Vikan - 24.06.1971, Síða 37
— Þú veizt, að þú ert allt-
af velkomin, svaraði hann í
staðinn. -— Er það Kristján?
Hún kom engu orði upp.
Það var kökkur í hálsinum á
henni og augu hennar rök af
tárum. Þau þögðu um stund.
— Taktu það ekki svona
nærri þér, Anna litla, sagði
hann loksins. — ÍÉg skal hjálpa
þér að leysa flækjuna, hver
svo sem hún er.
Enn kom hún engu orði upp.
Hún hlyti að brotna alveg nið-
ur, ef hún réyndi það og bresta
í grát og það vildi hún ekki
— alls ekki . . .
— Nei, þetta getur ekki
gengið, heyrði hún bróður
sinn segja. — Sg kem og sæki
þig, þú lætur vinnuna lönd og
leið. Svo hvílirðu þig og við
förum út í kvöld og skemmt-
um okkur.
— Já, stamaði hún loksins.
— Þakka þér fyrir, Pétur. Þú
ert góður.
Þvi var ekki að neita, að
það var gott að hvíla sig, að
vita, að einhver’ vildi hugsa
um mann, að vita, að einhver
annar bar áhyggjurnar og sorg-
irnar. Það var gott að sitja í
hnipri við hlið Péturs í leigu-
bílnum, þegar hann sótti tösk-
urnar hennar á jáfnbrautar-
stöðina og ók síðan heim til
sín.
Þau höfðu ekkert rætt um
það, sem máli skipti. Pétur
tók allt í einu utan um hana,
bróðurlega og klunnalega.
— Viltu segja mér, hvað
kom fvrir? spurði hann.
— ’É'g — ég hafði eiginlega
ekkert leyfi til að fara, svar-
aði Anna meyr. — Við Kristj-
án sömdum um, að við værum
bæði frjáls og . . .
Pétur bölvaði lágt, en lengi.
— Svo það er gamla sagan einu
sinni enn! Samningur, takk
fyrir! Ég held, að sá samn-
ingur hafi hentað Kristjáni
betur en þér.
— Það má vera, sagði Anna
og leit undan. — En ég hefði
afborið það, ef það hefði ekki
verið með Kristinu. Hún sagði
alla söguna og sá að bróðir
hennar beit á jaxlinn.
— Anna, sagði hann loks-
ins. — Þú átt ekki að þola
þetta. Það gæti engin kona af-
borið það. Nú skulum við
hvíla okkur og fá okkur mat-
arbita og vínsopa, enda veitir
okkur ekki af. Ég skal sjá um
allt á morgun. Verður það þá
ekki gott?
— Sjá um? hugsaði Anna.
Sjá um hvað. Eigum við ekki
TÍMALENGD DÁNARBÆTUB ÖRORKUBÆTUR DAGPENINGAB A VIKU IDG.TALD
14 dagar 500.000.— 2.500.— 271,—
17 dasar 500.000,— 2.500,— 293.—
1 niánuður 500.000,— 2.500.— 399 —
cn
oo
SJÓVÁTRYGGINGARFÉLAG
ÍSLANDSI?
INGÓLFSSTRÆTI 5 REYKJAVÍK
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT
SÍMI 11700
Hvort sem þér farið langt eða skammt — og hvert
sem þér farið, til Spánar eða Sigluf jarðar,
Bandaríkjanna eða Bildudals, þá er ferðaslysatrygging
SJÓVÁ nauðsyn.
Ferðaslysatrygging SJÓVÁ greiðir bætur við dauða af
slysförum, vegna varanlegrar örorku og vikulegar
bætur, þegar hinn tryggði verður óvinnufær
vegna slyss.
Ennfremur er hægt að fá viðbótartryggingu, svo að
sjúkrahúskostnaður vegna veikinda eða slysa,
sem sjúkrasamlag greiðir EKKI, er innifalin
í tryggingunni
Ferðaslysatrygging SJÓVÁ er nauðsynleg, ódýr og
sjálfsögð öryggisráðstöfun allra ferðamanna.
Ferðaslysatrygging SJÓVÁ er tryggur förunautur.
Dæmi mn iðgjöld af ferðaslysatryggingum SJÓVÁ:
(Söluskattur og stimpilgjöld innifalin).
25. TBL. VIKAN 37