Vikan


Vikan - 25.02.1971, Side 8

Vikan - 25.02.1971, Side 8
Það kemiir oft fyrir að verða menn astfanmir £ ' ö atmer í kvikmyndahúsum um allan heim er nú verið að sýna mynd- ina hennar, „Á göngu i vorregn- inu“. Það er saga miðaldra konu, sem finnur ástina. — En þegar blaðamaðurinn hittir Ingrid Bergman í París, þá fellur ekkert vorregn, sólin sendir föla geisla sína gegnum hlaðlausar greinar trjánna á Boulevard Maleshehes. Hún situr í bláum stól, reiðubú- in að svara spurningum. Það er orðið nokkuð sjaldgæft fyrir Ingrid Bergman, þvi hún er fyr- ir löngu orðin þreytt á blaðavið- tölum, og lætur sjaldan til leið- ast að tala við blaðamenn. En þarna silur hún nú samt, í notalegri stofu bak við skrif- stofu mannsins síns í París. Hún er í svartri buxnadragt með stórt hálsmen úr gulli. Hún hlær oft, hátt og glaðlega, það er greini- legt að hún er í fullu jafnvægi. Fáar leikkonur hafa orðið fyrir eins miklum árekstrum í lífinu og Ingrid Bergman. Nú er hún komin yfir alla erfiðleika og í örugga höfn og það sést greini- lega á henni. —- Nú hef ég allt sem ég óska mér. Börnin min. Vinnu mina. Ég óttast ekki ellina, hugsa hreint ekki uin hana. Þegar ég vinn, finnst mér ég ekki eldri en átján ára. Þegar ég ej- ekki að vinna að kvikmynd, þá ferðast ég. Það eru aðeins þær konur sem lítið hafa að gei-a, sem eru hræddar við ellina, þær sem hafa nógan tíma til að líta í spegil. Og . . . ég get aldrei vei'ið ósátl við nokkra manneskju. — Hvers vegna ekki? — Vegna þess að ég gleymi alltaf þvi sem ég varð reið yfir! Svo hlær hún hjartanlega, þessum táknræna Ingi'id Berg- man hlátri, kastar höfðinu aftur á bak. Hún beygir sig fram, tek- ur nýja sígai'ettu úr öskju á borðinu og strýkur fingrunum Ingrid Bergman veitir sjaldan viðtöl. En sænskur blaðamaður var svo heppinn að hitta hana í París. Þrátt fyrir mikla persónu- lega erfiðleika og mikla vinnu er hún nú mjög hamingjusöm kona. Sjálf segir hún: — Ég hef nú allt sem ein kona getur óskað sér og ég óttast ekki ellina. Það er aðeins eitt vandamál, sem aldurinn hefur í för með sér: ég á erfitt með að fá hlutverk við mitt hæfi. gegnum hárið. Það er mjög óvenjulegt að sjá konur gera það, flestar eru hræddar við að aflaga hárgreiðsluna. — Ingi'id Bergman er ákaflega fi'jálsleg. — Það eru reyndar vandamál Ýegna aldursins. Það eru svo fá hlutverk sem henta mér. Ég lief nú verið að svipast um eflir hlut- verki i eitt og hálft ái*, en ekki fengið neitt við mitt hæfi. — Hvers konar hlutverlc vilj- ið þér fá? — Það veit ég ekki. Ég les handrit og skyndilega finn ég að þelta er fyrir mig. En þessi ný- tizkulegu handrit eru hræðileg. í fyrsta lagi eru þau skrifuð að- allega fyrir karlmenn. Og sé ein- hver kona með í leiknum, þá er hún afbrigðileg á einlivern hátt. Ég vil ekki leika slikar konur. — En yður líkaði vel við „Á göngu í vorregninu“.... — Já, það veit hamingjan, Ég vil ekki leika hlutverk, þar sem 8 VIKAN 8- tbl- ég þarf að gera mig yngri cn ég er. Ég sat fyrir utan húsið okk- ar í sveitinni, hér fyrir utan París, eitl kvöldið. Þá var hringt til mín frá Hollywood og þeir vildu að ég tæki að mér hlutverk í „Kaktusblóminu“. Það gerði ég reyndar síðar. En ég svaraði: Nei, það get ég ekki, ég er of gömul. — Fjárinn hafi það, sögðu þeir, — það eruð þér alls ekki. En ég svaraði: — Ég vil ekki láta ykkur kaupa köttinn í sekkn- um. Það þýðir ekkert fyrir ykk- ur að skoða gamlar myndir af mér. Það er langt síðan ég lék í þessum myndum. Ég er eldri núna. Svo neyddi ég þá lil að koma til Parísar og lita á mig. Ég þorði hreinlega ekki að fara til Hollywood aðeins til að láta þá sjá að ég var tíu árum eldri en þeir höfðu liugsað sér. Ég man að þeir komu einn föstu- dag og það var 13. dagur mán- aðarins. Ég stillti mér hér út í dagsljósið og sagði eins og Mar- lene Dietrich sagði einu sinni: -— Look over me closely. At- hugið mig nákvæmlega. Það gerðu þeir. Og leikstjór- inn sagði: — Þér getið verið ró- leg, við höfum mjög góða myndatökumenn. Allir snúa sér við á götunni. Ingrid Bergman stendur þarna á miðju gólfi í dagsbirtunni. Hún sýnir livernig hún lét hina liáu herra frá Hollywood sjá andlit sitt. Hún er ákaflega lifandi persónuleiki. Og þegar hún lief- ur sagt þessa óvenjulegu sögu um hvernig þeir virtu fyrir sér hrukkur leikkonunnar, lilær hún glaðlega. Svo förum við út til hádegis- verðar. Ingrid Bergman fer i jakka, sem nær niður á mið læri. Allir snúa sér við á göt- unni, til að liorfa á hana. Hún er svo vön því að hún virðist ekki taka eftir því. — Já, ég naut þess að leika Libby í „Á göngu í vorregninu“. Konan i sögunni liafði verið gift i þrjátiu ár. Nú var hún ástfang- in aftur og hann sem hún elsk- aði kenndi henni að njóta feg- urðar náttúrunnar. . . . Og þessi maður sem elskar hana, segir að hún sé falleg. Hún er hamingju- söm. Hún veit samt að liún er orðin of gömul og henni finnst sjálfri þetta ástand vera kátbros- legt. — Var það rangt af henni að fara aftur til mannsins síns? — Nei, það var rétt. Hann þarfnaðist hennar og liún gat ekki slitið sig frá honum. Þau voru orðin svo vön livort öðru. Við sitjum í þægilegu rökkri á veitingastofu við Faubourg Saint Honoré. Yfirþjónninn ljóm- ar, þegar hann sér Ingrid Berg- Framhald á bls. 30 8. tbi. VIKAN 9

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.