Vikan - 25.02.1971, Side 29
í MÖMMULEIK
Frank Zappa hefur fyrir nokkrum mánuðum
endurstofnað hljómsveit sína „Mothers of In-
vention" og gengur nú mun betur en áður.
Einu sinni hitti ég stúlkukind
sem hafði búið í New York um
tíma, í Þorpinu eins og það
heitir, og þar hafði hún meðal
annars lent á hljómleikum með
Frank Zappa og mæðrunum
hans. Kvenvera þessi var af
amerískri gerð, og þar af leið-
andi fannst henni Zappa ofsa-
lega ,,groovy“, „freaky“, „far
out“, „outasite“ og ég veit ekki
hvað.
Þá vissi ég álíka mikið um
Frank þennan Zappa og aðrir
fslendingar; að þetta var kall-
inn sem lét taka af sér mynd á
meðan hann sat berrassaður á
klósettinu. Fæstum ber saman
um hvað Frank Zappa er að
fara í tónlistarsköpun sinni, en
fáir hafa þrætt við hann um þá
fullyrðingu hans að hann sé þó
nokkuð mörgum árum á undan
sinni samtíð. Sú var ástæðan
fyrir því að hann leysti upp
upprunalegu mömmuhljóm-
sveitina, en Zappa er hálfgerð-
ur einræðisherra í sinni hljóm-
sveit og rekur menn og ræður
þegar honum einum sýnist svo.
Stúlkan sem sagði mér fyrst af
þessum fræga manni minntist
þess helzt af hljómleikunum
sem hún var á, að Zappa mætti
einn þegar hljómleikarnir áttu
að hefjast og sat í tvo tíma (þar
til hinir áttu leið hjá) á svið-
inu, spilaði á bassa og söng, al-
einn. Og einhversstaðar hef ég
séð að stundum eigi þeir (eða
þær) það til að hella úr nátt-
gögnum hver yfir annan, en
enginn hefur viljað staðfesta
slíkan sóðaskap.
Nú í sumar endurreisti Zappa
„Mothers of Invention" og kom
sú hljómsveit í fyrsta skipti
fram á Bath-hátíðinni í Bret-
landi, en þangað fóru Zeppelin
eftir að þeir höfðu verið hér.
(Leiðinleg plata, LZ 3.) Við
komuna til Bretlands var Zappa
spurður að því hvað það hefði
verið sem fékk hann til ,t'
stofna hljómsveitina á ný, ol
koma til Bretlands. Svaraði
hann: „Mikið af peningum!"
Hér á eftir fer viðtal, saman-
sett úr mörgum viðtölum, við
þennan mann, og ætti það að
gefa okkur einhverja smáhug-
mynd um hugsanagang þessa
manns. Annars vil ég eindregið
ráðleggja fólki að hlusta á
Zappa, og þá ekki sízt plötu
hans „Hot Rats“, sem var kjör-
in bezt pródúséraða plata árs-
ins 1970.
í einu viðtali var Zappa
spurður um álit á allri þeirri
gagnrýni sem að honum hefur
verið beint sl. fimm ár.
— Ja, sagði hann, — annað-
hvort semja menn tónlist a!
því að þeim finnst það gaman
eða þá að þá vantar peninga
Það veit enginn af hverju ég er
í þessu og þess vegna draga
menn alls konar ályktaniv af
minni vinnu og þær ályktanir
eru yfirleitt alrangar.
— En vœri þá ekki góð hng-
mynd að bú reyndir að gera
grein fyrir því sem þú ert að
reyna að segja á einfaldan hátt,
til dœmis á plötuumslaginu?
— Aa. Sjáðu til, ég reyndi
það á fyrstu plötunni okkar og
sjáðu hvað skeði. Á umslagið
setti ég lista af nöfnum sem ég
taldi hafa haft áhrif á mig í
tónlistarþroskun minni, til
dæmis Stravinsky, Varese og
fleiri. En það sem skeði var að
næstu fimm árin var sífellt ver-
ið að analýsera þessar plötur
mínar og þessi nöfn voru oft
nefnd. En, þau voru alltaf nefnd
á vitlausum stöðum og sett í
samband á kolvitlausan hátt.
Einhver gagnrýnandi átti til að
halda fram að viss hlutur væri
gerður undir áhrifum af Var-
ese, en þá var það alrangt. Ég
sé ekki tilganginn í að halda
þessu áfram.
— Á þessi hljómsveit að vera
til í einhvern vissan tíma?
— Nei. Hljómsveitir breytast
ef þær þurfa að breytast og ég
er ekki að hafa áhrif á það. í
gömlu hljómsveitinni hætti Ray
Collins þrisvar og byrjaði alltaf
aftur, en það var of erfitt,
því maðurinn var söngvarinn
og ég þurfti sífellt að vera að
endurskipuleggja. Svo einu
sinni þegar hann hætti sá ég
mér leik á borði og neitaði að
taka hann aftur.
Næsta LP-plata Zappa heitir
CHIJNGA og er sögð einskonar
forleikur að viðamesta verk-
efni hans hingað til, en það er
hljómsveitarverk sem ber nafn-
ið „200 Motels“ og verður unn-
ið að einhverju leyti í samvinnu
við Fílharmóníuna í Los Ange-
les undir stjórn hins snjalla
Zolta. Þá verður „200 Motels“
einnig fært í kvikmyndarbún-
ing og fjallar um það líf sem
er samfara rokki og rolli. Frank
segir þetta ganga mjög vel og
kvikmyndun hefur þegar haf-
izt. Þó viðurkenndi hann að að-
ilinn sem hefði ætlað að standa
straum af kostnaði við kvik-
myndina hefði hætt við þegar
hann fékk að sjá það sem þegar
hafði verið tekið. >á hefur
Zappa einnig verið að dunda
við að fullgera kvikmynd sem
ber sama nafn og ein breiðplata
hans, „UNCLE MEAT“. — Hún
er geymd £ kjallaranum heima
hjá mér, segir hann. — Ég á
ekki peninga til að klára hana.
Síðasta LP-plata gömlu mæðr-
anna, „Weasels Rip My Flesh“
var einskonar samnefnari fyrir
allt það sem við eigum ekki
Framhald á bls. 31.
FRANK ZAPPA (fremstur i stól) og Mother of Invention. Frá vinstri:
MARK VOLMAN, söngvari, áður í Turtles; AYNSLEY DLINBAR, trommu-
leikari; JEFF SIMMONS, bassa- og píanóleikari; IAN UNDERWOOD,
slagverk; HOWARD KALEN, söngvari, áður í Turtles og GEORGE DUKE,
trombónleikari. Sjálfur leikur Zappa á gitar og það sem hendinni er næst.
8 tbt. VIKAN 29