Vikan - 05.10.1972, Qupperneq 14
ELTON
JOHN
hljómar eins og
þverskurður af
plötusafni
Lífið er svo sannarlega dans
á rósum hjá Elton John þessa
dagana. Vísbending um það er
t. d. kvöldverður með Mar-
gréti Bretaprinsessu. 11 millj-
ón kr. einbýlishús, nokkrir tug-
ir kvikmyndatilboða (sem hann
hafnaði að vísu öllum) jafn-
framt því að geta sagzt hafa
, etið ostrur í Ástralíu í fyrradag
og hráan fisk í Japan í gær. En
líf sem býður upp á slíkt, er
ekki fyrirhafnarlaust. Fyrir-
höfnin er ef til vill mest í upp-
hafi, en það er engu að síður
erfitt og krefst mikils að vera
popptónlistarmaður í 1. klassa.
Einnig er nauðsynlegt að skipta
. um nafn. TJpphaflega hét Elton
John bara Reginald Kenneth
Dwight.
Reginald Kenneth Dwight
byrjaði að lemja píanóið þegar
hann var 3ja ára og hóf nám í
píanóleik 4ra ára gamall. Móðir
hans rak hann oft í rúmið um
miðjan dag, svo hann gæti leik-
ið í samkvæmum á kvöldin.
Þegar hann var 11 ára gamall
eignaðist hann sína fyrstu plötu
með Bill Haley og síðan þá
hefur ekkert rúmast í huga
hans nema popp. Eins og er,
á hann um það bil 10.000 plöt-
ur og segulbandsspólur og hann
getur sagt þér á hvaða merki
hvaða plata er allt til daga Pat
Boone og Doris Day. Hann var
á tímabili við nám í Royal Aca-
demy of Music, en svo hataði
hann klassíska tónlist, að um
leið og hann kom heim fannst
honum sem hugarástandið væri
ekki eðlilegt fyrr en hann hafði
spilað a. m. k. eina Jerry Lee
Lewis plötu.
Á árinu 1964 byrjaði hann að
leika á orgel með hljómsveit,
sem hét Bluesology. Með henni
var hann í 3 ár en hætti vegna
þess að hann fékk aldrei að
syngja neitt og gat í raun ekki
spilað neitt af viti á orgelið.
1967 svaraði hann auglýsingu
þar sem auglýst var eftir laga-
smiðum. Hann var ráðinn og
fékk 10 £ á viku eða um 2000
kr. Einnig þá var Bernie Taup-
in ráðinn, eh hann var texta-
höfundur. Þeir byrjuðu síðan
að semja, en fyrstu tilraunir
þeirra voru ekki upp á marga
Þetta er ekki óalgeng sjón á hljómleikum hjá Elton Jóhn