Vikan - 14.10.1971, Page 17
A
veruleika, verðhækkanir á heimsmarkað-
inum, sem auðvitað ultu yfir okkur, eins
og aðra og órói og vandræði á vinnu-
markaðinum. Kosningarnar í fyrra gengu
líka ekki eins vel og við höfðum búizt
við. En það eru líka mörg verkefni, sem
örva og gleðja, þótt ekki sé hægt að
koma þeim í framkvæmd í augnablikinu.
Það hefur verið ómögulegt að framkvæma
mikinn hluta af þeirri áætlun, sem sam-
þykkt var á flokksþinginu; styttri vinnu-
tíma, lagfæringu á kjörum aldraðra og
þeirra lægst launuðu, samræmingu stétta
og fleira og fleira.
En þrátt fyrir alla erfiðleika er það
ljóst að ýmislegt hefur áunnizt, og það
er verðugt viðfangsefni að berjast fyrir
bættum lífskjörum og betri samstöðu
þjóðarinnar; reyndar er óánægjan meðal
almennings lika driffjöður til að sækja
fram og gefast ekki upp. Það sem gerir
starf mitt áhugavert er að vinna að fram-
vindu þessara mála og að reyna að láta
hugsjónir okkar rætast.
Fáið þér oft höfuðverk?
— Nokkrum sinnum á ári og þá tek ég.
venjulega höfuðverkjatöflu.
Hver er uppáhaldsjmatur yðar?
— Ég er ekki mikill matmaður. Heima
borðum við pylsur, spaghetti, blóðbúðing
og ýmislegt í þá veru. Þegra við gerum
okkur dagamun, þá borðum við lamba-
kótelettur.
Drekkið þér vin og aðra áfenga drykki?
— Já, en ekki oft.
Hve Iengi sofið þér og vaknið þér
kannske á nóttunni, til að brjóta heilann
um einhver vandamál?
— Ég fæ sjaldan meira en fimm til sex
klukkutíma svefn. En ef ég hef vakað
lengi, þarf ég að sofa út í tvo til þrjá
morgna. Ég sofna venjulega strax og sef
svo fast að ég vakna ekki einu sinni við
vekjaraklukku. Þegar ég er einn heima,
læt ég venjulega símann vekja mig. Það
kemur sjaldan fyrir að vandamálin haldi
fyrir mér vöku, eða að ég vakni á nótt-
unni vegna þeirra, kannske nokkrum
sinnum á ári.
Hvers vegna reykið þér?
— Það er hjá mér eins og svo mörg-
um öðrum, það er orðinn vani. Því er nú
verr, því að mér finnst það peningasóun
og örugglega óhollt, stundum er það líka
óþægilegt fyrir þá sem umhverfis okkur
eru.
Svarið þér sjálfur í símann heima hjá
yður og hafið þér leyninúmer?
— Ég hef venjulegan síma og líka
leyninúmer. Ég tek þennan venjulega
stundum úr sambandi Það getur verið
nauðsynlegt fyrir þá sem eiga lítil börn,
þau þurfa að hafa svefnfrið. Stundum
þarf ég að svara einum brjátíu símtölum
á kvöldi. Ég hafði líka leyninúmer, áður
en ég varð forsætisráðherra, en ég varð
Svarar
nær-
göngulum
spurn-
ingum
að skipta um númer, vegna þess að ég
fékk stundum hinar furðulegustu upp-
hringingar. Það kom til af því að sá sem
hafði haft númerið áður, var síður en
svo löghlýðinn borgari. Einu sinni hringdi
einhver náungi klukkan þrjú um nótt og
spurði hvort • þetta væri hjá sámgöngu-
málaráðherranum. Ég svaraði því ját-
andi. „Hvenær í fjandanum fer lestin frá
Eslöv til Lomma"?
Hvaða ákvarðanir eru erfiðastar?
— Þér skuluð hafa það í huga að
stjórnin vinnur saman. Við ræðum mál-
in frá öllum hliðum, veljum og höfnum,
þangað til samstaða næst. Þetta finnst
mér ákaflega þægileg vinnutilhögun.
Starf mitt er að mörgu leyti einmanalegt
starf, en ég er aldrei einangraður. Það
gefur að skilja að þær ákvarðanir, sem
ég verð að taka, eru alltaf ábyrgðarmikl-
ar og erfiðar viðfangs. En ég á sjaldan
erfitt með að taka ákvarðanir. Það verð-
ur ekki umflúið. Það þýðir ekki annað
en að hugsa um málefnið frá öllum hlið-
um með ábyrgðina í huga. Það er ekki
hægt að krefjast meira af sjálfum sér.
Það þýðir lítið að skjóta málunum á
frest.
Hlustið þér á pop-tónlist?
— Á tímabili hlustuðu synir mínir á
hana, þá heyrði ég þetta stundum.
Hvað finnst yður um klæðnað konu
yðar?
Frnmhald á bls. 36.
Einstaklingurinn
Drekkið þér vin og aðra áfenga
drykki? Hvers vegna reykið þér?
Hvað sofið þér marga klukkutima?
Hvað finnst yður um klæðnað
konunnar yðar?
Hvað finnst yður um klámölduna?
Hvernig duga húshaldspeningarnir?
Hvað ætlið þér að gera þegar þér
hættið störfum sem
forsætisráðherra?
41. TBL. VIKAN 17