar systur.
Það var talið mikið happ, að hann skvldi fá vinnu í
baðmullariðnaðinum, þegar hann hafði lokið skólanámi
sínu. Baðmullariðnaðurinn var í miklum uppgangi um
Bræðurnir Paul (til vinstri) og Michael (til hægri) ásamt föður þeirra, Jim McCartney. Jim var fríður sýn-
um, lipurmenni, einlægur í tali og strangheiðarlegur. — Á myndinni hér að neðan sjáum við þá bræður með
móður sinni, Maríu Patriciu. Ilún lézt, þegar Paul var fjórtán ára og Michael tólf. Hún var hjúkrunarkona að
mennt, en starfaði einnig um skeið sem ljósmóðir.
Paul McCartney níu ára gamall. Hann var lengst af
prúður og hæglátur í skóla og gæddur miklum
námshæfileikum. Faðir hans hafði alltaf hugsað sér.
að hann gengi menntaveginn og gæti skreytt nafnið
sitt með virðulegum titli, eins og t. d. B.A. eða
B.Sc. En það fór á aðra leið. —Aðrar myndir eru
af Paul eftir að hann haföi öðlazt heimsfrægð.
þetta leyti og Liverpoo! var miðstöð hans. Þeir sem
fengu vinnu við þessa iðngrein, voru álitnir hafa komizt
í öruggt lífstíðarstarf.
Jim McCartney var aðstoðarmaður sölumanns og
ldaut sex shillinga í kaup á viku. Hann fór með sölu-
manninum til ríkra kaupmanna, og sýndi þeim sýnis-
horn af því, sem þeir höfðu áhuga á að kaupa. A. Hannay
og Co. flutti inu baðmull, flokkaði hana og seldi siðan
verksmiðjunum hana.
Jim stóð sig vel í starfi sínu, og þegar hann var 28
ára gainall, var hann hækkaður í tign og gerður að
sölumanni. Þetta var talin mikil ujiphefð og frami
fyrir óbreyttan alþýðumann. Sölumenn i baðmullariðn-
aðinum voru ofurlítið liærra settir en miðstéttin. Jim
var fríður sýnum og alltaf smekklega klæddur; lipur-
menni, einlægur í tali og strangheiðarlegur.
Þegar hann var orðinn sölumaður, fékk hann 250
pund í árslaun. Það voru reyndar ekki há laun, en þó
a'lsæmileg.
Jim var of ungur til að taka þátt í fyrri heimsstyrj-
öldinni og of gamall til að berjast i þeirri síðari. Auk
þess hefði hann af heilsufarsástæðum ekki verið talinn
hæfur til að gegna herþjónustu. Hann hafði dottið ofan
af vegg, þegar hann var tíu ára og hljóðhimna hans hafði
skaddazt. En samt vann hann í þjónustu hersins. Þeg-
ar baðmullariðnaðurinn lagðist niður á stríðsárunum,
var hann látinn vinna í hergagnasmiðju.
Hann kvæntist 1941, 39 ára gamall. Mary, kona hans,
var 32 ára. Fyrsta barn þeirra, Paul, fæddist 18. júní
1942, eins og áður er sagt. Þau fengu tvö herbergi búin
húsgögnum leigð í Anfield og hófu búskap sinn þar.
Jim vann í hergagnasmiðjunni á daginn en var auk
þess slökkviliðsmaður á nóttunni, þegar Paul fæddist.
Ilann gat heimsótt konu sína hvenær dagsins sem var,
meðan hún lá á sæng, af því að hún hafði verið yfir-
hjúkrunarkona á fæðingardeildinni.
Jim féklc að skoða barnið örskömnm eftir að það
fæddist. jafnvel áður en það hafði verið baðað. „Hann
var hræðilegur útlits,“ segir hann. „Hann opnaði ekki
nema annað augað og vældi eymdarlega. Eg fór heim
og grét í fyrsta skipti í mörg ár. En daginn eftir var hann
strax skárri. Og síðan dafnaði hann smátt og smátt og
varð á endanum yndislega fallegt barn.“
Dag nokkurn, þegar Paul litli hafði verið í vagni úti
í garðimun, þar sem þau bjuggu, uppgötvaði móðir
hans, að stórar rykflygsur voru á andliti barnsins. Þá
varð hemii ljóst, að þau yrðu að fá betri íbúð i hrein-
legra hverfi. Hergagnasmiðjan, sem Jim vann í, smíðaði
mestmegnis flugvélar, svo að Jim var talinn starfsmað-
ur flughersins. Þess vegna tókst honum að fá íbúð í
Knowlsely Estate, Wallasey. Ríkið hafði byggt þar
ibúðarhverfi fyrir starfsmenn flughersins. „Þetta voru
lítil og illa smíðuð hús,“ segir Jim. „Þau voru að mestu
óinnréttuð, ekkert nema ber múrsteinninn að innan. En
samt var þetta betri íverustaður en við höfðum áður
haft.“
Áður en stríðinu lauk var vinnan í hergagnasmiðjunni
26 VIKAN 38- tbl-
38. tw. VIKAN 27