Vikan


Vikan - 05.06.1969, Qupperneq 44

Vikan - 05.06.1969, Qupperneq 44
/Cb\algjörlega \T4T/ SJÁLFVIRK 10 ÞVOTTAKERFI: 1. Suðuþvottur, mjöf óhrelnn (meS forþvottl). 2. Suðuþvottur, venjulecur (án for- þvotts). 3. Mlslltur þvottur (suðuþollnn) (bómull, léreft). 4. Gerfiefni — Nylon. Dlolen. o. þ. h. (in þeytivlndu). 5. Mlslitur þvottur (þolir ekkl suðu) (án þeytlvldnu). 6. Mlslitur þvottur (ekkl lltfastur). 7. Vlðkvæmur þvottur (Acetate, Per- (án þeytlvlndu). 8. Ullarefnl (ksldþvottur). 9. Skolun. 10. Þeytlvinds. VBSTURCOTU II SÍMI 19294 ur þó á faetur og innan stundar ná þau klárnum, sem hafði skammt farið. Nú er degi tekið að halla og rökkrið að færast yf- ir.. Hríðin var svo svört að eng- in kennileiti urðu greind eftir að myrkt var orðið og því vindstað- an ein til að átta sig eftir. Þegar pilturinn hefur athugað sig þarna stundarkorn finnst honum að hann muni vera kominn eitt- hvað afvega, en þá gat verið í voða stefnt, því niður Brekku- dal er illfært nema austan meg- in. Þetta leit því ekki efnilega út, alltaf herti veðrið og færðin versnaði. Pilturinn tekur það nú til ráðs að teyma hestinn og fara að öllu sem varlegast. Gamla konan þrammar í braut- ina á eftir og fylgd:st hann vel með ferðum hennar. Þannig gengur þetta góða stund þótt hægt miði. En ekki líður á löngu þar til hann er þess fullviss að þau séu komin vestur fyrir ána, til þess segir hallinn á landinu. Nú eru góð ráð dýr. Ógerlegt er að snúa við og óvíst hvað v':ð tekur ef áfram er haldið. Það taldi þó pilturinn skárri kostinn og er því haldið áfram en mjög hægt. Allt í einu steypist hann fram af snjóhengju og missir um leið takið á taumnum. Ekki varð hann fyrir neinum meiðslum og bröltir upp aftur. Þar stendur hesturinn en gömlu konuna sér hann hvergi. Stormurinn og hríðin er svo hörð að hann nær varia andanum. Eftir að hafa svipazt þarna um og þreifað fyr- ir sér dálitla stund, finnur hann hana í brautinni þar skammt frá og liggur hún með öllu hreyf- ingarlaus sem dauð væri. Þegar hann ætlar að reisa hana á fæt- ur, segist hún ekki standa upp og ekki fara lengra. Þarna voru því ekki góðir kostir fyrir hendi. Pilturinn segir henni að þetta komi ekki til mála, hún verði að reyna að staulast áfram, því við hana geti hann ekki skilið á þessum stað í stórhríð og nátt- myrkri. Hún kveður sig það engu skipta, segist alls ekki fara lengra. Pilturinn hugsar sig um andartak, en segir svo: „Jæja, ef þú ert staðráðin í þessu, þá gerir þú mig að manndrápara, því það er eins gott fyrir þig að ég sálgi þér eins og þú króknir hér útaf.“. Þegar gamla konan heyrir þetta fer hún dálítið að brölta og getur pilturinn stutt hana á fætur. Hann vill nú fá hana til að næra sig dálítið á mjólk, en hún tekur því víðs fjarri og svo hafði jafnan verið um daginn, en aftur á móti greip hún oft snjó til að slökkva þorst- ann. Eftir að kerla er staðin upp var hún hreint ekki svo aum sem hún hafði látið í veðri vaka, enda þótt mikið væri af henni dregið.- Þessi kona var á sínum tíma ein með allra duglegustu kvenmönnum og voru þó margar á þeim árum engir aukvisar. En nú var hún orðin nokkuð roskin og því farin að gefa sig hvað orku snerti. Pilturinn fær hana nú til að ganga í brautina á eftir hestin- um, halda í taglið á honum og létta sér þannig gönguna. Stund- um missti hún þó takið þegar mishæðir voru. Erfiðast var að komast yfir svonefnt Prestsgil vestan árinnar, en það lánaðist þó með margskonar töfum og snúningum. Þegar komið var niður á ána, batnaði færðin og þegar kom niður á svonefnt Neðrakast var aftur komið á rétta leið austan megin árinnar. En þá fer gamla konan að hafa orð á því aftur, að hún komist ekki lengra og er nú augljóst að svo mjög er af henni dregið að hún hefur ekki lengur uppi- stöðumátt. En nú voru þau kom- in niður á móts við Gilsfjarðar- brekku, þar var þá bóndi Jón Theódórsson. Hann var alltaf vanur að hafa opna vök á ánni og járnkarl hjá. Þetta vissi pilt- urinn, býr hann nú um gömlu konuna, skilur hestinn eftir og hleypur niður að ánni því sjálf- ur var hann nær aðframkominn af þorsta. En þegar hann kemur að vökinni sér hann glóra í ljós- ið heim á bænum. Hann hraðar sér þangað og gerir vart við sig, eru þá um það b'l vökulok og fólk að ganga til náða. Eftir að hafa fengið að drekka fer hann ásamt Jóni bónda að vitja konunnar og finna þeir hana sofandi. Flytja þeir hana til bæíar þar sem henni er veitt- ur allur sá beini, sem tök voru á. Þarna lá hún rúmföst nokkurn tíma en náði sér þó að fullu eft:r allt vosið. Sýnir það bezt hve roiklu þreki hún hefur búið yfir. Þegar þess er gætt hve allur búnaður fólks var annar og ófullkomnari á þeim tíma, sem þessi ferð var farin, en nú er, þá má kalla að þarna hafi verið um mikla þrekraun að ræða. Og óvist hvernig ráðizt hefði, ef ung- ur maður og harðskeyttur hefði ekki troðið brautina og óbugaður gengið. * ^r^trustu demantar heims Framhald af bls. 16 Mohammeð geymdi ævinlega demantinn innan í túrbaninum sínum. Nadir hefði auðvitað sem hæg- ast getað drepið mógúlinn og tekið demantinn. En hann kaus að fara öðru vísi að. Hann setti á svið virðulega athöfn, þar sem Mohammeð var aftur settur inn í embætti sitt gegn loforði um gagnkvæma vináttu. Þegar at- höfnin stóð sem hæst, stakk Nadir upp á því við Mohammeð, að sem tákn um bindandi samn- ing þeirra skyldu þeir skipta á túrbönum. Mohammeð gat ekki skorazt undan þessu, án þess að eiga á hættu að móðga sigurveg- arann. Hann hafði engin tök á að koma demantinum undan. Án þess að svipbrigði sæjust á and- lit’ hans rétti hann Nadir túr- baninn með hinum dýrmæta demanti í. Sagan segir, að Nadir hafi þegar í stað brugðið sér í tjald sitt og rakið upp túrbaninn. Þeg- ar hann fékk augum litið hinn eftirsóknarverða stein, hrópaði hann upp yfir sig: „Koh-i-nor“, sem á persnesku þýðir „ljósa- fjall“. Síðan hefur steinninn ver- ið kallaður þessu nafni. Illvirki og óhamingja fylgdi Koh-i-nor-demantinum næstu aldirnar. Nadir var myrtur og steinninn féll í hendur syni hans, Rukh, sem var settur frá völd- um. Rukh var pyntaður til dauða, en engu síður neitaði hann að láta uppi, hvar hann hefði falið demantinn Hinum örlaga- ríka steini var bjargað af Ahmed shah, forföður Duranti Afghan- ættarinnar. Þegar Rukh lézt erfði Ahmed demantinn, og þeg- ar hann lézt gekk hann í arf til sonar hans, Timbur. Að honum látnum fékk elzti sonur hans hann, Zeman. En Zeman var einnig vikið frá völdum. Við völdum af honum tók Shuja, bróðir hans, og eign- aðist þar með Koh-i-nor-demant- inn. En stjórnartíð hans var ámóta skammvinn og bróður hans. Shuja varð að fara í útlegð ásamt bróður sínum, Zeman. Þeir flýðu til Ranjit Singh og höfðu Koh-i-nor-demantinn með sér. Ranjit Singh sló eign sinni á steininn, en lofaði í staðinn að ábyrgjast öryggi þeirra bræðra. í mörg ár bar hann steininn jafnan á sér, en lét síðan greipa hann í armband, sem hann gekk með hvern einasta dag. Eftir dauða hans 1793 var demantur- inn varðveittur í skartgripa- skríni hans í heila öld. 1849, þegar brezka he'msveld- ið viðurkenndi ríki Ranjits, komst steinninn í eigu hins brezka austur-indverska félags. 1850 var hann færður Viktoríu Englandsdrottningu að giöf í til- efni af hátíðahöldum vegna þess, að 250 ár voru liðin frá því að Indlandssáttmálinn var undir- ritaður. Demanturinn, sem uppruna- lega var skorinn og slípaður af indverskum handverksmanni, sem sýnilega hefur haft hin frumstæðustu áhöld, var 186 karöt að þyngd. Fjórar skorur höfðu verið slípaðar í hann, svo að hann passaði í armband Ranjit Singhs. Þrátt fyrir hina gífurlegu frægð þessa steins, olli hann nokkrum vonbrigðum, er hann komst í eigu brezku kon- ungsættarinnar. Mönnum þótti skorta talsvert á, að hann væri eins stórkostlegur á að líta og af var látið. Viktoría drottning ákvað þess vegna að láta slípa hann upp á nýtt. Frægasti demantaslípari þeirra tíma, sem var Hollendingur, var kallaður á fund drottningar til viðræðna um verkið. Hann fékk vinnuaðstöðu á einkaverkstæði 44 VIKAN 23- tbl-

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.