Vikan - 27.05.1971, Page 7
í SUMARGETRAUN VIKUNN-
AR eru vinningamir glæsilegri
en nokkru sinni fyrr: Hvorki
meira né minna en 100 AGFA-
myndavélar, sem kosta í kring-
um 2000 krónur stykkið út úr
búð. Heildarverðmæti vinning-
anna er því um 200 þúsund
krónur. Myndavélarnar eru all-
ar af sömu gerð, AGFAMATIC,
en það eru sömu vélarnar og
eru í hinum vinsælu táninga-
töskum. Þetta eru einfaldar og
sterkar myndavélar, þægileg-
ar í meðförum og auðveldar í
notkun. A þær má taka bæði
litmyndir og svarthvítar mynd-
ir. —■ í síðustu getraun, sem
Vikan efndi til, Jólagetraun-
inni, voru vinningarnir leik-
föng, bæði stór og smá. Þátt-
, takan í þeirri getraun varð
meiri en nokkru sinni fyrr. Það
bárust rösklega 4000 lausnir.
Það er von okkar, að þátttak-
an verði ekki minni að þessu
sinni.
Athugið!
Getraunin verður í fimm
þlöðum. Þegar öll
fimm blöðin eru komin —
ekki fyrr — sendið þið
lausnirnar til VIKUNNAR,
PÓSTHÓLF 533,
REYKJAVÍK og merkið
umslagið „Sumargetraun“.
Athugið, að lausnir
verða því aðeins teknar
til greina, að þær séu
skrifaðar á getraunaseðil-
inn í blaðinu sjálfu.
Haldið öllum seðlunum
saman, þar til keppninni
lýkur.
GETRAUNIN 3. HLUTI
Skuggi lætur ekki að sér hæða. Þarna hefur hann skotið byss-
una úr höndum ræningjans, sem stendur eftir gapandi af undr-
un. Við birtum tvær myndir af skotfimi Skugga. I fljótu bragði
virðast þær báðar nákvæmlega eins, en séu þær skoðaðar nógu
vandlega, þá kemur í Ijós að þrjú atriSi eru öðruvísi á neðri
myndinni. Getraunin er einmitt fólgin í því að finna þessi atriði
og skrifa þau á getraunaseðilinn.
--------------------------------KLIPPIÐ HÉR---------------------------------
GETRAUNASEÐILL 3. Eftirfarandi atriðum hefur verið breytt:
Nafn ...............................
Heimilisfang ................................... ........
Sími .......
-------------------------------------------KLIPPIÐ HÉR
21. TBL. VIKAN 7