Vikan


Vikan - 25.02.1971, Síða 43

Vikan - 25.02.1971, Síða 43
innar hefði Lucrezia í öllu komið fram sem heiðarleg, skynsöm og siðuð höfðings- kona. En æskusyndum hennar var samt ekki gleymt. Hin bjarta, fagra Lucrezia með sakleysislegu brosaugun og nautnalega munninn varð því í augum síðari tíma í senn eng- ill og táknmynd hins illa. ☆ GLEYMDU EF ÞO GETUR Frarrihald af bls. 25. flýja af hólminum og láta kylfu ráða kasti? Nei, hann taldi ráð- legra að vera kyrr og glíma við vandann. Nú valt allt á því, hvað Ingigerði datt í hug að gera og í hvaða tilgangi hún hafði komið. Ellen mátti ekki hitta hana. Ef hún kæmi heim, á meðan Ingi- gerður var enn hér . . . nei, hann varð að gera allt sem hann gat til að koma henni út úr húsinu og það sem allra fyrst. — Segðu Mikaelu, að ég komi aftur eins fljótt og ég get, bað Ingvar. — Og biddu hana að af- saka, að ég skyldi ekki koma inn í stofuna og heilsa upp á vinkonu hennar. En ég er þegar orðinn alltof seinn og verð að flýta mér í vinnuna. Þær vilja hvort sem er áreiðanlega fá að vera einar og tala saman. Ætli sé ekki orðið langt, síðan þær hafa sézt. — O, þið karlmennirnir þurfið nú að tala saman Ifka, þegar þið hittizt, sagði Lajla. Þau hlógu bæði. Hvernig gat nokkur vogað sér að hlæja, þegar hann sjálfur . . . Reiðin sauð í Börje, en honum tókst að hafa hemil á henni og kveðja þau eðlilega. Síðan gekk hann hröðum skrefum inn í vinnu- herbergi sitt. í leiðinni lokaði hann hurðinni að borðstofunni. þrátt mundi Anna koma til að taka fram af borðinu. Hann vlldi ekki, að hún sæi hann. Þjónustufólk er ævinlega miklu skarpara og eftir- tektarsamara en maður heldur. Hann reyndi að látast vera að raða saman skjölum á skrifborð- inu, en hann hafði ekki hugmynd um, hvað hann var að gera. Úr stofunni heyrðist lágt mannamál. Hann hlustaði fullur eftirvænting- ar. Nú var það Ingigerður, sem talaði, en það var ómögulegt að greina orðaskil. Síðan þagnaði hún og sekúndu síðar heyrðist hálfkæft óp og síðan þungur dynkur. Hvað í ósköpunum var að gerast þarna inni? Hann spratt á fætur, snaraðist fram og opnaði stofudyrnar var- lega. Um leið sá hann hvað um var að vera. Mikaela var náföl í andliti. Hún hélt um háls Ingi- gerðar föstu taki, og Ingigerður baðaði út öllum öngum til að losa sig. Hvað höfðu þær sagt? Hvað hafði eiginlega gerzt? — Mikaela! Ingigerður! Eruð þið gengnar af göflunum? Hann greip í öxl Mikaelu og kastaði henni upp að veggnum með ruddalegum tilburðum. Það er ekki ofsögum sagt af þessum viðurstyggilega kvenmanni, hugsaði hann. Þarna ætlaði hún að valda reginhneyksli á hans eigin heimili og gera málið allt helmingi erfiðara en það var nú þegar. Hann skyldi láta hana fá orð í eyra síðar. Hann lyfti Ingigerði varlega upp og hélt utan um hana. — Náðu í koníaksglas fram í skápinn, skipaði hann Mikaelu, án þess að líta á hana. — Og vertu fljót! Mikaela hlýddi orðalaust. Hún varð skelfd við tilhugsunina um það, sem hún hafði nærri því gert. Ekki svo að skilja, að líklegt væri, að átök þeirra hefðu orðið svo alvarleg. ingigerður var sterk- ari en hún og mundi hafa tekizt að losa sig. En Mikaela hafði f raun og veru viljað kyrkja hana. Hvers konar manneskja var hún eiginlega innst inni? Augu henn- ar voru full af tárum, þegar hún rétti Börje koníakið þegjandi. — Hérna, sagði Börje og hélt glasinu upp að vörum Ingigerðar. — Drekktu þetta og þá líður þér betur. Og svo skaltu í guðsbænum flýta þér héðan, hugsaði hann, en það gat hann ekki sagt. Hann lagði handlegginn utan um axlir henni og reyndi að ýta við henni til þess að fá hana til að líta upp. Hún hlaut að hafa fengið tauga- áfall. — Ingigerður, hvíslaði hann. — Ingigerður . . . — Birger! Hún lauk augunum upp í einni svipan. — Birger! Hvernig stendur á því, að þú ert hér? Hvernig viss- irðu, að ég var hér? — Svona, svona, sagði Börje og varð vandræðalegur. — Drekktu nú konjakið og reyndu að róa big. Og segðu mér svo, hvað er eigin- lega um að vera. — Fjárkúgun, svaraði Mikaela, lágt en greinilega. Börje fölnaði, en Ingigerður tók ekki eftir því. — Segðu mér það, bað Ingi- gerður. — Hvernig stendur á þvf, að þú ert allt í einu kominn hing- að? — Ég . . . hóf hann máls, en þagnaði aftur. Síðan sagði hann tannduftið sem gerir gular tennur HVÍTAR með rödd, sem hann reyndi ár- angurslaust að láta hljóma styrka og rólega: — Ég bý hér, Ingigerður. Þetta er heimili mitt. — Heimili þitt? Undrun Ingigerðar varð ekki með orðum lýst. — Þú átt við, að þú . . . og hún . . . Hún leit á Mikaelu hatursfullu augnaráði. — Sonur minn, flýtti Börje sér að segja. — Ekki ég, Ingigerður. — Ó, sagði Ingigerður hægt. — Þú heitir þá alls ekki Birger Rosén. — Nei. — Já. í rauninni grunaði mig það alltaf. En . . . Hún þagnaði og Börje vogaði sér ekki að spyrja, hvað hún hafi ætlað að segja. — Þá vissirðu áðan, að það var ég, sem kom. Ég á við, þegar ég bað þjónustustúlkuna að segýa Mikaelu hvað ég héti. — Já, ég vissi það. Ingigerður hló allt í einu skær- um og dillandi hlátri. — Ja, þér er ekki fisjað saman, það verð ég að segja. Annars skiptir það engu máli lengur. Þú stóðst þig vel, þegar þú bjargaðir okkur úr klfpunni, þegar Sixten — ja, þá heitir hann það væntanlega ekki réttu nafni, eða hvað? En sleppum því. Hins vegar máttu vel vita, að ég hafði ekki hugmynd um þetta þá. Ég kom ekki hingað til þess að ná mér niðri á þér . . . — Heldur aðeins á mér, skaut Mikaela inn í, en hvorugt þeirra hlustaði á hana. — Það var annars gaman, ^að við skyldum hittast einu sinni enn, hélt Ingigerður áfram. — Þú veizt að ég var stúlkan þín, Birger. Bara þín. En þú skilur, að ég varð að hafa öll spjót úti til að geta dregið fram lífið. Þú skilur það, er það ekki? — Jú, ég skil það, svaraði Börje Rickardson og hélt niðri í sér and- anum af spenningi. Táknaði þetta þau gleðilegu tfðindi, að málið væri leyst? Að hann slyppi svona auðveldlega? Hann þorði varla að hugsa hugsunina til enda. — Ég hitti náunga í Gautaborg, og ég ætla að flytjast þangað og gifta mig, sagði Ingigerður og glotti. — Það er ekki hægt að halda áfram að lifa alla ævi eins og við gerðum í Stokkhólmi. Mika- ela virðist líka hafa skilið það. Börje leit eldsnöggt á unnustu sonar síns. — Ég veit ekki allt um hana, það finn ég á mér, sagði hann og rödd hans gerði það að verkum, að Mikaelu rann kalt vatn milli skinns og hörunds. — En ef þú vildir segja mér svolítið um hana, Ingigerður. . . — Já, gerðu það, sagði Mika- ela. — Segðu honum allt, sem þú getur látið þér detta í hug. Þegar þú hefur gert það, kæri ég þig fyrir fjárkúgun og segi síðan konu Börjes og syni allt sem ég veit um hann. Þetta var djarft teflt, en hún varð að reyna það. Og það heppn- aðist. Það varð grafarþögn f stof- unni. — Hvað þessa fjárkúgun snert- ir, sagði Ingigerður loks og yppti öxlum. — Ja, frómt frá sagt, þá sé ég um mig héreftir sem hingað til. Og ég vil ekki gera neitt, sem kemur sér illa fyrir þig, Birger. Þú skilur það? Orð hennar kölluðu fram ein- kennilega tilfinningu í huga Börj- es. Ef Ingigerður væri ekki eins og hún var . . . hvað það væri þá dásamlegt að eiga eiginkonu eins og hana! Hún var heiðarleg og stóð við hlið hans heil og óskipt. Hún gerði engar kröfur, veitti hon- um aðeins þá ást, sem hann þarfn- aðist. En hvað var hann að hugsa! Hann átti Ellen og sfna virðulegu tilveru. Ingigerður var eins og hún var og mundi alltaf vera það. Auk þess ætlaði hún að fara að gifta sig. En það varð heldur ekki hróflað við Mikaelu. Og það var hún, sem átti peninga Per Unos Melanders. — Það er gott, Ingigerður, sagði hann hraðmæltur. — Við skulum ekki tala meira um það. En ég kem kannski einhvern tfma og heilsa upp á þig í Gautaborg. — Þú ert velkominn, saaði Ingi- oerður og augu hennar Ijómuðu. — En nú verð ég að fara. áður en einhver kemur. Ég vil ekki, að þú hafir áhyggjur mín vegna. 8 tbi. VIKAN 43

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.