Vikan - 27.05.1971, Qupperneq 5
nær er hann fæddur og svo
framvegis? Mig langar að vita
allt sem þið vitið um hann og
hans feril. Heimilisfangið væri
upplagt að fá.
Með fyrirfram þökk.
IG.
Murray Head var algjörlega
óþekktur þegar hann fékk eitt
aðalhlutverkið í Hárinu i London
og hefur siðan aflað sér mikilla
vinsælda. Hann hefur ekki leik-
ið í kvikmynd — svo við vitum
og í rauninni vitum við ákaflega
lítið um hann, nema að hann
syngur Júdas af hreinustu snilld.
Þú gætir reynt að skrifa honum
á þetta heimilisfang:
c/o Decca Records Co. Ltd.
Decca House, 9 Albert
Embankment,
London SE 1, ENGLAND.
Æðaslit í andliti
Kæri Póstur!
Þú hefur nú svo oft gefið góð
ráð, að mér datt í hug að skrifa
þér. Hvers vegna fær maður
æðaslit í andliti? Ég er 19 ára
og er byrjaður að fá æðaslit. Er
ekki til krem eða eitthvað svo-
leiðis við þessu? Viltu vera svo
vænn að svara þessu, kæri
Póstur?
Svo vil ég þakka fyrir viðtalið
við Lennon og margt fleira gott
sem hefur verið ( blaðinu. Með
fyrirfram þökk fyrir svar.
P.S.T.
P.S. Hvers vegna er ekki fram-
leiddur Root Beer á íslandi?
Æðaslit í andliti getur stafað af
ýmsu, fólk er með misjafnlega
sterka húð, snöggar hitabreyt-
ingar og margt fleira. Ekki höf-
um við heyrt þess getið að til
séu krem sem berast á andlitið
við æðasliti, en hvaða læknir
sem er ætti að geta sagt þér
það. Oq væntanlega í gegnum
síma.
Root Beer? Ojbarasta! Nei, í al-
vöru, þá er ástæðan sennilega
sú að engum hefur dottið það í
hug.
Feitt hár og
Humperdink
Ágæti Póstur!
Ég á við vandamál að stríða
eins og margir aðrir og vonast
til að fá góð ráð hjá þér. Vanda-
málið er sem sagt það, að hárið
á mér fitnar svo ofsalega. Ég
hef farið eftir mörgum ráðlegg-
ingum, en ekkert dugar. Að
vísu er ég bara 14 ára svo það
er kannski eðlilegt að hárið
fitni, en fyrr má nú vera! Það
er orðið spikfeitt á öðrum degi
eftir þvott, svo ég get varla lát-
ið nokkurn mann sjá mig. (Þó
nota ég þetta „indæla" blabla-
sjampól).
Getur þú ekki gefið mér gott
ráð, því að ég er að verða vit-
laus á þessu?
Mér þætti líka vænt um ef þú
gætir frætt mig eitthvað um
Engelbert Humperdink, aðal-
lega heimilisfang hans, þó ég
búist nú varla við að þú hafir
það á reiðum höndum.
Spikfeit.
Bezta ráðið sem við getum gef-
ið þér er að labba inn á næstu
rakara- eða hárgreiðslustofu og
biðja þar um nánari ráð.
Humperdink er líka í athugun
hjá „Heyra má", en utanáskrift
hans er til dæmis þessi:
c/o Artistes Management &
Agency, Ltd.
24—25 New Bond Street
London, W. 1, England.
Flasa
Kæri Póstur!
Eins og margir leita ég til þín í
vandræðum_ mínum. Þannig er
mál með vexti að ég er með
flösu. Ég þvæ hárið einu sinni í
viku og hef reynt alls konar
sjampó en árangurslaust. Hvað
á ég að gera? Og hvers vegna
fær maður flösu?
Ein með flösu.
Enginn veit hvað flasa er, hvorki
læknar né færustu rakarar. Gam-
alt húsráð kennir að gott sé að
bera matarolíu í hárið, láta hana
liggja í því í ca. 10—15 mínútur
og þvo það síðan vel. Þetta
læknar að vísu ekki flösu —
frekar en annað — en það held-
ur henni niðri. Annars ættir þú
að fara til læknis og það er al-
drei að vita hvað út úr því fæst,
en ástæðulaust er fyrir þig að
örvænta. Þó viljum við taka þér
vara fyrir að reyna að þvo hárið
mikið oftar en þú gerir nú, slíkt
bætir ekkert.
Þaö endast ekki
allirbílar jaíntl
SAAB V4 er t.d. óvenju sterkur bíll,
byggður af sænskri tæknikunnáttu fyrir
erfiðustu vegi og veðurfar.
SAAB V4 er vandaður bíll, utan sem innan
— léttur í akstri, rúmgóður og þýður.
SAAB-er sparneytinn og liggur vel á vegi
í öllum akstri.
SAAB er öruggur bíll — SAAB er bíll hinna vandlátu.
^"^PIÖRNSSON &co.
SKEIFAN 11 SÍMI 81530
Þér sparið með áskrift
VIKAi
SKIPHOLTI 33 - SlMI 35320
21. TBL. VIKAN 5