Vikan - 25.02.1971, Page 40
Knattspyrnu-
handbókin
óskabók stráka
Ii •
Ql*j
Fæst hjá næsta bóksala
HILMIR HF. SKIPHOLTI 33
POSTHÖLF 533 SIMI 35320 REYKJAVlK
skipti og tvö hundruð og tutt-
ugu gullsaumaðar skyrtur, hver
þeirra metin á um fjörutíu og
átta þúsund krónur.
Lucrezia Borgia ruplaði fjár-
hirzlur Vatíkansins. Það sem
hún tók með sér að heiman
íyllti hundrað og fimmtíu
vagna og var auk þess nóg i
klyfjar á jafnmörg múldýr.
Ríkari brúður en Lucrezia
Borgia hefur varla verið til í
sögunni.
Sjö sinnum . . .
Þann sjötta janúar 1502 steig
hún upp í burðarstól sinn í
Róm og hóf ferðina norður.
Skrúði hennar var úr rauðu
flaueli og gullnu brókaði með
raufarermum, sem náðu niður
að gólfi. Um háls hennar var
festi með gimsteinum, sem
voru á stærð við dúfuegg. Yf-
ir kjólnum hafði hún kápu úr
blóðrauðu flaueli, fóðraða og
bryddaða með hreysikatta-
skinnum. Með henni fór heill
her af þjónum, hirðdömum, að-
alsmönnum og hermönnum. Til
skemmtunar á leiðinni voru
tvö hundruð hljóðfæraleikarar
og hirðfífl, sem brugðu við og
sýndu og létu heyra listir sín-
ar hvenær sem húsmóðirin gaf
merki.
Þetta var brúður sem Alfon-
so d'Este átti ekki að þurfa að
skammast sín fyrir, en því fór
fjarri að hann væri hrifinn.
Þrátt fyrir alla ættgöfgina var
þessi hálfþrítugi hertogi gróf-
gerður groddi, sem til þessa
hafði lítið lagt í vana sinn að
hokra að konum. Ef hann skipti
sér eitthvað af þeim, þá tók
hann stæðilegar og bosmamikl-
ar stúlkur af alþýðunni langt
fram yfir aðrar. Hann var her-
maður góður, og langmesta
yndi hans voru fallbyssur.
Æðsti unaður hans var að
hanna og steypa vopn þessi,
enda orðinn mikill snillingur í
þeirri grein. Sinnti hann iðn
þessari af slíkri alúð að lang-
tímum saman yfirgaf hann kan-
ónuverkstæðið hvorki daga né
nætur, enda í flestum tiltekt-
um líkari járnsmið en aðals-
manni.
Kurteisin bauð að hann kæmi
til móts við brúði sína þegar
á öndverðri leið hennar, en
fyrst þegar Lucrezia átti aðeins
tvær dagleiðir eftir til Ferrara
dróst hann nöldrandi af stað
til móts við hana. Þegar þau
hittust, auðsýndi hann engan
blíðskap, en hellti þess í stað
yfir hana miklu spurningaflóði.
Hún svaraði auðmjúk og greið-
lega, og varð hann þá ánægð-
ur.
Brúðkaupsveizlan í Ferrara
stóð í tvær vikur. Þegar fyrsta
kvöldið sýndi Alfonso brúði
sinni, hvers hún mátti vænta
af honum í hjónabandinu. Þeg-
ar þau stigu á brúðarbeðinn,
þreif hann til hennar orða- og
aðdragandalaust og yfirskyggði
hana sjö sinnum í röð. Þegar
að því loknu reis hann úr
rekkju, klæddist og gekk orða-
laust út í smiðju, þar sem hann
sat við að banga kanónur fram-
undir morgun.
Ekki leið á löngu áður en
hann sendi mestan hluta hirð-
liðs konu sinnar aftur til föður-
húsa hennar; hafði þau orð
um að hann ætlaði ekki að láta
þetta rómverska hyski éta sig
út á húsganginn. Aldrei brást
að hann vitjaði konu sinnar á
kvöldin með svipuðum aðgangi
og í fyrsta skiptið, en annað
hafði hún ekki af honum að
segja nætur eða daga. Henni
fannst tíminn lengi að líða í
kastalanum gamla og skugga-
lega, sem faðir Alfonsos hafði
fengið úngu hjónunum til
íbúðar. Fyrir dóttur Rómar
var Ferrara heldur dapurleg-
ur staður. Hér voru menn smá-
munasamir og gamaldags; til
dæmis var það í lögum her-
togadæmisins að konur voru
teknar af lifi fyrir framhjá-
hald, en karlmennirnir máttu
hins vegar lifa og láta eins og
þeir vildu. Raunar var ekki
teljandi hætta á að Lucrezia
félli fyrir þess háttar freisting-
um; hún hafði beinlínis enga
orku aflögu til þess. Hún var
aum og marin eftir járnsmiðs-
arma eiginmanns síns, sem var
álíka atlotamjúkur og fallbyss-
urnar hans. í september 1502
missti hún fóstur.
Banvæn rós
Smám saman vandist Lucre-
zia lífinu í Ferrara og lærði
að hagnýta sér þess góðu hlið-
ar. íbúar borgarinnar voru
álíka margir og Stór-Reykja-
víkur nú og nærri því eins
margir og sjálfrar Rómar. Þar
var þá einhver bezti háskóli á
ítalíu og þar höfðust við nafn-
fræg skáld og vísindamenn.
Þegar á öðru ári hjónabands-
ins hafði Lucreziu tekizt að
gera sig að miðdepli í samfé-
lagi menntamanna borgarinn-
ar. Kynnin af henni veittu
skáldunum Pietro Bembo og
Ercolo Strozzi innblástur til
eldlegra ástarljóða. Þessi skáld
bæði og fjölmargir aðrir há-
imenntaðir menn voru brenn-
40 VIKAN 8 tbl