Vikan - 14.10.1971, Blaðsíða 4
Skoðið
ÁTLÁS
r
FRYSTIKISTURNAR
Skoðið vel og sjáið muninn í
YtrabyrÖi og lok úr formbeygðu stóli, sem dregur ekki til sín ryk,
gerir samsetningarlista óþarfa og þrif auðveld. Hiti leiddur út með
ytrabyrði og botni til að hindra slaga. Ósamsettar frystipípur inn-
an við létthamrað ól-innrabyrði. Það er öruggast. Ný, þynnri en
betri einangrun veitir stóraukið geymslurými og meiri styrk. Sér-
stakt hraðfrystihólf og hraðfrystistilling, auk froststillis með örygg-
islampa, sem gefur til kynna rétt kuldastig. Mikil frystigeta, langt
umfram kröfur gæðamatsstofnana. Hentugar körfur og færanleg
skilrúm skapa röð og reglu í geymslurýminu. Lok með Ijósi og
jafnvægislömum, sem gera það lauflétt og halda því opnu, þann-
ig að allur umgangur um kistuna er frjóls og þægilegur. Lamir
leyfa stöðu fast við vegg. Það sparar rými, skemmir ekki vegginn
og er miklu fallegra. Þétt segullokun og lykillæsing. Nylonskóf
hlífa gólfi og auðvelda tilfærslu. Sterklega húðað lok í borðhæð
veitir auka vinnuplóss. Og ekki spillir útlitið: Litasamsetning og
form eins og dönsk hönnun gerist bezt.
SÍMI 2 44 20 - SUÐURGÖTU 10
Notið frístundirnar
Vélritunar-
og
tiraðritunarskóli
Vélritun — blindskrift, uppsetning og frá-
gangur verzlunarbréfa, samninga o. fl.
Notkun og meðferð rafmagnsritvéla.
Dag- og kvöldtímar. Upplýsingar og inn-
ritun í síma 21768.
Hildigunnur Eggertsdóttir — Stórholti 27, — sími 21768.
Gullverðlaunahafi — The Business Educators' Assn of Canada.
PÓSTURINN
Svitalykt
Sæll, Póstur minn.
Nú bið ég þig að reynast vinur
í raun Ég hef við nokkuð leið-
inlegt vandamál að stríða. Svo-
leiðis er nefnilega mál með
vexti, að ég vinn á skrifstofu og
félagi minn þar er karlmaður,
sem mér hefur yfirleitt líkað
ágætlega við Af honum er samt
svo ofboðsleg svitalykt, að
stundum er það næstum óbæri-
legt. Ég er búin að tala utan að
þessu við hann en kann ekki við
að koma að þessu umbúðalaust,
af ótta við að hann kunni að
móðgast. Hann virðist alls ekki
skilja þetta né finna lyktina.
Getur þú ekki gefið mér gott
ráð til að hrista upp í honum?
Sóla.
_______
Þetta er vissulega viðkvæmt
vandamál og við skiljum mæta-
vel þá afstöSu þína aS vilja
ekki koma beint framan að hon-
um og segja: „ÞaS er svitalykt
af þér."
Þú gætir til dæmis reynt að
halda áfram að tala utan aS
þessu við hann; nefna honum
dæmi um illa lyktandi fólk og
þar fram eftir götunum og ef
það hrífur ekki, verður þú ein-
faldlega að tala um þetta við
hann, en gættu þess þó vand-
lega að undirbúa hann, vera
hreinskilin og láta engan verða
vitni að því.
Ef þú kemur þér ekki að því,
skaltu gæta þess eitthvert kvöld-
ið að láta hann fara heim á
undan þér og lauma síðan svita-
lyktareyði í eina skúffuna hjá
honum. Daginn eftir gætir þú til
dæmis verið veik . . .
Efni blaðsins ...
Ástkæri Póstur!
Ég ætla að þakka þér fyrir allt
gott sem VIKAN hefur birt. Þar
á meðal þáttinn „Við og börnin
okkar" (er hann alveg dottinn
út af ?); framhaldssögurnar
„Óskilabarnið", „Þar til dauð-
inn aðskilur" og „Barn Rose-
mary" — og ekki má gleyma
greinunum um dulræn efni.
Og hvernig er það með hann
Ómar Valdimarsson; er hann al-
veg hættur að „skrípast"? Fyrir
alla muni biðjið hann að halda
því áfram og eins að halda
áfram að segja sínar skoðanir,
hann er enginn bréfakassi fyrir
skoðanir annarra.
Þá langar mig að biðja ykkur
alvitru að greiða úr eftirfarandi
spurningum:
1. Hvað er kvikmyndaleikstjórn
langt nám?
2. Hvað er mannfræði langt
nám?
3. Hvað er innanhúsarkitektúr
langt nám?
4. Hvað er Christopher Plummer
gamall, er hann giftur og hverr-
ar þjóðar er hann? Þetta er veð-
mál.
Loks var það eitt sem ég vildi
koma á framfæri, en það var í
sambandi við getraunaseðlana.
Hingað til hef ég ekki tímt að
klippa þá út úr blaðinu, því að
ég safna því. Mér datt f hug
hvort ekki væri hægt að prenta
litla getraunaseðla og festa þá
í miðopnu blaðsins, eins og eitt-
hvert servíettufyrirtæki gerði
einu sinni eða tvisvar.
Svo ætla ég að vona að það sé
ekki voðaleg ókurteisi að skrija
með blýanti Með kveðju til
allra starfsmanna VIKUNNAR og
þökk fyrir gott blað.
Virði ngarfy I Ist,
2. september.
Allir starfsmenn VIKUNNAR
biðja kærlega að heilsa þér og
þakka hlýleg orð. Blaðamaður-
inn sém þú talar um segist eiga
bágt með að „skrípast" öllu
lengur, þar sem hann verði jafn-
vel fyrir því í mjólkurbúðum að
fólk haldi að hann sé eitthvað
að „skrípast" á vegum VIKUNN-
AR. Aftur á móti fullvissar hann
þig um að hann hefur fullan hug
á að segja sínar eigin skoðanir,
þótt hann komi til með að virða
skoðanir annarra um ókomna
framtíð eins og hingað til.
Mannfræði mun vera langt nám,
6—9 ár, eftir því hvar fólk lærir
og hversu margar gráður það
vill fá aftan við nafnið sitt. Inn-
anhúsarkitektúr mun vera eitt-
hvað aðeins styttra (5—6 ár) og
kvikmyndaleikstjórn yfirleitt 4
ár, en í öllum tilfellum fer þetta
eftir því hvar fólk lærir og hvaða
4 VIKAN 41.TBL.