Vikan - 27.05.1971, Page 50
/ nœstu
Grein um nýju
sjónvarpsstjörnuna sem
leikur dr. Kildare.
„Ég er fæddur sex árum fyrir tímann," segir
nýja sjónvarpsstjarnan, sem leikur í mynda-
flokkinum um dr. Kildare, — Richard Cham-
berlain. Kenning hans er tilkomin vegna þess,
hve ótrúlega unglegur hann er. Chamberlain
er nú eitt mesta kvennagull samtímans og
efalaust er hann búinn að eignast hóp að-
dáenda hér á landi sem annars staðar. Hann
lék dr. Kildare samfleytt í fimm ár, en er nú
hættur því og farinn að leika Hamlet. Við
birtum skemmtilega grein um Richard Cham-
berlain ( næsta blaði.
Gamansaga
eftir
O’Henry
Smásaga næsta
blaðs er bráð-
skemmtileg
gamansaga eftir
hið kunna kímni-
skáld, O'Henry.
Hún nefnist
„Heimkoma" og
segir frá manni,
sem er bókstaflega
að gefast upp á
hversdagsleikanum.
Það er hollt að reiSast
Ekki eru vist aliir sammála Harriet Andersson,
sem heldur því fram í viðtali í næsta blaði,
að það sé hollt að reiðast og hverjum manni
lifsnauðsyn. Eða kannski hún hafi rétt fyrir
sér?
Samkvæmi á sviðinu
Það er ekki á hverjum degi, sem samkvæmi
er haldið á sviði Þjóðleikhússins. En þetta
gerðist að lokinni frumsýningu á Zorba í vor.
Vikan tók skemmtilegar myndir í þessu fjör-
uga samkvæmi.
• Palladómur eftir Lúpus um Matthías A.
Mathiesen, alþingismann.
• Næstsiðasti hluti af sumargetraun Vik-
unnar. Vinningarnir eru óvenju glæsilegir:
100 Agfa-myndavélar.
• „Það er reimt í Roslagen" — grein um
óvenjulega atburði, sem gerðust í Noregi
nýlega.
• „Lifun — ævisaga okkar" — Magnús
Kjartansson segir frá hinni nýju plötu Trú-
brots i þættinum „Heyra má".
• Og siðast en ekki sízt spánný snið frá
Simplicity, sem fást hvergi nema hjá Vikunni.
HITTUMST AFTUR - i NÆSTU VIKU
— Eg treysti yður, sagði
Helen rólega. Hún hefði helzt
viljað segja: — Leyfið mér að
vera hjá yður, hér er ég örugg.
En hún þorði ekki að biðja
hann þess.
Þess í stað stóð hún upp,
dró á sig hanzkana og stakk
töskunni undir handlegginn.
Savant læknir fylgdi henni út
að bílnum.
— Au revoir, sagði hún.
— Au revoir, svaraði hann
og kyssti á hönd hennar. —
Eitt ráð vil ég gefa yður, seg-
ið engum frá hárspennunni.
Eg veit ekki hvernig hún hef-
ur komizt til yðar, en ég veit
fyrir víst að May-Lin var ekki
heima hjá yður í gærkvöldi...
Helen var taugaóstyrk þeg-
ar hún ók til Baur au Lac til
að hitta Raoul. Þetta hlaut að
vera samsæri, hugsaði hún. En
hve margir voru um það . . .
Raoul, Armand, May-Lin, Sa-
vant læknir . . .
Eða er ég í raun og veru
geggjuð? Framh. í nœsta blaði.
UGLA SAT A KVISTI
Framhald af bls. 19.
hau hlupu af stað í flýti, en
' Anna iðraðist ekki neins,
þegar þau sátu saman á veit-
ingahúsinu. Hann var elsku-
legur. Hann kunni að hlusta,
hann gat talað líka, ekki að-
eins um starf sitt og annað því
líkt, heldur vakti hann traust
eins og hún hafði ekki kynnzt
frá því að hún sat í kjöltu föð-
ur síns. Spenntar taugar henn-
ar róuðust og hún varð blíð og
meir. Hún horfði á hann, með-
an hann horfði á hljómsveit-
ina. Já, hún gat það! Það var
rétt, sem Kristín sagði. Kristj-
án varð að sjá, að hún gat það
líka . . . og þá með manni á
borð við Ingva Ekander. Hann
bar engan hring. Hann var
ókvæntur. Hún gerði engum
mein með því. Hann . . . ja,
ætli hann liti ekki á það eins
og hvert annað ástarævintýri
eins og aðrir karlmenn. Eitt-
hvað, sem stæði eitt kvöld, en
ekki fleiri. Takk og bless og
svo ekkert annað . . .
Hún hefði aldrei getað hugs-
að sér það ódrukkin, en nú var
hún svolítið kennd, eilítið ró-
legri og nú gat hún það. Það
vissi hún.
„Ertu oft ein á kvöldin?"
spurði hann skyndilega. Hann
hafði virt hana fyrir sér, án
þess að hún hefði hugmynd um
það. Augu hans voru spyrjandi
og ögn áhyggjufull. Þau
hrærðu hjarta hennar.
Framhald í næsta blaði.
50 VIKAN 21.TBL.