Vikan


Vikan - 27.05.1971, Síða 44

Vikan - 27.05.1971, Síða 44
MIOA PREIMTUIM HILMIR HF SKIPHOLTI 33 - SIMI 35320 alveg voðalegt að láta stilla sér upp á háan pall og svo allt í einu er sagt: — Byrja! Ég veit að ég hefði getað gert það sóló mun betur en það var í sjón- varpsþættinum. Aftur á móti var ég tiltölulega ánægður með það sem ég tók á popphátíðinni miklu í Laugardalshöllinni, það var mikið meiri stemning.“ „Þegar þú tekur svona sóla,“ sagði ég, „œfirðu þaS þá alveg jrá upphafi til enda?“ „Nei nei, alls ekki. Ég set mér ákveðna punkta hér og þar í verkinu og svo byggi ég í kring- um það. Ég held að það sé ekki hægt að semja trommusóló.“ Við ræðum meira um tromm- ara, Óðmenn og tveggja platna albúmið þeirra sem kom út fyr- ir jólin — og „poppmenningar- vitar“ töldu „plötu ársins 1970“. „Því var ég sammála,' sagði Óli, „því mér finnst plöturnar ofsa- lega góðar“. „Aj hverju hættir þú í Óð- mönnum?“ „Tjah, fyrir því voru nokkr- ar ástæður," svaraði hann eftir nokkra þögn. „f fyrsta lagi vildu þeir Finnur og Jóhann fara út í músík sem ég var ekki reiðubúinn að spila, meiri jazz og fleira í þeim dúr og svo var kominn upp einhver leiðinda- fílingur á milli mín og Finns. En það sem var afgerandi í því að ég hætti var sem sé músíkin og ég er mikill vinur þeirra ennþá.“ „Hvernig áhrif hajði það á þig að maður var látinn víkja úr Nát.túru svo þú kæmist að?“ Hann þagði lengi, fitlaði við takkana á magnaranum og hnyklaði brýrnar. „f rauninni engin,“ sagði hann svo. Svona er auðvitað alltaf leiðinlegt, en einhvernveginn held ég að ekki sé hægt að blanda mér inn í það og því síður Rabba (Rafni Har- aldssyni, fyrrv. trommuleikara Náttúru). En sem betur fer hafa engin leiðindi orðið út úr þessu og við Rabbi erum ennþá sömu kunningjarnir.“ „Ertu ánœgður þar sem þú ert, i Náttúru á ég við?“ ..Já. mjög. Verkefnin eru næg og öll skemmtileg og mórallinn er einstaklega góður. Svo hef- ur það náttúrlega sitt að segja að mér finnst gott að spila með Siggá (Sigurði Árnasyni) og reyndar þeim öllum.“ „Og platan ykkar langþráða, hvernig gengur með hana?“ „Meiningin er að taka hana upp í haust og helzt vildum við gefa hana út sjálfir, en ég veit ekki hvernig það fer. Við erum búnir að leigja okkur sumar- bústað suður í Straumsvík og þar ætlum við að æfa efnið á hana, því það verður að gerast auk þess efnis sem við æfum fyrir dansleiki." ó.vald. Á FLJÖTANDI LOXUSHÖTELI Framhald af bls. 27. Ef lesandinn er að hugsa um að fara í land í þeirri trú að þrjár vikur á hafi úti verði leiðinlegar til lengdar, langar okkur til að taka það fram, að það eina, sem varð hversdags- legt til lengdar var, hvað það var óhugsandi að borða alla góðu réttina á matseðlinum! Matseðillinn og skemmtidag- sk'rá með tíu mismunandi at- riðum er samin og prentuð í einkaprentsmiðju skipsins dag- lega. Það er langt frá því, að hægt sé að láta sér leiðast á skips- fjöl. Hvernig á maður að kom- ast yfir þetta allt? Þjónarnir eru sífellt á næstu grösum, þótt lítið beri á og óvenjuvel skipulagðar skemmtanir og næturró hjálpast til að láta öllum líða vel og innan skamms læra menn að njóta slíks hóg- lífis. Ekkert hefur verið spar- að til að öllum liði sem bezt. Allt gengur snurðulaust og farþegunum líður eins og kóngafólki. Þó að manni finn- ast, að barþjónninn hefði get- að sætt sig við venjulegan hanastélsbar er indælt að finna steinlaus kirsuber með stilki í „Planter's Punch“ og í klefan- um eru ekki þessar venjulegu tvær, hálfvisnuðu nellikur með grænum kvisti, heldur stór blómvöndur úr fimmtán túlí- pönum og sjö páskaliljum. Og við bendum á enn eitt dæmið um öll heimsins gæði um borð: Trúræknir farþegar geta ekki aðeins valið um eina venjulega kapellu. Þar er ein kaþólsk, lútersk og þegar siglt er frá Flórída kemur einnig banda- rískur prestur um borð. Þeir messa allir þrír daglega. „Hamborg" var byggð árið 1969 og er fyrsta ferðamanna- skip, sem Vestur-Þjóðverjar byggðu eftir heimsstyrjöldina síðari. Hér var ekkert sparað til að gera glæstan knörr, sem flytja átti þýzka heiðursmenn yfir höfin sjö. Árangurinn af þessum tilraunum varð 25000 tonna glæsilegt skip, þótt óvan- ir menn líti á suma hluta þess sem ófyrirgefanlega byggingar- galla. T. d. tekur fólk strax eftir því, að reykháfarnir eru disklaga — en gagnrýnin hætt- ir, þegar menn komast að því, að lögunin er höfð slík til þess að pelsar og glös farþeganna óhreinkist ekki af ösku og að þeffæri þeirra, sem aldrei hafa kynnzt öðru en ilmvötnum, þjáist ekki af reykjarfýlu. „Hamborg“ er ekki aðeins glæsilegt. og þægilegt skip heldur og velbyggt og traust. Við fórum yfir Biscaya-flóann í 8 hnúta vindi og fundum naumast fyrir honum. Denny Brown jafnvægishreyflarnir tveir sjá svo um, að ekkert skvettist úr barmafullu viskí- glasi. Hverfilhreyflar skipsins knýja það áfram með 23000 hestöflum og eyða 190 tonnum af olíu á dag. Mesti hraði skips- ins eru 22 hnútar. Hverfil- hreyflarnir gera það að verk- um, að titringurinn, sem gæt- ir svo mjög á öðrum skipum, finnst ekki. Þessum 25000 tonnum er skipt niður á 12 þilför, sem eru tengd hvert öðru með breiðum stigum og vélknúnum tröppum. Það er bæði innanhús- og ut- anhússundlaug og á barmi þeirra er hægt að fá kalda drykki, heitar steikur og glæsi- legt smurt brauð. Hér þarf ekki að hafa einhverjar vélar til að halda hreyfingu á vatn- inu, því að sjórinn í. þessari 100 tonna upphituðu sundlaug hreyfist í samræmi við bylgju- ganginn, á hafinu, sem skipið siglir á. Stærstu danssalirnir tveir heita Atlantic Club og Han- seatic Salon og rúma 400 manns í sæti. Maturinn er bor- inn fram í veitingahúsum, sem heita Hamborg, Berlín og Miinchen og svo snarlbarnum Lido við útisundlaugina. Auk þess eru margir barir og næt- urklúbbar í viktoríönskum stíl með rauðu plussi, slípuðum glösum og kertaljósi á borð- um. Á gönguþilfarinu er hrein- asta verzlunargata með búð- um, rakarastofu, hárgreiðslu- stofu, snyrtistofu, ljósmynda- stofu, ferðaskrifstofu, bóka- safni og já, rétt er það, sjón- varpsstöð. Á skipinu er nefni- lega send út sjálfstæð sjón- varpsdagskrá, sem við vitum 44 VIKAN 21.TBL.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.