Vikan - 14.10.1971, Page 5
aðferð það notar. Stúdentspróf
er nauðsynlegt í öllum tilfellum.
Christopher Plummer er Breti, 36
ára og hamingjusamlega kvænt-
ur að því að bezt við vitum.
Þessi hugmynd þín varðandi
getraunaseðlana er því miður
óframkvæmanleg vegna gífur-
legs kostnaðar og tæknilegra
örðugleika.
„Vináttan" búin
Kaeri Póstur!
Ég þakka þér fyrir ofsalega gott
lesefni og einkum framhaldssög-
una „Barn Rosemary". Ég er
ekki búin að fá lausn á mínum
vanda frekar en aðrir sem skrifa
þér og þess vegna bið ég þig
að hjálp mér eins fljótt og þú
getur.
Ég var með strák fyrir skömmu
og við erum nýhætt að vera
saman. Einhvern veginn finnst
mér að hann vilji ekki vera vin-
ur minn, en við vinkonu mína,
sem var með honum áður, er
hann sem bróðir. Ég veit ekki
til þess að neitt alvarlegt hafi
komið upp á milli okkar sem
gæti hafa spillt vináttu okkar.
Viltu nú segja mér hvað ég á
að gera til að öðlast vináttu
hans?
Svo vona ég að þú birtir þetta
fyrir mig, því að ég hef svo lít-
inn tíma til að skrifa þér aftur
ef þetta skyldi lenda í rusla-
körfunni. Ein í tímaþröng.
Reyndu að fá vinkonu þína til
að komast að þessu fyrir þig ef
þú þorir ekki að tala við hann
sjálf að fyrra bragði, en bezt
væri náttúrlega að þú gengir
beint að honum og spyrðir hann
um ástæðuna fyrir framferði
hans.
Montrass
Elsku Pósturl
Við erum hérna tvær stelpur
sem erum í stökustu vandræðum
með hana vinkonu okkar. Hún
er ágætisstelpa en er bara svo
ofsalega ánægð með sjálfa sig.
Þetta er farið að fara svo í taug-
arnar á okkur, að við hreinlega
þolum hana ekki lengur.
Við erum búnar að gera allt sem
við getum, en allt kemur fyrir
ekki. Þegar hún fær þessi „mont-
köst", sem kemur æði oft fyrir,
er hún oft að gera grín að öðr-
um á leiðinlegan hátt.
Okkur þykir vænt um þessa vin-
konu okkar og viljum reyna að
hjálpa henni. Getur þú ekki,
Póstur góður, gefið okkur gott
ráð?
Tvær uppspenntar og
hjálparþurfi.
Mjög liklega stafar þetta af
minnimáttarkennd hjá henni; á
þessum aldri lýsir minnimáttar-
kennd sér gjarnan á svipaðan
hátt og það gerir hjá vinkonu
ykkar. Þótt það sé dálitið and-
styggilegt, ættuð þið einhvern
tíma að leika sama leikinn við
hana og sjá hvernig henni verð-
ur við.
Að öllum likindum verður hún
sár og fer í fýlu og þá skuluð
þið nota tækifærið og benda
henni á, að þið hafið einungis
verið að leika hegðan hennar
sjálfrar eftir.
Lágkúruleg
krossgátuverðlaun
Kæri Póstur!
Þannig er, að ég ræð alltaf
krossgáturnar í VIKUNNI og
fyrir kemur að ég sendi þær.
Svo um daginn fékk hún frænka
mín verðlaun og okkur fannst
þau svo lág, að ég ákvað að
skrifa þér og biðja þig að koma
því á framfæri að verðlaunin
hækki eitthvað. Þau eru búin að
vera 250 allt of lengi. Ertu ekki
sammála? Hvernig finnst þér
skriftin? Ein óð í krossgátur.
Jú, svo sannarlega er ég sam-
mála og þrátt fyrir verðstöðvun-
ina er þessu hér með komið til
réttra aðila (og þér að segja, þá
hafa allir tekið vel í þetta hér í
fyrirtækinu). Skriftin er falleg og
regluleg.
Ljóma
smjörlíki
í allan bakstur!
LJÓMA VÍTAMÍN SMJÖRLÍKI GERIR ALLAN
MAT GÓÐAN OG GÓÐAN MAT BETRI
!• smjörliki hf.
41. TBL. VIKAN 5