Vikan - 27.05.1971, Qupperneq 21
SlvaxandS
vínsaeldir
Gaddavírs ’70
Geysivinsæl Gaddavírsmúsík: Bragi Björnsson, bassaleikari, Vilhjálmur
Gíslason, gitarleikari og Rafn Sigurbjörnsson, trommuleikari.
í vetur hef ég komið víða á
skólaskemmtanir og annars
konar mannamót, bæði hér í
bænum svo og úti á landi. Við
og við hefur mér verið sagt
(réttilega) frá geysilega
skemmtilegri og góðri hljóm-
sveit, „sem allt of lítið ber á“,
ef ég má vitna í orð eins heim-
ildarmanns míns. Það er hljóm-
sveitin „Gaddavír 70“, sem var
kjörin „Táningahljómsveitin
1970“ á Sumarhátíðinni í Húsa-
felli.
Svo var það að ég rakst á
Rafn Sigurbjörnsson, trommu-
leikara á förnum vegi ekki alls
fyrir löngu, og krafði hann
sagna um það sem helzt væri
á döfinni hjá hljómsveitinni.
„Það er helzt,“ sagði Rafn,
„að standa sig í prófum. Og til
að geta það höfum við alveg
Framhald á bls. 48.
I MÆNIASI
Það er ekki oft sem maður
þarf að hendast landshornanna
á milli til að heyra í Reykja-
víkurhljómsveitum enda senni-
lega ekki ástæða til þess. En
um páskana var ég á Akur-
eyri og Roof Tops sömuleiðis
svo ég notaði tækifærið og sat
með þeim eina æfingu og
hlustaði á þá á dansleik í „All-
anum“ eitt kvöldið.
Roof Tops hafa aldrei verið
betri en nú og síðan Vignir
Bergmann bættist í hópinn
hafa orðið miklar framfarir.
Sérstaklega er það „gamli“
gítarleikarinn, Gunnar Guð-
jónsson, sem hefur tekið stór-
Roof Tops, síhressir (og
frumlegir í myndatök-
um!): Gunnar, Jón Pétur,
Ari, Vignir og
Guðmundur Haukur.
stígum framförum. Það er með
fullri virðingu fyrir hinum, að
ég held því fram að framfarir
hafi orðið miklar síðan Vign-
ir slóst í lið með þeim, en þar
tel ég að hafi sannast enn það
sem áður hefur verið sagt, að
nýtt blóð hefur yfirleitt mjög
góð áhrif.
En Akureyrartúrinn varð
þeim í Roof Tops ekki eins ár-
angursríkur og æskilegt hefði
verið, því Gunnar lagðist í
flenzu, hvotsótt eða hvað það
nú heitir og þar með fór æski-
leg ráðagerð þeirra út um þúf-
ur. Sem sé sú, að æfa þarna upp
tvö lög sem þeir ætluðu að
setja á plötu sem átti að taka
upp áður en skólasveinarnir
innan hljómsveitarinnar settust
að próflestri. Platan átti svo
að koma út strax í byrjun sum-
ars — og ekki sakar að taka
Framhald á bls. 48.
Virðulegi viðtakandi:
Mig langar til að biðja yður
um að senda mér svolitlar upp-
lýsingar um hljómsveitina
hér á staðnum fyrir skömmu og
„Gaddavír 70“. Þeir spiluðu hér
á staðnum fyrir skömmu og
varð ég mjög hrifin. Því yrði
ég ákaflega þakklát ef þér
myndir af eim og nöfn (jafnvel
í póstkröfu eftir fórnfýsi yðar).
Að lokum þakka ég mjög
gott efni í blaðinu að und-
anförnu.
Virðingarfyllst,
G.Þ. Garði.
Satt að segja sáum við enga
ástœðu til að vera að eltast
við að senda þér eitt og annað,
en í þessu blaði er mynd og
sitthvað fleira varðandi
„Gaddavír 70“, sem við vonum
Framhald á bls. 41.
21. TBL. VIKAN 21