Vikan - 25.02.1971, Qupperneq 44
Komið og skoðið
úrvalið frá
50/MAIERS
Somvyl veggklæðning, áferðar- Tapisom gólfteppi, einlit og mynztruð.
falleg, endingargóð, hentar alls staðar. Tapisom S-1000 og S-300 í íbúðir.
_ A , Tapisom Super 600 í skrifstofur,stigahús,
Tapiflex gólfdukur, sterkur, skóIa veitingahús.
þægilegur að ganga á.
Sommer teppin hafa alþjóðlegt
vottorð um endingu.
ÓTRÚLEGA STERK
Grensásvegi 22-24
slmar 30280, 32262
En þegar hún var staðin á fæt-
ur og lögð af stað til dyra, sneri
hún sér skyndilega við og hljóp í
fangið á Börje. Hann laut yfir hana
og kyssti hana, en þar sem hann
var sér meðvitandi um návist Mika-
elu þorði hann ekki að gefa. löng-
un sinni lausan tauminn. Ingigerð-
ur var girnileg stúlka, því varð
ekki neitað. En hún gat lagt líf
hans í rúst, ef hún vildi. Og
kannski líka þótt hún vildi það
ekki? Honum fannst að hann yrði
að sýna henni, að hann tæki skiln-
aðinn nærri sér engu síður en hún
og mundi sakna hennar. Hann
faðmaði hana fast og innilega.
— Jæja, sagði Ingigerður og
sleit sig úr fangi hans. — Það
verður erfitt að finna mann, sem
jafnast á við þig. En það þýðir
ekki að fást um það.
— Ég ætla að fylgja þér til
dyra, flýtti Börje sér að segja.
Ingigerður leit andartak á Mika-
elu um leið og hún kvaddi Börje
og sagði:
— Varaðu þig á henni. Láttu
hana ekki komast upp með neitt.
Mikaela yppti öxlum yfir þess-
um háðsyrðum. Hár hennar var
rðnnblautt af svita. Eins og úr óra-
fjarlægð heyrði hún útihurðina
lokast og skildi að Ingigerður var
farin leiðar sinnar. Síðan heyrði
hún fótatak Börjes nálgast aftur,
hægt og þungt og á samri stundu
gerði hún sér grein fyrir, að hið
liðna mundi aldrei gleymast að
fullu, ekki á meðan þau tvö bjuggu
undir sama þaki. Hann vissi ekki
allt um hana, en ef hann færi í
heimsókn til Gautaborgar . . .
Hún settist niður í sófann og
reyndi að róa sig. Hún varð að
herða sig upp. Það þýddi ekki að
leggja árar í bát, úr þv( sem kom-
ið var. Einn sigur hafði hún þó
alla vega unnið: Hún var laus við
Ingigerði, enda þótt hún yrði að
viðurkenna, að það var ekki henni
að þakka. Ef Ingigerður hefði ekki
verið svona hrifin af Börje, hefði
hún aldrei látið undan.
Börje sá hana sitja í sófa og
drúpa höfði, þegar hann gekk inn
í stofuna. Hann gekk beint að
maghónyskápnum.
— Ætli sé ekki bezt, að við tvö
fáum okkur svolítið koníak, sagði
hann skjálfraddaður.
Mikaela hafði ekki minnstu
löngun til að sitja og drekka með
honum, Það gerði þau að eins kon-
ar samsærismönnum. Nei, hún
vildi það ekki. En hún var illa á
sig komin og dauðþreytt eftir
átökin, svo að hún þurfti nauð-
synlega að fá sér hressingu, áður
en móðir Ingvars kæmi heim.
Börja rétti henni glas og settist f
sófann hjá henni.
— Skál, sagði hann þurrlega. —
Eigum við ekki að koma okkur
saman um vopnahlé?
Hann vildi vingast við Mikaelu.
Ekki svo að skilja, að hann væri
hættur við að bregða sér við tæki-
færi ( heimsókn til Gautaborgar,
svona til öryggis að minnsta kosti.
En hann var farinn að þekkja
Mikaelu og hafði kynnzt því, að
hún lét hart mæta hörðu, ef hún
sá sér hag í þvf. Og peningarnir,
blessaðir peningarnir. Þessa litlu
heimsókn til Gautaborgar gat ver-
ið gott að nota svona til áherzlu,
ef þörf gerðist. . .
Hann ætlaði að leggja höndina
yfir axlir Mikaelu í vináttuskyni og
til að undirstrika vopnahléið, En
hún sneri sér að honum um leið
og í sama bili lét hann höndina
síga á bak við sófann í staðinn.
Hann hrópaði upp yfir sig, þeg-
ar fingur hans snertu eitthvað hart.
— Hvað í ósköpunum er þetta?
Hann sneri sér við og lyfti upp
stóru Ijósmyndinni í silfurramm-
anum, brúðkaupsmyndinni. Hann
starði á myndina og síðan á Mika-
elu.
— Ég setti hana þarna, svo að
Ingigerður ræki ekki augun í hana,
sagði Mikaela þreytulega. — Mér
fannst ekki nauðsynlegt, að hún
þekkti þig aftur.
— Þú . . . hóf hann máls, en
þagnaði. Hafði hún reynt að verja
hann þrátt fyrir allt? Eða var það
Ingvars vegna, sem hún hafði gert
þetta, til þess að hann þyrfti ekki
að sjá föður sinn afhjúpaðan? Ef
til vill þekkti hann ekki Mikaelu
eins vel og hann hugði.
— Við tölum ekki meira um
þetta, sagði hann. — Við vitum
það, en það er engin þörf á að
aðrir viti það, ekki satt?
Hún kinkaði kolli. Hún var
þreytt, úrvinda af þreytu. En Ingi-
gerður var farin og hættan var lið-
in hjá. Ingvar mundi ekkert fá að
vita. Hann mundi losna við þá
lífsreynslu að bæði unnusta hans
og faðir brygðust honum. Hann
mundi geta unnað þeim báðum
falslaust eins og hann hafði gert
hingað til. Það skipti mestu máli.
Ingvar og Mikaela gengu í heil-
agt hjónaband tveimur mánuðum
síðar. Þeim hafði tekizt að koma (
veg fyrir umfangsmikið brúðkaup,
eins og Ellen hafði ráðgert . . .
Framhald í næsta blaði.
ÞAÐ VAR BARA
TENNIS
Framhald af bls. 17.
— Hann er ekki jafnslæmur
og ég bjóst við, sagði Mar-
got eftir að við vorum laus við
hann. Hún hló: — Þú ættir
ekki að kalla hann Eggið.
Nokkrum dögum síðar sagði
hún mér að hann hefði komið
inn í búð til sín og spurt eftir
henni. — Hann var að leita
ráða hjá mér og keypti mjög
dýra handtösku, sagði hún er
við snæddum hádegisverð á
ódýrum matsölustað. Við
skrimtum og spöruðum hve-
nær sem við gátum komið því
við, til að geta notað pening-
ana í annað, svo sem föt —
hús og sumarleyfi. — Hann
bauð mér í mat með sér! Hún
skemmti sér en ekki ég.
Nokkrum kvöldum síðar beið
hann mín við útidyrnar mínar.
— Við þurfum að tala svolítið
saman, sagði ég.
— E'g veit um hvað þú ætlar
að ásaka mig, sagði hann. Þeg-
ar hann brosti var eitthvað
undarlegt við hann. Var þetta
undirferli í grænum augum
hans? — Mig langaði til að sjá
hana aftur og bjóst ekki við
að þú hefðir neitt við það að
athuga. Hún er ekki með
hring... .
É'g lét ekki eftir mér að
verða reiður. Hann var svo
sem engin ógnun.
— Ef þú varst á móti því þá
þykir mér það leitt, sagði hann,
en hann leit ekki út fyrir að
meina það og hann drakk síð-
asta bjórinn minn áður en
hann fór.
Margot fékk boðskort sem á
var skrifað með nær ólæsilegri
hönd — á mjög dýrt hausaðan
pappír: „Viltu ekki koma og
vera í Bay View yfir helgina?“
Undirskriftin var Frances Gos-
horn — móðir Eggsins.
— Er hann af ríkum foreldr-
um? spurði Margot. Við vorum
að mála stofuna í íbúðinni
hennar.
— Það efast ég um, svaraði
ég. f háskólanum hafði hann
verið á eldgömlum Ford og
44 VIKAN 8- tbi.