Vikan - 24.06.1971, Blaðsíða 13
SUMAR
HUSIÐ
SMÁSAGA EFTIR GUNNVÖRU GESTS
Þetta gæti hafa gerzt hvar
sem væri, svo hér verða ekki
nafngreind staðaheiti, end^
væru þau aukaatriði.
Snemma sumars fyrir nokkr-
um árum var ég að svipast um
eftir sumarhúsi, þar sem fjöl-
skylda mín gæti eytt sumrinu,
í stað þess að fara eins og
venjulega lengri eða skemmri
ferðir með viðeigandi fyrirhöfn
og þreytandi undirbúningi.
Það tók mig nokkurn tíma að
afla mér upplýsinga um sum-
arhús til leigu. Við litum á
nokkur, sem til greina komu,
en ekkert þeirra hafði aðlað-
andi áhrif við nánari rann-
sókn.
Ég hafði næstum lagt þessa
hugmynd mína til hliðar, þegar
mér var boðið að líta á sumar-
hús örskammt frá borginni, þar
sem við bjuggum, næstum of
skammt til að geta talizt hæfi-
legt til sumardvalar. En eig-
andinn fullvissaði mig um að
þarna væri um sérkennilega
staðsett hús að ræða og óveniu
hagstætt. Það reyndist rétt
vera. Eftir lýsingu staðhátta,
fundum við brátt staðinn, og
þarf ekki að orðlengja það, að
öllum meðlimum fjölskyldunn-
ar féll húsið og staðurinn eink-
ar vel. Varð því að ráði að
við skyldum taka húsið á leigu
allt sumarið.
Um það bil tvær vikur voru
til umsamins leigutíma og not-
aði ég tímann til að huga að
gömlum gluggatjöldum, sem ég
átti í fórum mínum og notast
mætti við fyrir gluggana í sum-
arhúsinu. Ég gerði mér ferð
þangað til að taka mál af glugg-
um, sem þurfti að sníða og
sauma tjöld fyrir. Einhvern-
veginn varð ég vör við það
hugboð að húsið hefði verið
yfirgefið mjög fyrirvaralítið.
Þó var allt snyrtilegt og ekki
sá á neinu innanstokks, vegna
slits eða notkunar. Ég lét orð
liggja að þessu við eiganda
hússins, og skýringin var sú,
að rafkerfi hússins hefði bilað
skyndilega, upp úr áramótum
um veturinn og ekki reynzt
kleift að gera þær endurbætur,
sem þurfti svo fljótt sem nauð-
synlegt var á þeim tíma árs,
svo leigjendurnir fluttu burt
tafarlaust.
Húsið hafði verið í leigu allt
árið, og var það ekki óeðlilegt.
bar sem svt> skammt var til
borgarinnar og öll skilyrði á
staðnum til heimilishalds hvort
sem var sumar eða vetur. Síð-
ustu leigjendurnir höfðu verið
útlendingar, sem af einhverjum
ástæðum hafa kosið að búa um
sig á þessum stað frekar en í
borginni. Sá ég það á ýmsu
som eftir hafði verið skilið, að
hér höfðu verið notaðir munir
sem ekki eru algengir í okkar
búskaparháttum. Annað atriði,
sem vakti óljóst athygli mína
á þessum stað var það, hvað
trjágróðri og annarri ræktun,
sem á fót hafði verið komið,
var lítill sómi sýndur. Talsvert
afgirt land fylgdi húsinu^og
augsýnilega hafði verið vel
vandað til byrjunar-fram-
kvæmda um ræktun. Flatir
höfðu verið græddar upp og
bæði blóma og trjáplöntur
gróðursettar á smekklegan
hátt, en einhvernveg»nn var
eins og bæði eigendur og leigj-
endur staðarins hefðu heykst á
höfnu verki. Og allt benti til að
nokkur ár væru liðin síðan
nokkuð hefði verið aðhafst til
að halda við þessum skemmti-
lega gróðri, sem þrátt fyrir ó-
rækt, gaf staðnum aðlaðandi og
hlýlegan svip. Mér fannst að
hver sem byggi í húsinu, hlyti
að fá löngun til að hafa ánægju
af, að leggja vinnu sína í að
endurbæta það sem nú var svo
vanhirt. Ég ákvað að ég skyldi
eyða sumrinu til að gera það,
sem hægt væri til úrbóta, á til-
tölulega stuttum tima og með
takmörkuðum kostnaði. lÉe
held jafnvel, að hvarflað hafi
að mér að vel væri íhugandi
að kaupa’ húsið síðar, ef það
væri til sölu. En fyrst var að
sjá hvernig sumarið legðist í
okkur þarna. Eitt er víst, að
öll hlökkuðum við til að geta
komið okkur fyrir á staðnum
og mikið var ráðgert um fjrrir-
komulag á þessu sumarheimili
okkar; einkum voru það þó
þeir yngri í fjölskyldunni, en
ég hreifst með og beið þess
með óþreyju að leigutíminn
hæfist.
En ekki varð að við gætum
flutt í draumahúsið okkar á
tilsettum tíma. Tvíburasystir
mín, sem búsett er í annarri
borg, veiktist skyndilega. Við
höfum alltaf haft náið sam-
band hvor við aðra og fór ég
því strax til hennar og dvaldi
hjá henni öllum stundum sem
mér var leyft, fyrstu dagana
eftir hættulegan uppskurð, sem
hún þurfti að gangast undir.
Eftir það skipti ég tíma mínum
á milli heimilis míns og henn-
ar, og tóku ferðirnar milli bú-
staða okkar drjúgan tíma, svo
lítið var hægt að gera í s/imar-
húsmálum okkar. Þegar systur
minni fór að batna verulega,
tók ég mér meiri tíma til að
undirbúa dvöl okkar í sumar-
húsinu. Ég kom gluggatvöldum
fyrir og við fluttum nokkurn
húsbúnað, ellhúsáhöld og mat-
væli, þannig að við gætum,
Framhald á bls. 32.
MYNDSKREYTING: SIGURÞÓR JAKOBSSON
12 VIKAN 25. TBL.
25. TBL. VIKAN 13