Vikan - 03.05.1973, Qupperneq 5
og er bæði bóklegt og verk-
legt. Svo mó bæta því við þess-
ar upplýsingar, að fóstrunemi
þarf að hafa landspróf, gangn-
fræðapróf eða sambærileg próf,
en þar sem þú ert aðeins 15
ára, verðurðu að hafa biðlund
í 3 ár vegna aldurstakmark-
anna. Annars geturðu fengið
nánari upplýsingar hjá skrif-
stofu Barnavinafélagsins Sumar-
gjafar, Fornhaga 8 í Reykjavík
eða hjá Fóstruskólanum, Lækj-
argötu 14 b. Stafsetning er góð
hjá þér, og úr skriftinni má
lesa vandvirkni og jafnaðargeð,
og hvort tveggja ætti að koma
þér að gagni í fóstrustarfínu.
Skrifa eða hringja
í 15. tbl. birtist bréf frá „einni
í rusli". Pósturinn þyrfti að ná
sambandi við bréfritara, en hef-
ur glatað bréfinu. Bréfritari er
vinsamlega beðinn að hafa sam-
band við Póstinn skriflega eða í
síma.
Svartil „bjartsýnnar"
Bréf þrtt bendir alls ekki til
þess, að þú sért lítið gefin, eins
og þú segir, það var vel stílað
og greinargott, skriftin verulega
snotur og snyrtilegur frágang-
ur, stafsetningarvillur næstum
engar. Hins vegar bendir öll
frásögn þín til þess, að þú sért
haldin mikilli minnimáttar-
kennd, og stúlkum með minni-
máttarkennd hættir einmitt til
að lenda í svipaðri aðstöðu og
þú ert nú í, vegna þess að þær
þurfa sífellt nýja og nýja sönn-
un þess, að einhverjum lítist vel
á þær. Þú ert í ákaflega erfiðri
aðstöðu núna, og það er hreint
ekki auðvelt fyrir óviðkomandi
að ráða þér heilt, þó þú skýrir
ástandið vel í bréfi þínu. Póst-
urinn er ekki óskeikull, eins og
augljóst má vera, en þú biður
svo innilega um ráðleggingar,
og hér færðu álit Póstsins:
Sýndu nú, að þú „hafir bein í
nefinu", eins og þú segist hafa,
ef mikið liggi við, og þoldu
ekki þessum piltum lengur slíka
framkomu. Það er frekar ótrú-
legt, að sá, sem þér þykir vænit
um, geti virt þig eftir það, sem
á undan er gengið, og likam-
leg hrifning er ekki nóg, ef
virðing'una vantar. Skiptu um
umhverfi og skapaðu þér nýtt
líf með nýju fólki. Og í öllum
bænum reyndu að sigrast á
minnimáttarkenndinni. Hrútur
og meyja eiga sæmilega sam-
an, og skriftin bendir til þess,
að þú sért blíðlynd, viðkvæm og
örlát. Ef við kynnum aðferð til
þess „að vera sjálfstæður og
öruggur í framkomu og jafn-
framt lífsglaður og aldrei í
vondu skapi", þá mundum við
ekki lúra á þeirri vitneskju, þvi
ósköp væri gaman að geta hjálp-
að öðrum um slíka eiginleika.
„Samúel og Jónína“
Kæri Póstur!
Ég vil byrja á því að þakka
Vikunni fyrir mjög gott efni og
þó sérstaklega 3m — músík með
meiru. Þá ætla ég að koma mér
að aðalefninu. Er hægt að ger-
ast áskrifandi að blaðinu „Samú-
el og Jónína"? Hvert á að
skrifa? Hvað kostar eitt eintak?
Hvað kemur það oft út í mán-
uði? Eru gefin út einhver önn-
ur blöð með poppi og ýmsu
öðru fyrir ungt fólk? — Hvað
lestu úr þessari hræðilegu
skrift, og hvernig eiga hrútur-
inn (stelpa) og nautið (strákur)
saman? Fyrirfram þökk fyrir
birtinguna, sem ég vona að
verði. S.T.
P.S. Getur þú eða þið ekki birt
myndir og viðtal við hljómsveit-
ina Rifsber (Rifsberja), hvort
sem hún heitir, og líka Roof
Tops.
Þórarinn Jón Magnússon, rit-
stjóri „Samúeis og Jónínu"
sagði okkur, að það hefði orðið
hlé á útgáfustarfseminni, þó
ekki væri þar með sagt, að par-
ið hefði endanlega lagt upp
laupana. Þú verður bara að
bíða og sjá til, og í náinni fram-
tið verðurðu víst að láta þér
emmin 3 nægja. Skriftin bendir
til fljótfærni og hroðvirkni, og
hrúti og nauti er spáð skemmti-
legri sambúð, þó ekki verði allt
í rólegheitunum á bænum þeim.
Fyrrnefnda hljómsveitin mun
heita Rifsberja, og Roof Tops
var tekið til meðferðar í 13.
tbl., sem út kom 29. marz sl.,
og þar geturðu m. a. s. komizt
að því, hvaða skónúmer kapp-
arnir nota, sem hlýtur að skipta
alla poppunnendur miklu máli.
KRISTIIMINI
GUÐIM ASOIM ¥
SUÐURLANDSBRAUT 20 - SÍAAI 86633
18. TBL. VIKAN 5