Vikan


Vikan - 25.02.1971, Page 5

Vikan - 25.02.1971, Page 5
leppstjórn Suður-Víetnams. Þannig byrjaði styrjöldin. Hversu friðsaelt land var Suður- Víetnam fyrir styrjöldina? Eilífir bardagar og erjur. Og hversu margar leppríkisstjórnir voru í Ví- etnam frá því tveimur árum fyrir stríðið þangað til einu ári eftir byrjun stríðsins? Bréfritari eetti að kynna sér það. Að lokum vil ég ekki viður- kenna að kommúnismi sé arftaki nasismans, enda ekki hægt að llkja saman. Sumir segja nasisma ennþá hér í heimi og þá fyrir vestan járntjald. Ég læt svo staðar numið í bili og þakka fyrir allt gott á liðnum árum. B.C. Ein yfir þrítugt hefur sannarlega ekki talaS fyrir daufum eyrum, því að bréfin streyma inn til svars við hennar bréfi. — Það er ekki rétt hjá þér að meint árás Norður-Víet- nama á bandarísk skip á Tonkín- flóa hafi orðið upphaf stríðsins sjálfs; það var þá þegar komið í fullan gang. Hinsvegar notuðu Bandaríkjamenn „árás" þessa sem yfirvarp til að hefja lofthernað gegn Norður-Víetnam. Rithandar- sérfræðingur Kæri Póstur! Er ekki einhver rithandarsér- fræðingur til hér á landi? Viltu vera svo góður að birta nafn hans og heimilisfang og hvað það kost- ar? Með fyrirfram þökk og vonast eftir svari sem fyrst. H.S. Okkur er kunnugt um að minnsta kosti einn rithandarsér- fræðing hér í borg. Hún heitir Unnur Þorsteinsdóttir og er til heimilis á Hofsvallagötu 18, Reykjavík. Sjálf mundi hún að sjálfsögðu gefa þér upplýsingar um verð, ef þú hefðir samband við hana bréfleiðis eða símleiðis. Svar til M.M. Á þessum rauðsokkutímum telst það ekki lengur nein goðgá að kvenfólk sýni visst framtak í skiptum við hitt kynið. Þér ætti því alveg að vera óhætt að gefa þig á tal við drenginn að fyrra bragði; það spillir varla neinu. Þá ætti að koma í Ijós hvort í raun og veru er um feimni að ræða hjá honum, eða þá bara að hann hafi ekki áhuga á frekara sambandi við þig. Á aldurinn viljum við ekki gizka, en eftir skriftinni að dæma ertu ennþá nokkuð mikið barn. Svar til „Einnar forvitinnar“ 1. Hann er fæddur í Reykjavík. 2. í Reykjavík. 3. Hann kallar þau pabba og mömmu. 4. í fyrra og eins fyrir þremur árum. 5. En sú spurning! 6. Já, en hver sagði að það væri ákveðið — þetta með plötuna. 7. Mörgum. P.S. Þokkalegt, takk! Chelsea og Everton unnu Kæri Póstur! Ég lenti I deilu við nokkra vini mína fyrir stuttu, og langar mig til að biðja þig að skera úr henni fyrir okkur. Þeir halda því fram, að Leeds hafi orðið Eng- landsmeistarar I fyrra og Everton bikarmeistarar, en ég held að Everton hafi sigrað I deildarkeppn- inni og því orðið Englandsmeist- arar, en Chelsea hafi orðið bikar- meistarar eftir að hafa sigrað Leeds I öðrum leik þeirra um þann titil. Ég vona svo að þú birtir sem fyrst, hvort ég eða þeir hafi rétt fyrir sér. Með fyrirfram þökk. Stefán Hreiðarsson frá Akureyri. Þú hefur hárétt fyrir þér. Chelsea vann Leeds í bikarkeppn- inni í öðrum leik, sem fram fór á Old Trafford, leikvangi Manchester United. Og Everton vann deildar- keppnina með yfirburðum. Hálfasnaleg spurning Kæri Póstur minn! Ég hef einu sinni skrifað Póst- inum áður og fékk ágæft svar við þeirri spurningu. Ég skrifa þér aftur og vona að þetta bréf lendi ekki í ruslakörfunni, þótt þetta sé hálfasnaleg spurning. Ég er hrifinn af stelpu sem er kölluð Kæa. Hún veit alveg að ég er hrifinn af henni því við erum oft Sð labba saman og fara í leigubda þegar við eigum pening, en hún vill ekki að ég kyssi hana og ég held þess vegna að hún sé ekki hrifin af mér. Svenni Pálsson. Hárétt hjá þér. ^AN^ASTER HINAR HEIMSÞEKKTU SNYRTIVÖRUR ERU NÚ FÁANLEGAR AFTUR. EINKUNNARORÐ LANCASTER ERU: STÖÐVIÐ ÁHRIF TÍMANS Á HÚÐ YÐAR. LANCASTER FRAMLEIÐIR FJÖLDA SÉRKREMA. svo sem: Juvenile skin — dag og næturkrem fyrir ofnæmishúð. Créme Tissulaire — extra rakagefandi og húðstyrkjandi. Embryonnaire — Hrukkukrem Lait Hydratant — Rakamjólk til hreinsunar og næríngar. Augnpokakrem — Augnhrukkukrem. Augnháranæringu — Hálskrem. SENDUM í PÓSTKRÖFU. Laugavegi 19 Adeies beztii soyrti- voramar BANKASTRÆTI 3. s. tw. VIKAN 5

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.