Vikan - 25.02.1971, Blaðsíða 50
í næstu viku
Þeir smíða á vetrum,
en sigla á sumrin
í Nauthólsvíkinni, sem er ekki lengur nothæf
sem baðstaSur Reykvíkinga vegna mengunar,
er friður hópur af strákum, sem fást viS báta-
smiðar og syngja viS raust á meSan þeir
vinna. /EskulýSsráS Reykjavíkur starfrækir
þarna siglingaklúbb og hefur fastan mann
til aS leiðbeina strákunum á hverjum laugar-
dagseftirmiðdegi. Strákarnir smiSa á vetrum,
en sigla á sumrin. Vikan segir frá heimsókn
til þeirra í máli og myndum i næsta blaSi.
Einn
dagur í
listaskóla
Sigurgeir Sigurjóns-
son, sem er viS
Ijósmyndanám í Sví-
þjóð, hefur sent
okkur myndasögu.
ViS birtum spjall við
Sigurgeir skömmu
eftir áramótin, en
myndasagan hans
fjallar um einn dag
í listaskóla.
Snillingur eða brjálæðingur
Denis Hopper er bæSi leikari og leikstjóri og
rísandi stjarna á himni kvikmyndanna. Hann
gerði sína fyrstu- mynd í fyrra með Peter
Fonda í aSalhlutverki og hlaut hún geysigóð-
ar móttökur. Sumir telja, að Denis sé hreinn
snillingur, en aðrir telja hann brjálæðing. Við
segjum nánar frá honum næst.
Álit Svía á fslendingum
Nemendur í blaSamannaháskólanum I Gauta-
borg gáfu nýlega út sérstakt hefti um ísland
af skólablaSinu sínu. Þarna kenndi ýmissa
grasa og var mörg fróðleg klásúlan um land
og þjóð. Nemendurnir gagnrýndu okkur nokk-
uð, en sögðu yfirleitt bæði kost og löst. Nokk-
ur sýnishorn úr blaðinu birtast í næstu Viku.
Hvað færðu
í skatt?
Svarið
í Vikunni
Sigurður Þórðarson,
verkfræðingur, hef
ur gert línurit, sem
sýnir mönnum,
hvað þeir fái í skatt
næst. Svarið við
þessari brennandi
spurningu fæst sem
sagt í næstu Viku.
HITTUMST AFTUR - I NÆSTU VIKU
Hef ég nokkurn tíma gefið þér
ástæðu til að efast um heiðar-
leika minn?
Það var ásökun í rólegum
orðum hans. Nick roðnaði. —
Nei, aldrei, sagði hann lágt. —
Ég bið þig afsökunar, en ef
slík ástæða er fyrir hendi, get
ég ekki skilið hvers vegna ég
get ekki fengið að heyra hana.
— Ég get ekki sagt þér það,
svaraði Kit ákveðinn. — Það
getur verið að þú fáir einhvern
tíma að vita það, og þá veit ég
að þú skilur mig og afstöðu
mína. Nei, hann lyfti höndinni
og stöðvaði orðin á vörum
piltsins, — við tölum ekki
meira um þetta mál. Þú hefur
fengið svar mitt. Þú ræður
sjálfur yfir framtíð þinni, en
Damaris getur ekki orðið kona
þín.
Hann gekk áleiðis að húsinu,
en þegar hann gekk fram hjá
Halthrop, nam hann staðar og
lagði höndina á öxl hans. Svo
sagði hann með einkennileg-
um svip: — Mér þykir þetta
leiðinlegt, Nick. Þú heldur
kannske að ég sé harður og
meðaumkunarlaus, en þar
skjátlast þér. Trúðu mér, ég
skil þig betur en þig grunar.
Hann hélt áfram upp að hús-
inu og þeir stóðu kyrrir og
horfðu á eftir honum. Að lok:
um sagði Alex, eins og hann
væri að hugsa hátt. — Þarna
fer maður sem býr yfir leyni-
legri sorg, byrði, sem hann get-
ur ekki eða vill ekki láta aðra
vita um. Hann andvarpaði og
leit á Nick. — Varaðu þig á
því að brýna hann of mikið,
drengur minn. Þegar maður er
bundinn á píslarbekk, þá getur
hann orðið hættulega reiður.
Kit gekk hægt, og honum
fannst hann allt í einu svo
óendanlega þreyttur. Hve lengi
gat hann haldið út þessa hroða-
legu raun, sem var að gera
honum lífið ómögulegt? Hve
langt var þess að bíða að hún
yrði til þess að hann gerði eitt-
hvað af sér, sem hann svo iðr-
aðist eftir, þegar hann kæmi
til sjálfs sín? Hann vissi að
það munaði aðeins hársbreidd
í dag, að hann hefði án efa
drepið Nick, ef Blair hefði ekki
verið viðstaddur. Og Nick var
vinur hans! Honum varð
skyndilega kalt í hitabeltissól-
inni.. Framhald í nœsta blaOi.
50 VIKAN s. tbi.