Vikan


Vikan - 27.05.1971, Side 13

Vikan - 27.05.1971, Side 13
Þannig liSu sumardagarnir og sumarnæturnar. Abbie dreymdi dásamlega drauma, og Kevin var í þeim flestum. Amerísk jómfrú James Mc Ardwell fæddist í því héraði Bandaríkjanna, sem oft er kennt við Mark Twain. í bernsku heyrði hann oft dapra söngva og sögur, sem kennd voru við Missis- sippi-fljótið, og gætir áhrifa þeirra greinilega í sögum hans. SMÁSAílA KFTIR JAMES Mc ARDWELL Hann kom dag einn i maí- byrjun. Aliigail heyrði alJs ekki til hans. Hún sat úti á framdyiapallinum og ruggaði sér þýðlega f'ram og aftur. Hljóð vordagsins sungu væru síðdeginu mansöng: marrið í ruggustólnum hennar. tilbreyt- ingarlaust býflugnasuðið, dauft klakið í kjúklingunum, sem móktu í hlöðugarðinum og smcllirnir í afhýddum grænu baununum, þegar þær duttu í skálina i kjciltu hennar. ..Daginn. fiú," sagði hann og var nærri búinn að hræða úr licnn' líftóruna. Abbie deplaði augunum og gaf til kynna með tilgerðar- legri höfuðhneigingu, að hún víðurkcnndi nærveru hans. ..Ég heiti Kevin Doughtery," sagði hann og horfði á hana yfir grindverkið, svörtum aug- um, sem minntu á trygg og vingjarnleg augu í collie- hvolpi. ,,Mér var sagt, að þig kynni að vanta kaupamann.“ Þarna stóð hann og brosti feimnislega. Hann hélt á krumpuðum flcjkahatti í ann- arri hendi og rispaðri brúnni ferðatösku í hinni, svart, úfið hárið ögraði öllum greiðum og uppbrettu ermarnar á upplit- uðu bláu skyrtunni afhjúpuðu sólbrennda, vöðvastælta hand- leggi ög sterklegar hendur. „Ekki þekki ég big, herra Doughtery?" sagði hún spyrj- andi. ..Þú ert rkki einn af þorpsbúum? Hvar áttu heitna?" ..Heimili mitt er í hjarta -nínu, o« þangað sem það fer, ?er ég lika.“ Abbie brosti að þessu svari. Það virtist hæfa manninum vel. ,,Hér er um erfiðisvinnu að ræða,“ varaði hún hann við. ,,Ég hef ekki efni á að greiða hátt kaup . . . Fiörutíu dollara á mánuði oc herberei uppi yfir hlöðunni. Þú borðar með <mér.“ . ,.Ég hræðist ekki vinnuna, frú. og kaupið er rétt Jaglegt." Hún var þögul andartak, en tók svo skyndilega ákvörðun. Hann leit út fyrir að vera dug- legur og heiðarlegur. „Allt í lagi, herra Doughtery, þú byrj- ar að vinna á mánudagsmorg- uninn. Þú mátt flytja eigur þínar inn í hlöðuna og vera þar í nótt, ef þú vilt.“ Abbie gaf honum nánar gæt- ur fyrsta morguninn, en hélt síðan áfram eigin störfum, þegar hún hafði fullvissað sig um, að honum var fullljóst, hvað vinna átti. í ljós kom, að maðurinn var hörkuduglegur og líka léttlyndur. Hann blístr- aði, þegar hann sagaði viðinn og reytti illgresið úr kartöflu- beðunum, söng alls konar söngva, þegar hann sneið grein- ar af trjánum i ávaxtagarðin- um, söng káta söngva, þegar hann þvoði upp eftir miðdeg- isverðinn og raulaði lágt, þeg- ar hann kveikti upp í eldavél- inni á morgnana. Fréttin um vinnumann Ab- biear barst út eins og eldur í sinu. Allir í héraðinu töluðu hver upp í annan. Við bæna- stundina í babtistakirkjunni á sunnudagskvöldið, hristu kon- urnar höfuðið um leið og þær tistu: „Við efumst ekki um, að þú sért fær um að gæta þín, Abigail Garter, guð veit, að það hefur þér tekizt ágætlega þessi tuttugu ár, síðan faðir þinn dó, en þú hefðir átt að hugsa þig um tvisvar, áður en þú réðst þennan mann. Hann er ekki einn af okkur. Veiztu nokkurn skapaðan hlut um hann?“ Abbie, freknótt, há og grönn, unglegri — og þó á kynlegan hátt aldurslegri — en þrjátíu og níu sumrin hennar gáfu til kynna, sagði blátt áfram en fjarrænt: „Hann heitir Kevin Doughtery. Hann er irskur ... held ég.“ Þetta var 10. maí. í júní urðu næturnar heitar og rakar. í fyrsta skipti á æv- inni átti Abbie bágt með svefn. Henni fannst kæfandi í svefn- herberginu. Veggirnir þrengdu miskunnarlaust að henni. Hún svipti opnum öllum gluggum og stóð lengi og horfði út í nóttina. Máninn virtist önnum kafinn ' við að mála silfur- landslag, hvert sem litið var. Smávaxin laufin á kirsuberia- trénu iðuðu og hvísluðu eins og þar væri fullt rúm af óþæg- um börnum, sem neituðu að fara að sofa. Af undarlecum ástæðum fyllti ilmur nætur- blómstrandi jasmínunnar lík- ama hennar af þúsund örsmá- um vængjum, sem allir blök- uðu í einu og hótuðu að senda sál hennar svífandi gegnum glitrandi næturengin og alla leið til mánans. Það var sem næturgalinn skildi tilfinningar hennar, hann fór að svngia í nálægu tré. Glöð kallaði Abbie blíðlega: „Velkorninn heim, gamli vin- U”. Éi; hef ekki séð þig í tvær vikur. Ég hélt, að kannske hefði köttur náð í þig eða þú hefðir flutt í annan ávaxta- "arð.“ Gola blés í gluggatjöld- in, herbcrgið varð svalara, og Abbie fór aftur i rúmið. Stuttu seinna fór þún með bænirnar sínar, síðan fékk hún bakþanka og bætti við þessari eftirskrift til drottins: „Ég þakka þér lika fyrir að senda fuglinn til baka. Næturnar verða þá ekki eins einmanalegar. Amen." — Hún svaf. Næstu dagar liðu hjá eins og myndir á tjaldi, að því er virt- ist allir eins, ■ en fólu þó í sér hægfara breytingu árstíðar- innar. Kvöld nokkurt í júní- lok varð Doughtery um kyrrt í eldhúsinu eftir miðdegis- verðinn og bauðst til að þurrka diskana. Hún maldaði í mó- inn, hann sat við sinn keip. Abbie var hamingjusöm og taugaóstyrk. Fyrst töluðu þau um búið, en síðan dró úr sam- ræðunum. Hana langaði til að segja honum, að einmanaleg- asta verkið í allri veröldinni væri að þvo upp og þurrka, alein. En hún þagði, og brátt byrjaði Kevin hikandi að tala um staði, þar sem hann hafði dvalizt og segja frá öllu því margvíslega, sem hann hafði tekið sér fyrir hendur. „Ja, hérna, Kalifornía virð- ist vera indæll staður," sagði hún. „En bezti staður i heimi, ungfrú Abbie, er við Karabía- hafið.“ ,,Kara-bía-hafið,“ hún treindi sér orðin, smjattaði á hverju atkvæði eins og þetta væru síðustu bitarnir af heimatil- búnum rjómaís. Doughtery hallaði sér upp að svörtum járnofninum, og stóru hendurnar héldu lauslega um útsaumaða diskaþurrkuna. „Það er nú staður, leyfist mér að segja. Þar eru eyjar, þar sem hitinn fer aldrei upp fyrir 30 gráður og aldrei niður fyrir 20. Menn þurfa ekki einu sinni hús, sofa bara í hlýjum sandinum og þcgar þá sveng- ir, þurfa þeir ekki annuð en tína ávexti af trjánum eða veiða fisk.“ Framhcild á hls. 32. 21. TBL. VIKAN 13

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.