Vikan


Vikan - 25.02.1971, Blaðsíða 15

Vikan - 25.02.1971, Blaðsíða 15
Einu sinni i viku fer Agatha Christie til London, til að líta eftir fyrirtæki sínu þar. Þá gistir hún í glæsilegu húsi sem hún á í skemmtilegu hverfi við Kensington Road. En skemmti- legast finnst henni að búa í þriðja húsinu, fallegu landsetri í stil Önnu drottningar, nálægt háskólabænum Oxford í þorp- inu Wallingford. Við þetta hús er undurfallegur garður og því heyrir einnig til gríðarmikið landsvæði, sem liggur niður að bökkum Thames árinnar. Aft innan myndi þetta hús koma iesendum Agöthu Christie kunnuglega fyrir sjónir. Þar eru þung húsgögn úr maghony og eik, dökk olíumálverk, mjúk hægindi, arinhillur fullar af blómavösum, skrautmunum og postulínshlutum. Veggirnir eru þaktir bókum, alls staðar eru speglar og glerskápar fullir af verðmætu postulíni, kristals- vösum og' smástyttum. Einkaskrifstofa hennar ersvo hlaðin bókum og dýrmætum hlutum, frá löngu liðnum tím- um, að það er mesta furða hve liðlega hin hávaxna og íeit- lagna kona getur hreyft sig innan um allt þetta dót. Hér er hún hamingjusöm, og sú hamingja hefur staðið í öll þau fjörutíu ár, sem hún hefur búið í hjónabandi með síðari eiginmanni sínum, Sir Max Lu- cien Maliowan. Sir Max er þrettán árum yngri en hún og er einna fræg- astur brezkra fornleifafræð- inga. Hann hefur orðið mjög þekktur fyrir uppgröft og rannsóknir fornleifa í Persiu og Irak, hann er prófessor i fornleifafræði og hefur skrifað metsölubækur um fornleifar. Þessi virðulegu öldruðu hjón búa saman í sátt og samlyndi og því einstaka jafnvægi. sem er táknrænt fyrir brezka land- uðalinn. Þau borða bæði, eftir þvi sem Agatha Christie segir, „óskynsamlega mikið“ og hún drekkur mikið te. Sir Max dundar við að ráða krossgátur i frístundum og Ag- atha Christie prjónar daginn út og daginn inn. Svo hefur hún líka yndi af að mála eftir myndum af gömlum postulins- vösum frá Dresden. Hún hefur líka gaman af að búa til góð- an mat, íinnur þá sjálf upp sór- staka rétti. ,,Það er mjög gott til aö þroska hjá sér sköpunar- hæfileika," segir hún. Svo kernur að því að hún rífur sig upp úr prjónaskapn- um og lokar sig inni í róleg- asta herberginu í húsinu. Á ótrúlega skömmum tima. frá sex upp í tuttugu og einn dag, pikkar hún með þrem íingrum, beint á ritvélina. þessi 70.000 orð, sem sögur hennar saman- standa venjulega af. Þegar hún hefur sett síðasta punktinn á næstu metsölubúk tl>a»kur hennar eru yfirleitt metsölu- bækur), þá hnigur skáldkonan uppgefin i rúmið, þar sem hún heldur sig venjulega i eina viku. Hún segir: Ég hugsa venjulega i hálft ár um það sem bókin á að fjalla um. Ég tala aldrei um efni bókanna við manninn minn. Þegar maður hefur hugs- að svo lengi um ákveðið efni. er það mjög auðvelt að koma því á pappirinn. Henni finnst mjög þægilegt, þegar eiginmaður hennar vinn- ur að bók samtímis. Þá fer hann í hinn enda hússins og þau trufla ekki hvort annað. Okkur finnst bezt að skrifa á veturna, þá erum við frjáls þegar vorar og garðurinn stendur í blóma. En vorgróðurinn vekur jafn- an hjá Agöthu Christie löngun eftir Austurlöndum, eftir ferða- lögum með járnbrautarlestum. Hún heíur alla tíð haít mikið dálæti á lestarferðum, enda liafa margar af söguhetjum hennar látið lífið í járnbraut- arlestum. Á hverju vori í fjörutíu ára hjónabandi hafa þau Agatha Christie og Sir Max farið ti) Austurlanda nær, til að vinna að uppgreftri. Á hverju ári er undanfari þeirra ferða hálfgerð hrollvekja, Agatha Christie þarf að kaupa sér föt! Þegar þetta stendur fyrir dyrum. veiður hún ein tauga- Þegar hún giftistfornleifafræðingnum Sir Max Mallowan árið 1930, hafði hún mikinn áhuga á fornleifafræði. Síðan hefir hún alltaf að- stoðað hann við uppgröftinn og tekið allar myndir fyrir hann. Þessi mynd var tekin af Agöthu Christie með dótturinni Rosa- lind árið 1923. Þá var hjónaband hennar og Christie ofursta mjög hamingjusamt. hrúga: hún vefur verðmætn perlufesti sinni alveg upp að undirhökunni. snýr hringjun- um í ofvæni á fingrum sér. strýkur gegnum silfurgrátt hár- ið og angistin skin úr mildum augunum. Ég hef andstyggð á þeim fötum sem ég sé í verzlunum. Fatakaup eru hreinasta mar- tröð fyrir mig og þessi martröð varir í viku. Það er ekkert að hafa fyrir konur af minni stærð, annað en þessar silki- flíkur, eins og drottningar- móðirin klæðist. Það er ekki hægt að nota slíkt í persnesku eyðimörkinni! Svo kemur síðari hrollvekj- an, þegar hjónin þurfa að loka töskunum sínum. Einkaritar- ínn Charlotte og frú Benson, ráðskonan, hjálpa til við það. Við höfum eins margar tösk- ur og mögulegt er, segir Ag- atha Christie. Við fvllum þær með bókum. Þá dettur okkur í hug að líklega þyrft- um við að hafa að minnsta kosti tannbursta og einhver föt. Við skiljum þá eftir eitt- hvað aí bókunum og setjum föt í lokið. Maðurinn minn er ekkert á því að skilja eftir eitt- hvað af bókunum, en hann verður að láta sig. Og svo seg- ir hann glettnislega: — Það er bezt að þú lokir töskunum. þú getur sezt á þær. Ef það lokar þeim ekki, þá getur ekkert í veröldinni komið lokunum á sinn stað! Finnst ykkur hann ekki háttvís? Hún hefur orðið frekar mannfælin vegna líkamsstærð- ar sinnar. — Það er lán að ég skuli vera orðin svona gömul, segir hún. — ÍSg hef tamið mér þ^ð með árunum að láta þetta ekki fá svo mikið á mig, en ef það kemur eitthvað til tals, þá verð ég bjánalega klaufaleg. Hún hlær þegar hún segir frá tilraunum sínum til að losna við feimnina. Hún hvorki reykti eða neytti áfengis. Fyr- ir 40 árum reyndi hún að líkj- ast öðrum konum og vera svo- litið í tízkunni og píndi sig til að reykja í hálft ár. — En sú tilþaun misheppnaðist alger- lega, segir hún. ^annig fór það líka, þegar hún ætlaði að reyna að venja sig á víndrykkju. Árið 1928, þegar hún var þrjátíu og átta ára, kynntist hún Sir Max. Hann reyndi að koma henni á bragðið, fá hana til að kynnast góðum víntegundum og fá smekk fyrir gömlu viský en Framhald á bls. 33. 8. tw. VIKAN 15

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.