Vikan - 27.05.1971, Page 49
og Savant læknir opnaði rétt
strax. Hann var í brúnni peysu
og flauelsbuxum í sama lit,
með ilskó á fótunum.
— Velkomin, frú, sagði hann
og tók í hönd hennar. — Eig-
um við ekki að fá okkur sæti
við arininn? Og hvað viljið þér
drekka? Martini?
— Já, takk, sagði hún bros-
andi og settist í leðurstól, sem
hann dró að henni.
Hún horfði á hann meðan
hann blandaði drykkinn og
hú var viss um að hún hafði
gert rétt í að fara þessa leið.
Þetta var ákaflega traustvekj-
andi maður.
Hún dreypti á glasinu.
Drykkurinn var kaldur og
hressandi. Það hvarflaði að
henni hve notalegt það hefði
verið að vera hér sem venju-
legur gestur. Rabba við Savant
lækni og gleyma öllu hinu. En
hann leit spyrjandi á hana svo
að hún varð að ganga hreint
til verks.
Það voru gestir hjá okk-
ur í gærkvöldi, hóf hún mál
sitt. —• Það var vinur Raouls
frá París, Armand og . . .
Er það maðurinn sem þér
sögðuð mér frá í gær? Sá sem
meðurinn yðar var með, þeg-
ar þér hittuð hann í fyrsta
sinn? tók Savant læknir fram
í fyrir henni.
— Já, einmitt. Ungur, ljós-
hærður maður með dökk gler-
augu. Hann var með Raoul á
Paris 2000.
— Það er svo. En ég tók víst
fram í fyrir yður. Haldið áfram.
Voru fleiri gestir hjá yður?
Já, aðstoðarstúlka yðar.
Savant læknir starði undr-
andi á hana. ■—• May-Lin? Er-
uð þér vissar um að það sé
rétt?
Helen opnaði töskuna sína
og tók upp hárspennuna með
Búddamyndinni.
— Ég fann þetta á baðher-
bergisgólfinu. Kannizt þér ekki
við þetta? May-Lin var með
tvær svona spennur í hárinu
um kvöldið.
Læknirinn hristi höfuðið. —
Það er undarlegt. Hafið þér
sagt nokkrum frá þessu?
— Nei, engum nema yður.
—- Ekki manninum yðar
heldur?
— Nei. En þetta er samt ekki
það versta. Þegar Renée . . .
það er húshjálpin . . . ætlaði
að fara að hátta, fann hún . . .
það er svo hræðilegt að ég
veit varla hvernig ég á að
segja það . . . en þegar hún
fletti upp sænginni, lágu tveir
dauðir kettir í rúminu hennar.
Það voru Romeo og Júlía, sem
búið var að grafa upp . . .
maðurinn minn reynir að fá
mig til að trúa því að mig
hafi dreymt þetta allt. Hann
segir að engir gestir hafi ver-
ið hjá okkur og að kettirnir
hafi alls ekki verið í rúminu
og . . . En ég veit að þetta var
ekki draumur. Þér verðið að
hjálpa mér, læknir! Sg get
ekki haldið þetta út lengur.
Savant læknir hallaði sér
fram og klappaði á hönd henn-
ar.
— Við skulum komast til
botns í þessu. Það nauðsynleg-
asta er að þér látið sem ekk-
ert sé, sama hvað skeður. Hann
þagnaði og brosti til hennar.
— Skýrið þetta nú ljóslega
fyrir mér. Voru gestirnir við-
staddir, þegar stúlkan fann
kettina?
— Auðvitað. Það var ekki
svo framorðið. En þau fóru
rétt á eftir. Renée setti niður
í töskur og fór, sagðist aldrei
stíga fæti sínum í húsið okkar
framar, en í morgun var hún
þar, eins og ekkert hefði skeð.
Það er það sem er svo von-
laust. Enginn heyrir né sér það
sem ég verð vör við. Stundum
hvarflar það að mér að ég sé
í raun og veru orðin brjáluð.
Hvað á ég að gera, læknir?
— Þér hafið verið mjög
skynsöm, frú. — Viljið þér
láta mig hafa hárspennuna?
— Já, að sjálfsögðu. Þér
haldið þá ekki að ég sé geggj-
uð? Helen varð að leggja þessa
spurningu fyrir hann, hún varð
að fá vissu sína.
Læknirinn horfði vingjarn-
lega á hana. — Síður en svo!
sagði hann. — Við verðum að-
eins að fá tíma til að athuga
þetta, en umfram allt verðið
þér að brynja yður með þolin-
mæði. Verið ekki hrædd, reyn-
ið að gera það sem yður finnst
skynsamlegt og reynið að láta
ekki á yður fá þótt eitthvað
óskiljanlegt komi fyrir yður.
Sg hringi eftir nokkra daga til
að heyra hvernig gengur.
NILSDL
sMnhWI
Hin heimsþekktu ítölsku Nilsol sólgleraugu eru komin í miklu
úrvali.
- TIZKU-SÓLGLERAUGU 1971 -
- POLARIZED-SÓLGLERAUGU -
- KLASSISK-SÖLGLERAUGU -
NILSOL-tízkugleraugun 1971 liafa farið sigurför um ftalíu og
Vestur-Evrópu í vor.
HeildsölubirgSir:
HARALDUR ARNASON
heildverzlun hf. - símar 15583,13255.
21.TBL. VIKAN 49