Vikan - 26.11.1970, Blaðsíða 27
Höfundar leiksins: Gerome Ragni, Galt MacDermot
og James Rado.
■
hár hárið hárið
létta
þétta
lætur drottinn spretta
á mér.
Ég vil að hárið flaksist
faxi líkast stríðu síðu
glampi skíni glói grói
kvíslist hríslist hringist stingist
liðað lokkáð hrokkið
úfið og hringsnúið
sléttist þéttist og margfléttist
vefjist trefjist hefjist og uppbrettist.
En geturðu séð í mér augun
er hár mitt alltof stutt?
Hættir hér
hingað nær
þangað nær
niðrá tær
ef vaxa fær.
Dú dú dú dú dú dú dú dú dú dú dú
dú dú dú dú dú dú dú dú dú dú.
Glasabræður grípur æði
er þeir sjá mitt síða klæði
sem ég óf úr brilljantínbornu
biblíuhári.
Eins hár og herrann bar það
hallelúja fagurt var það
hallelúja María elskað' ‘ann
hví ann mér engin móðir?
Hár hár
hár hár hár
hár hárið hárið
létta þétta
lætur drottinn spretta
á mér.
Frank Mills
Ég hitti strák sem hét Frank Mills
það var tólfta september hérna utan við
stöðina
en ég veit því miður ekkert um dvalarstað
hans.
Til hans sást síðast með trommara
sem er líkur George Harrison, einum
Bítlanna
en hann var með hárið bundinn í lítinn stert.
Ég elsk' ‘ann, en ég er feimin við það
að leiða hann niðrí bæ.
Hann býr víst upp í Brooklyn
og er með hvítan skjólhjálm.
Er með gullkeðjur á leðurjakkanum
en á bakinu sjást þessi nöfn:
,,Mary“ og „mamma“ og „Hell's Angels“.
Mér þætti vænt um það ef einhver ykkar
segði honum frá mér
að við verðum uppi í garði við tvær
og við kærum okkur ekki um
að fá peningana aftur . . .
en hann.
Hvað ræður för? (Where do I go?)
Hvað ræður för?
Fylgi ég ánni?
Hvað ræður för?
Fer mávsins leið.
Bíður mín eitthvað?
Bíður mín einhver?
Hví veit ég ei
hvers vegn' ég lifi og dey?
Benda mér leið
barnanna andlit.
Benda mér leið
bros þeirra hýr.
Eiga þau svarið
andlitin ljúfu?
Hvers vegna veit ég ei
hvers vegna ég lifi og dey?
Framhald á bls. 50
Festar, blóm, frelsi, hamingja, friður!
48. tbi. VIKAN 27