Vikan


Vikan - 17.07.1969, Blaðsíða 8

Vikan - 17.07.1969, Blaðsíða 8
Gosdrykkir J Vasarax dósurtj Súpur í pökkum, mss M0M ^xeyktóbak neftóbak H rnímm wm melœSð&wzk Te í grisium og laust jn,Æ Kakó Kw margar tegundir Avextir] ódýrar og Ijúffengar V iLSjSpTheít^BI & iraatðns^L^^^^B Smjör rm NiðtirsuðuvÖrur sardinur, gaffalbitar smjörsíld,^^^ kiot kjötbúðingur. svit fiskbúðingur og fiskboJIu vindl sPytu Sælgæt Hffij Snyrtivörur: rakbfeð^ Tandsápa^JW ^^nWamWstaJ Hmatvörubúðir .... ÞRONGT MEGA SÁTTIR SITJA .... Kæri Póstur: Margir skrifa þér til að bera fram kvartanir sínar, og því hef ég ákveðið að slást í hóp þessara nöldur- seggja. Það sem ég er svona óánægður með er afgreiðslan í Áfengisverzl- un Ríkisins. Þegar svo ber undir fer ég í þessa helztu tekjulind þjóðarinnar og geri smávægileg innkaup, en það getur tekið allt upp í tvo tíma að fá afgreiðslu. Yfirleitt er troðfullt — og margir fullir —- en það virðist ekki hafa nein áhrif á þá sem eru við afgreiðslu, þeir hugsa bara um þá sem eru frekastir, en við hinir, sm rembumst við að sýna örlitla kurteisi megum bíða von úr viti, þar til þeim háu herrum þóknast að reka augun í okkur. Væri ekki ráðlegt fyrir ráða- menn þessarar stofnunar að taka upp þann ágæta sið að afhenda viðskipta- vinum sínum númer, svip- að og gert er á lækninga- stofum? Ég vona að þú komir þessu á framfæri. Johnny Walker. Pósturinn tekur undir þessi orð, og er þessu hér með beint til réttra aðila — annars gæti farið svo að samtök yrðu stofnuð sem hefðu það á stefnuskrá sinni að verzla ekki við „rikið“! MEÐ FLUGUNET Á BALLI Pósturinn, Vikunni! Eftir hálft ár verð ég tvítugur, og þá má ég gifta mig. Ekki svo að skilja að ég sé neitt í þannig hug- leiðingum, en þegar maður er kominn á þennan aldur, þá fer maður að hugsa ör- lítið meira um slíka hluti en áður. ííg er með stúlku, og hef verið í nokkra mán- uði. Mér þykir mjög vænt um hana, þó ég vildi ekki endilega eiga hana fyrir konu, en eitt er það í fari hennar sem ég kann mjög illa við: Hún gerir miklar kröfur til mín, og þó ég segi henni að þær séu of miklar, þá virðist hún ekki vera á sama máli. En svo er það þannig, að ég verð að sitja og standa alveg eins og henni dettur í hug. Ef við erum til dæmis á balli saman, þá má ég ekki dansa við neina nema hana, en svo finnst henni alveg sjálfsagt að hún geti verið eins og fiðrildi út um allt. Á ég að hætta að vera með henni, eða á ég að „taka sénsinn á“ að þetta lagist? Kveðjur. Snæbjörn. Það eina sem ég get ráS- lagt þér, er að tala um þetta við hana, og reyna að komast að því hvort henni finnst þetta sann- gjarnt. Persónulega finnst mér það ekki, og ef hún getur ekki séð þína hlið á málinu, þá tel ég áfram- lialdandi samband — af einhverju viti — útilokað. BYLTINGIN UPPMÁLUÐ Kæri Póstur. Það er sífellt verið að klifa á því hve æskan sé spillt og ómöguleg, og að hún vilji ekkert nema ego- ið. Mætur prestur hér í bænum lét sér nýlega þau orð um munn fara af pré- dikunarstóli, að það væri hrein skömm að hve heimtufrek æskan væri í dag. Hún krefðist alls og vildi ekkert gefa í staðinn. í mínum augum er þetta eins mikil tjara og nokkuð getur verið. Við gerum jú miklar kröfur, en við för- um ekki fram á annað en akkúrat það sem við eigum heimtingu á, og ég á heimtingu á að hafa það gott. Af hverju? Vegna þess að velmegunin er svo almenn, og ef ég ekki fengi þetta, þá gæti ég alls ekki komið til móts við þann tíma sem ég lifi á. Maður heyrir marga foreldra kvarta og hrósa sér af því að þau hafi kostað börnin sín í þetta og hitt. En hvað með það? Er það ekki nema það eitt sem þau áttu að gera? Ekki fórum við fram á að fæðast í þennan spillta heim. 8 VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.