Vikan - 05.10.1972, Síða 26
MAÐUR
ER
NÚ
EINU
SINNI
MANN-
LEGUR
Vikan heimsækir
Guðrúnu Úlafsdóttur,
sjónvarpsþul
TEXTI:
KRISTÍN HALLDÓRSDÓTTIR
MYNDIR:
SIGURGEIR SIGURJÓNSSON
- Ég verö að játa, að ég á dálitiö
erfitt með að brosa framan i
dauðar vélar. Það er helzt, að
brosið komi af sjálfu sér, þegar
Gústi vinur okkar hefur verið á
skerminum, sagði Guðrún
ólafsdóttir, sjónvarpsþulur,
þegar við heimsóttum hana að
Njörvasundi 27, þar sem hún býr
með fjögra mánaða dóttur og
eiginmanni, Asgeiri Péturssyni,
bústjóra á minkabúinu Dalsbúi i
Helgadal.
- Hér er yndislegt að búa, rólegt
og næstum eins og i sveit, sagði
Guðrún, og ég get ekki hugsað
mér að flytjast úr þessu hverfi.
— Maðurinn minn gæti víst þegið, að ég væri meira heima, en hann
skilur vel, að ég get ekki án.starfs míns verið, sagði Guðrún og lagði
brosandi af stað í flugferð til Færeyja.
Dóttir þeirra Guðrúnar og Ásgeirs er i
sínu, engu síður en móðir hennar. Héi
Og það er tleira, sem hún
Guðrún getur ekki hugsað sér,
t.d. að hætta að fljúga. Hún hefur
starfað sem flugfreyja hjá Flug-
félagi Islands meira og minna i
rúm 6 ár eða siðan hún lauk
Verzlunarskólaprófi.
- Ég veit eiginlega ekki, hvað
mér finnst svona sérstakt við
þetta starf, en ég get ekki hugsað
mér að hætta þvi, og þegar ég
verð of gömui til að standa i
þessu, þá verð ég að' finnaeitt-
hvað spennandi f staðinn, ferða-
mannamóttöku eða eitthvað svo-
leiðis. Vinnutiminn hentar mér
lika ljómandi vel. ílg prófaði að
vinna á skrifstofu frá kl. 9-5,
meðan ég gekk með þá litlu, og
mér hundleiddist þessi fasti
vinnutími.
- Auðvitað hef ég gaman af að
ferðast og sjá mig um, og það er
fint að geta fellt það inn i starfið.
A skólaárunum fór ég til útlanda
á sumrin, fyrst á skóla i Dan-
mörku, siöan vann ég 2 sumur
sem au-pair stúlka i Englandi, og
fjórða sumarið vann ég á barna-
heimili i Berchtsgaden i þýzku
Olpunum. Það er einhver
faliegasti staður, sem ég hef
komið á um ævina, og ekki spillti,
aö i fjöllunum beint á móti var
Arnarhreiðrið, fyrrverandi
bústaður Hitlers, sem þá var búið
að gera að veitingastað.
- Eftir að ég byrjaði i fluginu,
hef ég lika ferðast mikið, ekki
bara um Evrópu, heldur hef ég
lika t.d. komið til Libanon og
Puerto Rico, sem ég hef reyndar
heimsótt tvisvar sinnum og finnst
alltaf 'jafn gaman að koma
þangað.
- Er ekki erfitt að stunda svona
starf, þegar heimili og barn
kallar lika á þig?
- Við Asgeir giftumst fyrir
rúmu ári, og auðvitað urðu það
mikil viðbrigði, sérstaklega eftir
26 ViKAN 40. TBL.