Vikan


Vikan - 21.08.1969, Blaðsíða 8

Vikan - 21.08.1969, Blaðsíða 8
TRUCK EKíMEl CAAWCl >av a&H)* VW U'#'A < -(OOlO< ^PáBÍÍiP f -•■•)í >.«>:■: F. ^CO^-VTf”: NQ.3Ö -jMiTT^UNj fcftA? öftAV **«.U. J.fAT.OfC BILALOKK grunnfyllir, spartl, þynnir, slípimassi, vinyllakk, málmhreinsiefni, álgrunnur, silicone hreinsiefni (•MjrflzGM r 'n Uarltfiíark urðir ýhHi- tr Útikuriir H Ö. VILHJÁLMSSDN RÁNARGÖTU ’2 SÍMI 19669 V Með sólgleraugu á veitingahúsi Kæri draumráðandi! Fyrir nokkru dreymdi mig draum sem mig langar til að fá ráðinn. Hann er svona: Mér þótti ég vena stödd á veitingahúsi ásamt fleira fólki. Við hlið mér sat einn vina minna. Ég sá eitthvað illa og talaði um að fá mér gleraugu, en þá rétti þessi vinur minn mér glerlaugun sín og bað mig að reyna þau. Þegar ég hafði sett þau upp, sá ég mjög vel og var allt bjart — sem mér fannst skrýtið því gleraugun voru dökk. Síðan þótti mér ég vera á leið heim til mín frá þessum sama pilti, og var mun styttra milli heimila okkar í draumn- um en í veruleikanum. Leiðin var mjög erfið, mishæðótt og grýtt. Þegar heim kom var pilt- urinn þar, og ég talaði um hve leiðin hafi verið slæm. Hann svarar því til að bráðum verði hún rudd, og allt verði betra. Síðan fannst mér við fara heim til hans, þessa sömu leið, en þá var búið að ryðja burt öllu grjótinu og leiðin slétt og jöfn. Meira man ég ekki. Með fyrirfram þökk. Gló. Þetta er nokkuð merkilegur draumur, og vil ég ráða hann á þessa leið: Þér mun brátt verða sýnd óvild af einhverjum mönn- um, og munu þeir gera allt sem þeir geta til að slá ryki í augu þér. Það mun takast, en fyrir atbeina einhvers vinar þins, sennilega piltsins sem þú talar um, fer allt betur en á horfir. Vertu samt við öllu búin. Húsið sem hrundi Kæri draumráðandi! Um daginn dreymdi mig held- ur óhugnanlegan draum, sem ég hef ekki getað gleymt. Mig dreymdi, að ég vaknaði um miðja nótt við ákafan jarð- skjálfta. Eg fann hvernig húsið riðaði og varð skelfingu lostinn. Ég hljóp í hendingskasti alla leið út á götu og það meira að segja á náttfötunum. Þegar þangað kom, sá ég að húsið lék enn á reiðiskjálfi og sömuleiðis húsið við hliðina. Hins vegar virtust önnur hús í götunni ekki hreyfast neitt og vakti það undrun mína. Mér fannst ég standa þarna úti á miðri göt- unni talsvert lengi og hafði sam- vizkubit út af því að hafa ekki vakið fjölskyldu mína og hugsað um það eitt að bjarga sjálfum mér en engum öðrum. Mér datt í hug að fara aftur inn og vekja konu mína, börn og fleiri í hús- inu, en gat ekki hreyft mig úr sporunum hvernig sem ég reyndi. Jarðskjálftinn fór alltaf vaxandi og allt í einu sé ég hvar húsið við hliðina tekur að liðast sundur hægt og hægt, hrynur síðan til grunna og er orðið rústir einar. Hins vegar stóð húsið mitt enn uppi og þótti mér það harla kynlegt. Ég hljóp inn, en allir voru enn í fasta svefni og var það enn eitt atriði til viðbótar sem vakti undrun mína. Hvernig gat fólkið sofið, meðan jörðin gekk í bylgjum undir því og meira að segja heilt hús hafði hrunið til grunna? Ég vakti konu mína til að segja henni tíðindin. Hún var syfjuð og úrill og trúði ekki orði af því, sem ég var að segja henni. Ég bað hana þá að koma að glugganum og sjá hús ná- grannans, sem væri í rústum. Loksins fékk ég hana til að líta út um gluggann. Og viti menn: Húsið stóð uppi eins og ekkert hefði gerzt! Lengri varð draumurinn ekki. Með beztu kveðju og von um ráðningu sem fyrst. Hallur. Að dreyma mikinn jarðskjálfta boðar einhverja breytingu á kjörum viðkomandi, oft til batn- aðar, en tíðum yfirvofandi hættu. Þessi draumur táknar því líklega erfiðleika og ógæfu, sem mun steðja að nágrannafólki ykkar eða einhverjum nákomn- um ættingjum. Liklega er þó ekki um dauðsfall að ræða, — heldur ólán, sem verður fljótt bætt aftur. Sökkvandi brúðarkjóll Kæri draumráðandi! Mig langar til að fá þennan draum ráðinn, en mömmu hef- ur dreymt hann tvisvar. Henni fannst ég ætla að fara að gifta mig, og var hún að sauma brúðarkjólinn úti í skipi, og var að máta blússuna, sem var hvít með löngum ermum og öll í blúndum. Þá sökk skipið og pilsið með því, en við björg- uðumst með blússuna. Með fyrirfram þakklæti fyrir ráðninguna. Virðingarfyllst, MS. Því miður boðar þessi draum- ur engin gleðlitíðindi, en með lagni og þrautseigju ætti að vera hægt að yfirstíga örðugleikana. 8 VIKAN 34. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.