Vikan - 27.05.1971, Síða 47
snnnal ferðaskrifstofa bankastræti 7 simar 16400 12070
travel
SUNNUFERDIR 1971
HVERGI MEIRA FERÐAVAL - HVERGI LÆGRA VERÐ
MALLORCA
Flogið beint til Mallorka með Boeing þotu sem Sunna hefir leigt af Flugfélagi íslands.
Miðvikudagar verða þotuflugsdagar SUNNU til Mallorka. Dagflug brottför kl. 2,30
síðdegis, flugtími 4 klukkustundir. Þér getið valið um dvöl á hinum þekktu fyrsta
flokks hótelum, sem Sunna hefir samninga við, svo sem Antillas, Coral Playa,
Barbados Playa de Palma o. fl„ ennfremur dvöl [ nýtízkuíbúðum í Palmaborg, eða
við baðstrendurnar. Eigin skrifstofa Sunnu í Palma með íslenzku starfsfólki og
símaþjónustu, tryggir ásamt 14 ára reynslu Sunnu í Mallorkaferðum — að þetta er
allt jafn auðvelt og þægilegt og vera heima hjá sér — og ekkert dýrara.
Sunna þekkir Mallorka eins og Reykjavtk, hefir þar rótgróin sambönd og samninga
til margra ára við eftirsóttustu hótelin. Mallorka er fjölsóttasta
ferðamannaparadís Evrópu.
PORTUGAL
Nýjung í sumarleyfisferðum íslendinga. Þér veljið um fyrsta flokks hótel og tbúðir
í hinum fræga baðstrandarbæ Estroil, 20 km frá hinni litríku höfuðborg Lissabon.
Þarna er fagurt land, góðar baðstrendur og fjörugt skemmtanalíf. Sunna hefir
tekið á leigu til þessara ferða Boeingþotu frá Flugfélagi (slands og flýgur því á
fjórum tímum beint til Lissabon föstudagskvöldin 6. og 20. ágúst, 3. og 17.
september. Starfsmaður Sunnu býr ( Estroil f sumar og annast fararstjórn.
FERÐIR í GEGNUM
KAUPMANNAHÖFN
í sumar hefir SUNNA vikulegar ferðir til fjölmargra Evrópulanda með viðkomu
í Kaupmannahöfn. Flogið með Loftleiðum til Kaupmannahafnar alla mánudaga og
þaðan með leiguflugi Sterling Airways (super caravellþotur) til Nizza, Rómar,
Sorrento, Feneyja, Austurríkis og Rínarlanda.
SKEMMTISIGLING AR
Á MlÐJARÐARHAFl
Sunna hefir valið fyrir farþega s(na og tekið frá pláss í skemmtisiglingar um
Miðjarðarhafið með 25. þús. smálesta skemmtiferðaskipi, sem hefir vikulegar ferðir
um Miðjarðarhafið frá Mallorka, auk lengri ferða um austanvert Miðjarðarhaf.
Þér getið líka valið vikuferð með skemmtiferðaskipinu og vikudvöl á Mallorka.
Biðjið um ferðaáætlun með 70 utanlandsferðum Sunnu með íslenzkum fararstjórum.
Þar eru l(ka ferðir um nýjar slóðir, svo sem: Umhverfis jörðina á 24 dögum.
Októberferð til Landsins helga, Egyptalands og Lfbanon, Febrúarferð til
Suður-Amerfku (Karnival f Rio) og Janúarferð til Kenya, Uganda og Tanzaníu.
Sunna gefur út og selur flugfarseðla með öllum flugfélögum og pantar hótel hvert
sem halda skal. Einstaklingar, fyrirtæki, félög og hópar sjá sér hag f því að láta
SUNNU annast um ferðalagið. Ffafið þér kannað hvort þau viðskipti geta ekki
einnig orðið yður f hag? Það er þegar reynsla fjölmargra.
feröaskrifsiofa bankastræti 7 símar 16400 12070