Vikan - 26.11.1970, Blaðsíða 11
• Papillon var minniháttar glæpamaður í París og fékk kenningarnafn sitt af fiðrildi, sem hann hafði flúr-
að á sig neðan við hálsmál.
• Nú er hann kominn í bókmenntasöguna. Bókin, sem hann skrifaði um hinar mörgu flóttatilraunir sínar
frá fanganýlendunni í frönsku Gvæönu, þar sem honum var ætlað að dúsa alla ævi, er orðin heimsbók-
menntir.
v
• Gagnrýnendurnir hefja hann til skýjanna. Milljón eintök hafa selzt í Frakklandi einu. Bráðum verður
bókin kvikmynduð með Belmondo í aðalhlutverki.
tiu og tvo mánuði. Á þeim tíma talaði hann
alls fjögur orð við aðra mannlega veru. Fé-
lagsskap hafði hann þá ekki annan en eitr-
aðar köngulær og þúsundfætlur, sem féllu
niður á hann gegnum grindaþakið á nótt-
unni. Stundum bitu þær hann og fékk hann
af því hitasótt. Að hann hélt heilsu og söns-
um þennan tíma var einkum því að þakka,
að hann kom sér upp þjálfunarkerfi fyrir
bæði huga og líkama, og þjálfaði sig sam-
kvæmt þvi í átján tima á sólarhring.
Hann neitaði að gefast upp.
Sú flóttatilraun hans sem loksins heppn-
aðist var sú níunda í röðinni. Þá lét hann
sig reka til meginlandsins á tveimur saman-
bundnum pokum með kókoshnetum. Hann
var á reki í sextíu klukkustundir, skað-
brenndur af sólinni og bjóst á hverju andar-
taki við að finna einhvern hákarlinn klippa
af sér fæturna. En hann komst á land í Gvæ-
önu og siðan til Venesúelu, þar sem hann
um síðir fékk aðstöðu til að byrja nýtt líf.
Nú hefur Papillon skrifað bók um ævin-
týri sín. Bók sem hefur komið út í Frakk-
landi í nærri milljón eintaka, og hefur eng-
in bók önnur náð slíkri útbreiðslu þar nema
Biblían. Bókin hefur aukheldur verið þýdd
á fjölda tungumála og víðast verið með
þeim efstu á sölulistanum. Útbreiðslu sína
á bókin ekki hvað sízt að þakka öllum æv-
intýrunum, sem þar segir frá, og afhjúpun
þeirrar hryllilegu meðferðar, sem fangarnir
á refsinýlendum Frakka í Vesturheimi voru
látnir sæta. Það var fyrst 1955, að bannað
var að flytja refsifanga þangað vestur.
Vinsældir bókarinnar stafa þó líklega engu
síður af Papillon sjálfum, þessum óvenju
litríka persónuleika, sem lesandinn kynnist
smátt og smátt. Hann er ótrúlegur maður,
sem heldur út hvers konar ógnir og ríg-
heldur sér í lífið fullur ástríðu, gleði og
hræðilegs haturs. Hann skynjar tilveruna af
óslitinni skerpu í öllum sveiflum hennar,
allt frá dýpstu niðurlægingu í dýflissum
landa sinna til exótískrar sælu Indíána-
þorpsins.
Jafnvel ströngustu gagnrýnendur hefja til
skýjanna lifandi, mergjað málið í bók Hen-
48. tbi. VIKANll