Vikan


Vikan - 25.02.1971, Síða 18

Vikan - 25.02.1971, Síða 18
Kit þrýsti henni svo fast að sér að hún náöi varla andanum og hann gróf andlitið í skínandi hári hennar. - Ég kem aftur, hvíslaöi hann í ákafa og hljóöfallið í rödd hans var sem fyrir- heit. -- Ég kem aftur! — Nei, síður en svo, það var bara átylla, til að láta kalla þaer heim. Hann er að vona að hann fái annarrar hvorrar, til að verða ríkur. Damaris hrukk- aði enriið. — Ég held hann hljóti að vera mjög heimskur, því að hann gerir ekkert til að koma sér vel hjá föður systr- anna. Það geta allir séð að Charnwood fyrirlítur hann. — Og hann hefur fullkomna ástæðu til þess! Chamwood gefur aldrei þessum apaketti dóttur sína. Jafnvel hér í Port Royal geta systurnar fengið betra gjaforð. Allt í einu, í fyrsta sinn á ævinni hvarflaði það að Da- maris að einn góðan veðurdag myndi Kit koma með brúði sína heim til Fallowmead. Henni hafði aldrei dottið þetta i hug, því að þótt fullt væri af glæsilegum ungum stúlkum í kringum hann, hafði Kit aldr- ei sýnt neinni annað en venju- lega háttvísi, én nú sá hún að hún hafði ekki verið framsýn. Auðvitað hlaut hann að kvæn- ast einhvern tíma. Hún reyndi að hugsa sér Oliviu Charnwood sem húsmóður á Fallowmead, og hún fann skyndilega fyrir sárri einmanakennd. Hugsunin um þetta ásótti hana stöðugt, en hún reyndi að drekkja henni við undir- búning samkvæmisins. Þegar dagurmn rann upp, var allt klappað og klárt strax um morguhinn, en þá fór hugsun- in um kvonfang Kits að leita á hana aftur. Hún reyndi að full- vissa sjálfa sig um að ekkert væri að óttast, Kit hefði ekki sýnt neinn sérstakan áhuga á ungfrú Charnwood. En þegar henni kom í hug fagurt og ró- legt andlit Oliviu, greip hún spegil og virti fyrir sér sitt eig- ið andlit, — og i fyrsta sinn með nokkurri ánægju. — Rebekka, sagði hún við herbergisþernuna, sem var að hjálpa henni að taka fram föt- in hennar og skartgripi fyrir kvöldið, — finnst þér ég vera lagleg? — Já, það finnst mér! Ábyggilega fallegasta stúlkan á Jamaica. Damaris hélt áfram að at- huga ásjónu sína. — Mary Ritchie er einu ári yngri en ég og hún hefur verið gift í fimm mánuði. Rebekka hristi höfuiðið. — Hvað er nú þetta? Mary hafði bara einn aðdáanda, vesalingurinn, en þér gætuð gift yður á morgun, ef því væri að skipta. — Ég hef enga löngun til að gifta mig, sagði Damaris og gretti sig, en þessi athugasemd beindi huga hennar inn á nýja braut. Olivia var nýkomin til Ja- maica og kunningjar föður hennar voru allir af eldri kyn- slóðinni, en Damaris þekkti yf- irleitt alla unga menn þar um slóðir. Hún ætlaði að reyna að sjá svo um að Olivia kynntist þeim og hún gladdist yfir því að hún hafði verið.svo sniðug að' bjóða nokkrum þeirra til samkvæmisins. Henni varð rórra við þetta og hún gekk út í garðinn, og þar fann Nick Halthrop hana. Þau tóku tal saman, en þegar nafn Kits bar á góma, varð hún aftur róleg. — Veiztu hvað ég var að hugsa, Nick? sagði hún allt i einu. — Að ég sé fegin yfir því að Kit er ekki kvæntur. Þau stóðu upp við lágan múrvegginn, þar sem hún hafði talað við Sii*' Jocelyn Wade. Nick virti fyrir sér jurt sem óx milli steina og sagði svo, með illa duldum ákafa: — Ég vildi óska þess að hann væri kvænt- ur! — Hvers vegna? spurði hún undrandi. —- Því að ef hann ætti konu sjálfur, þá væri hann ekki svona yfirgangssamur hvað þér viðvíkur. Sterklegir, brúnir fingur Nicks kreistu plöntuna í klessu. Það þýðir reyndar ekki neitt að tala um það! hann finnur aldrei konu sem1 hæfir stolti hans, ekki frekar en að hann finnur aldrei nokk- urn mann, sem honum finnst vera þér boðlegur. Þessi hroka- fulli Lucifer skipstjóri. Púh- hú! Nick! Hún var gráti nær. Þú mátt ekki segja neitt þessu líkt við mig. Hann er bróðir minn og ég elska hann. Þessutan er þetta ekki satt. Þú veizt vel að hann fékk þessa nafngift, vegna þess að hann eyddi ekki peningum sínum i vín og konur, eins og margir aðrir. Fólk skilur hann ekki, og þess vegna dæmir það hann hrokafullan, en þú ættir að vita betur. — Það er naumast að þú tekur svari hans, sagði hann með biturri rödd. — Stundum dettur mér í hug að í hjörtum ykkar hafið þið aðeins rúm fyrir hvort annað. — Það er heldur ekki satt. Hún fann að hún hafði sært hann og í ákafa sínum að gera það gott aftur, sagði hún meira en hún ætlaði sér. — Ef þú værir mér ekki svo kær, þá gætirðu sagt hvað sem er, án þess að það snerti mig. En vegna þess hve mér er vel við þig, þykir mér leiðinlegt að vita til þess að þið Kit séuð ósammála. Hún heyrði að hann saup hveljur, og i söriiu andrá lá hún í örmum hans og hann jós yfir hana ástríðufullum orðum, og hún gat með engu móti stöðvað þann örðaflaum. Hún varð bæði undrandi og vandræðaleg, því að enginn hafði komið þannig fram við hana fram að þessu, en hún var ekki nógu skelfd, til að veita mótspyrnu. Það var líka notalegt að finna fyrir sterkum örmum hans, og þegar hann þagnaði, leyfði hún honum að kyssa sig, full trúnaðartrausts eins og barn. Kit hafði farið með Sir Jo- celyn, til að sýna honum plant- ekruna um morguninn og þeg- Framhald á bls. 48. 18 VIKAN 8. tbi.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.