Vikan


Vikan - 17.07.1969, Blaðsíða 47

Vikan - 17.07.1969, Blaðsíða 47
I I NNEDY, JR. Sá frægi Collegiate drengjaskóli í New York tekur að- eins á móti einum af hverjum 40 drengjum sem æskja inngöngu í skólann. Foreldrar flestra eru ríkir, en þó ekki allir. Leonard Berstein, Jason Robards og McGeorge Bundy eiga allir syni í skólanum en uppáhalds félagí vinsælasta nemanda skólans (útáviS) er blakkur sonur Hans Hageman, sem býr í Harlem. Þessi vinsælasti nemandi skólans er 9 ára gamall piltur, John F. Kennedy, yngri. keypt mig til þess. En þér getið verið þess fullviss, að ekki einu sinni Kennedy-i gæti komizt inn í Collegiate ef hann væri ekki fær um að leysa vinnuna af hendi. John fékk inn- göngu vegna þess eins að hann er vel gefinn lítill di’engur, já, mjög vel gefinn. Hann fær enga sérstaka hjálp, og hefur aldrei fengið. Hann sótti urn og varð að bíða heilt ár áður en við höfðum pláss fyrir ]iann.“ Hinir drengirnir voru samt sem áður undirbúnir örlítið áður en John kom í skólann. Daginn áður en skólinn bvrjaði kallaði skólastjórinn bekkjarfélaga hans á sinn fund og sagði þeim að hinn nýi félagi þeirra ætti að hljóta „nákvæmlega sömu meðferð og þeir sjálfir“. t»annig hefur það líka verið. „Drengirnir tala um John vegna þess að hann er góður í knattspyrnu en ekki vegna þess að hann er sonur forseta,“ sagði móðir eins drengsins. „Sumum þeirra líkar illa við hann vegna þess að hann skorar svo mörg mörk.“ Það vakti enga sérstaka athygli meðal skólafélaganna þegar hann fór til Grikklands í október sl. til að vera viðstaddur brúðkaup móður sinnar og Onassis. „Sonum mínum tveim fannst lítið til þess koma,“ sagði einn faðirinn, „hinir félagar þeirra eru líka alltaf á flækingi umhverfis jarðkúluna.“ John fer á fætnr klukkan 7 á hverjum morgni, en þá er hann vakinn af rúmlega tvítugri barnfóstru sinni, sem enginn virðist vita hvað heitir. Sögur fara af sambúð hennar og „prinsins“ og á John einhverntíma að hafa hent í hana tómöt- um við morgunverðarborðið. Kl. korter fyrir átta leggur hann svo af stað í skólann, í fylgd barnfóstrunnar, leyniþjónustumanns, sem kallaður er Muggur, og ensks Spaniel-rakka, sem kallaður er Shannon. John er venjulega klæddur í sport-jakka úr tveed, hvíta skyrtu, með dökkt bindi og í gráum hnjábuxum — hnjá- buxum sem hafa kostað fleiri en ein slagsmál í skólanum. I hendinni er hann með stóra brúna leðurtösku, sem hann hefur límt á miða frá ýmsum stöðum sem hann hefur heim- sótt, svo sem Gstaad, sem er vinsæll Svissneskur skíðastaður, og Aþenu. „Þarna er hann! Þarna er John-John! Halló, John-John!“ lirópar einhver þeirra, sem hafa stillt sér upp hinum megin götunnar til að vera viðstaddur, þegar einhver Kennedy-inn kemur út úr íbúðinni. Ef John er í góðu skapi brosir hann feimnislega, en annars á hann það til að gretta sig dlilega eða hreinlega að hlaupa á ný inn í húsið; þá sækir barnfóstr- an hann aftur. Síðan er haldið í skólann, sem er í hinum enda borgarinnar, og ekið í stórum rjómagulum Oldsmobile. Jafnskjótt og John er kominn inn í skólann vherfur fylgdarlið hans og enginn veit hvar það heldur sig þangað til klukkan fjögur á daginn, en þá kemur sama liðið aftur og fer með hann heim. John segir að sér finnist meira gaman að leika fótbolta en læra, en það virðist eins og hann hafi ánægju af því að skrifa. Hann skrifaði hluta af látbragðsleik, sem bekkurinn gerði, um flugdreka, og las söguna meðan nokkrir félagar hans hlupu um sviðið og þóttust vera flugdrekar. Carolvn D‘- Framhald á bls. 33. 2!>. tbi. VIKAN 47

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.