Vikan


Vikan - 27.05.1971, Side 48

Vikan - 27.05.1971, Side 48
— Eg vona, að þú kunnir að synda, Bjössi! Þeir telja, að ekki haíi skort nema herzlumuninn á, að til- ætlaður árangur fengizt. í einu tilfellinu var um að ræða verkfræðing, sem átti að gangast undir uppskurð vegna lungnakrabba. Enginn dró í efa, að um krabbamein væri að ræða, þar sem allar rannsókn- ir bentu til þess. Klukkan hálfellefu kvöldið áður en uppskurðurinn skyldi gerður, var haldin samkoma í kirkjunni hans og beðið fyrir honum. Sjálfur var hann hátt- aður niður í rúm heima hjá sér. Á þessum tíma kvaðst hann hafa orðið fyrir undarlegri reynslu. Þótt hann hefði aug- un lokuð, fannst honum sem hann sæi mikla birtu og að hann væri ekki einn í herberg- inu. Þegar hann kom til sjúkra- hússins morguninn eftir, voru enn gerð á honum ýmis próf samkvæmt venjunni. En þessi próf reyndust neikvæð - þ.e.a.s. bentu ekki til, að maðurinn væri haldinn neinum sjúkdómi. Var honum því vísað af sjúkra- húsinu og sú skýring gefin, að sjúkdómsgreiningin hafi verið röng. Enda þótt árangurinn af rann- sóknum nefnds félagsskapar hafi ekki orðið eins víðtækur og ætlazt hafði verið til, voru niðurstöðurnar alls ekki ó- merkilegar og skal nú minnzt á þær helztu: • Dularafl, sem hefur lækn- ingamátt er til. Til eru ein- staklingar, sem gæddir eru þessum mætti, og í öðru lagi er hægt að framkalla þennan laakningamátt með fyrirbæn- um. Hér er annað hvort um að ræða hreint andlegt fyrirbæri eða eðlisfræðilegt afl, sem kem- ur fram við viss skilyrði og hefur enn ekki verið uppgötv- að af vísindamönnum. • Allur hlýhugur er mjög mikilsverður hvað viðkemur andlegum lækningum. Þessi at- riði eru samhljóða sálfræði nú- tímans. • Fólk með sérstaka per- sónulega gerð er gætt þessum lækningamætti. • Menn eru ekki á eitt sátt- ir um, hvort hæfileikamenn þessir fá kraftinn hjá sjálfum sér eða ná honum annars stað- ar frá — ellegar um hvort tveggja sé að ræða. —0— A llar rannsóknir á þessum “ málum eru mjög erfiðar, þar sem taka verður með mik- illi varúð framburði fólks í sambandi við dulræn fyrirbæri. Óskhyggja og sjálfsblekking láta mjög á sér bera í þessum efnum, enda þótt grandvarasta fólk eigi í hlut. Samt er ekki skynsamlegt að dæma allar dullækningar blekkingu. Þessi mál eru nú komin á það stig, að hugsandi fólk þarf ekki að fyrirverða sig fyrir að reyna að kryfja þau til mergjar. ☆ f MÆNIÁSI Framhald aj bls. 33. fram að bæði lögin eru frum- samin. „Við eigum nóg af svona efni“, sagði Guðmundur Hauk- ur, söngvari hljómsveitarinnar, þegar hann mátti vera að því að setjast. „Hver semur? Tja, sjálfsagt má segja að við ger- um það allir. Að vísu eru það aðallega við Vignir — þó öllu heldur Vignir — sem leggjum til grunnhugmyndirnar, en síð- an vinnum við allir úr þeim á æfingum, þannig að í raun- inni sköpum við þetta allir í sameiningu". „Eru einhverjar breytingar á döfinni“? „Nei, ekki stórvægilegar. Við erum ekkert að hætta, breyta um menn eða neitt í þeim dúr ef það er það sem þú meinar. Hitt er svo annað mál, að ég er sterklega að hugsa um að fá mér ráfmagnspíanó, það myndi auka möguleika okkar og fjöl- breytni og svo er Vignir bú- inn að panta sér stálgítar (steel- guitar), en það yrði væntan- lega fyrsta slíka hljóðfærið hér á landi. Að vísu hafa verið fluttir inn einir tveir slíkir, en þeir hafa verið seldir upp á Keflavíkurflugvöll í einum grænum". „En ef við snúum okkur þá aftur að plötunni: Hvenær kemur hún þá út“? „Hún verður, héðan af, ekki tekin upp fyrr en í fyrsta lagi eftir próf og úr því við höfum ekki einu sinni gert samninga við 'hljómplötufyrirtæki, þann- ig að vel gæti komið til greina að hún yrði fjögurra laga, allt eftir því hvað útgefendurnir vildu“. „En hvað hefur orðið af plöt- unni með þér sjálfum sem átti að koma út?“ „Hún kemur ekki út, því hún eyðilagðist í pressun. Jú, vissu- lega er ég svekktur yfir því, en þó ekki, því ég var alltaf mjög óánægður með annað lag- ið. En einhverntíma fljótlega kemur út fjögurra laga plata með mér sem var tekin upp í London um leið og Trúbrot tók þar upp „ ... lifun“. Ég held að ég vilji ekkert um hana segja nema kannski það að sjálfsagt hefði verið hægt að velja fyrir mig betri lög. Nei, ég veit ekkert nákvæmlega hvenær hún kemur, en mér skilst að Trúbrotsplatan eigi að ganga fyrir“. Þar með var Guðmundur rokinn og áður en varði var hann farinn að syngja af al- þekktum krafti sínum og til- þrifum. Þá kom enn í ljós hvað gæði hljómsveitarinnar eru mikil og sennilega er engin hljómsveit hérlend jafn vel „saman“ og þeir félagar í mæni- ási. Tight ’n’ funky, eins og þeir segja í útlandinu. ☆ GADDAVfR 70 Framhald af bls. 33. lagt hljóðfærin á hilluna þar til öllu prófstandi er lokið. Við höfum haft svo mikið að gera í vetur, að skólinn hefur þurft að sitja töluvert á hakanum, en náttúrlega gengur það ekki mikið lengur." Verðlaunin sem þeir félagar hlutu í sumar voru peningar og svo samningur um að leika inn á tveggja laga plötu. „Við þáð- um peningana, en ekki hitt,“ hélt Rafn áfram. „Til að byrja með treystum við okkur ekki til að taka plötuna — og svo er reyndar enn — en síðar ákváðum við, ýmissa hluta vegna, að láta alveg eiga sig að hugsa nokkuð um það. Nei, við höfum lítið verið með frumsamið efni; hreinlega höf- um við ekki haft tíma til að gera nokkuð í því, en nú eftir prófin reikna ég náttúrlega með að við reynum að gera einhvern skurk í því að semja. Svo spil- um við bara í sumar og reyn- um að skemmta okkur og öðr- um.“ Félagar Rafns í hljóm- sveitinni eru Bragi Björnsson, bassaleikari og Vilhjálmur Gíslason, gítarleikari. ☆ ÞAR TIL DAUÐINN AÐSKILUR... Framháld af bls. 10 segirðu um að borða úti með mér? Til dæmis á Baur au Lac? Eigum við að hittast þar klukkan sjö? — Ef þig langar til þess, sagði hann og flýtti sér út. Helen fór í stígvélin og horfði svo á sig í speglinum. Hún var eiginlega mjög ánægð með útlit sitt, hún var bæði ung og lagleg. Hún var kann- ske heldur mögur og augun of stór, en að öðru leyti . . . Eftir að hún hafði gengið fram og aftur milli búðanna, fór hún inn á veitingastofu, pantaði te og bað um að fá lánaðan síma í hliðarherbergi. Hún valdi númerið á lækn- ingastofu Savants læknis. Syngjandi rödd May-Lin svaraði. Helen lagði á, beið í fimm mínútur og hringdi þá aftur í sama númer. Aftur heyrði hún rödd May-Lin og lagði á. Svo gekk hún að borðinu sínu, drakk teið og borðaði eina brauðsneið. Hún beið þangað til klukkan var orðin hálf tvö. Einhvern tíma hlaut May-Lin að taka matartima. Hún gerði nýja tilraun með símann og í þetta sinn lánað- ist það. Það var Savant lækn- ir sem svaraði. — Það hefur fleira komið fyrir mig, sagði Helen, — og ég verð að tala við yður. En ekki á lækningastofu yðar, May-Lin má ekki vita það. Ef Savant læknir hefur orð- ið undrandi, þá leyndi hann því vel. — Viljið þér kannske koma heim til mín og fá yður í glas, spurði hann, eins og þetta væri mjög venjulegt boð. —■ feg bý í Dijongötu 12. Það er síðasta húsið í götunni, til vinstri. ‘C’jórum tímum síðar, þegar hún ók upp Dijongötuna, var farið að skyggja. Síðasta húsið til vinstri var hulið frá götunni að hálfu bak við þyrp- ingu grenitrjáa. Stór ljósker úr gleri og kopar lýstu innkeyrsl- una. Helen hringdi dyrabjöllunni 48 VIKAN 2LTBL.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.