Vikan - 03.05.1973, Page 7
MIG DREYMDI
TRÚLOFUN
Kæri draumráðandi!
Mig langar að biðja þig að ráða fyrir mig draum, sem
mig dreyrrtdi nýlega. Mér fannst ég vera stödd heima í
herberginu mínu. Þá kemur til mín strákur, sem ég er
mjög hrifin af. Hann bað mín og setti trúlofunarhring á
hægri höndina á mér. Ég hef aldrei séð svona fallegan
hring og var mjög ánægð. Svo fannst mér ég fara og segja
við stelpu, sem ég þekki lítillega: „Sjáðu, ég er trúlofuð“.
Þá segir hún: „Já, ég líka“. Hún var hvítklædd í draumn-
um. — Með fyrirfram þakklæti.
Ljósbjörg.
Engin rós er án þyrna. Þú skalt muna það, þegar stúlkan
sem þú sást í draumnum fer að telja úr þér við sameigin-
legt starf eða nám ykkar og reyna að fá þig til þess að
hætta því. Ef þú verður nógu staðföst og lætur ekki óvið-
komandi aðila hafa áhrif á ákvarðanir þinar áttu bjarta
framtíð fyrir höndum.
SENNA
Kæri draumráðandi!
Mig langar að biðja þig að ráða fyrir mig eftirfarandi
draum. Mér fannst ég og tvær vinkonur mínar vera að
vinna þar sem við sóttum nýlega um vinnu. Við lentum í
rifrildi og stóðum ég og X saman á móti Y. Y reiddist
mikið, réðst á fótinn á mér og sleit hann af. Ég hef lengi
verið veik í fætinum. Þegar Y hefur slitið af mér fótinn,
veltur hún niður stiga og hleypur síðan út. X hjálpaði mér
niður stigann og út á eftir henni, en þá hleypur hún á
undan okkur og veifar fætinum. En þá vaknaði ég.
Didda.
Y er sú eina ykkar, sem fær vinnuna og við það verðið
þið nátengdari hvor annarri. En þú skalt samt gæta þess
að halda vináttu þinni við Y, því að hún á eftir að verða
þér ómetanleg hjálp, ef þú hrekur hana ekki frá þér með
þótta þínum.
GAMALL VINUR
Kæra Vika!
Mig langar að biðja um draumráðningu. Ég þóttist vera
við vinnu mína að kvöldlagi og fannst mér gamall vinur
minn vera kominn í heimsókn. Þegar ég svo hafði smá-
stund frá starfinu, ætlaði ég að tala við hann og sá hann
þá liggja í uppbúnu hjónarúmi í svefnherberginu mínu,
en þar er ekkert hjónarúm. Hann var eins og heima hjá
sér og las i blaði á meðan hann beið eftir mér. Ég fór svo
aftur til starfa og verður þá litið út um gluggann og sé
bílinn hans standa fyrir framan húsið. Þessi bíll líktist þó
ekki bílnum hans, heldur var hann alveg eins og bíll fyrr-
verandi eiginmanns míns, en ég er skilin fyrir nokkrum
árum. Lengri var draumurinn ekki.
Með fyrirfram þakklæti. S.Á.
Þessi draumur er margslungnari en í fljótu bragði virð-
ist. Þú munt innan skamms kynnast manni, sem þér fellur
vel við og þið munuð hefja sambúð. Þið verðið bæði ham-
ingjusöm og ánægð, en því aðcins að þú gætir þess að þessi
gamli vinur þinn verði þess ekki valdandi að samband þitt
og mannsins spillist. Það þarf ekki að vera vilji hans, en
slys eða aðrir erfiðleikar, sem hann verður fyrir orsaka
það að hann krefst þess að þú sinnir honum meira en góðu
hófi gegnir.
KETTLINGAR
Kæri draumráðandi!
Mig langar til að biðja þig að ráða þennan draum fyrir
mig.
Mér fannst ég og skólasystir mín vera staddar heima
hjá mér á jólunum. Stofan hafði breytzt og leit út eins og
hlaða. Hún var mjög fábúin húsgögnum. Samt var þar
dökkblár sófi, sem margt fólk sat í. Ég spurði fólkið, hvort
það ætlaði ekki að fara að fara, en það sagðist ætla að
vera heima á jólunum. Mér sárnaði þetta og bað skóla-
systur mína að koma fram í eldhús. Við fórum þangað og
það leit út eins og það er, nema á einum skápnum var
smágat. Tveir litlir kettlingar komu út um þetta gat, þeir
voru á stærð við mýs. Við tókum þá í fangið, en þeir
sluppu og fóru aftur inn um gatið. E.S.
Einhverjir erfiðleikar, sem þú átt erfitt með að sætta þig
við, steðja að þér og fjöískyldu þinni. Liklega verðið þið
fyrir miklu umtali, en þú skalt ekki taka þér það nærri.
Þú átt á hættu að missa góðan vin, ef þú gætir þín ekki í
samskiptum við hann.
í KJÓLAVERZLUN
Kæri draumráðandi!
Viltu reyna að ráða þennan draum fyrir mig, ef þú getur?
Ég var stödd í kjólaverzlun og ætlaði mér að kaupa kjól
til þess að nota í fermingarveizlu. Afgreiðslustúlkan kom
með síðan kjól, sem ég mátaði og fór hann mér mjög vel.
Mér þótti hann vera marglitur. Afgreiðslustúlkan segir
mér að það sé mikill kostur við kjólinn að ég geti notað
hann á tvo vegu. Hún snýr kjólnum svo við og lætur mig
fara í hann aftur. Þá er hann orðinn að buxnakjól, sem
var eins og sniðinn á mig og datt mér strax í hug, hve vel
hann færi við skó, sem ég á.
Kona, sem ég þekki var líka að afgreiða þarna og fannst
henni, að ég ætti endilega að kaupa kjólinn og sérstaklega
vegna þess að ég gæti notað hann á tvo vegu. K.B.
Ekki er það nú trúlegt að þessi draumur merki nein
stórtiðindi fyrir þig. Það eru engin þau tákn í draumnum,
sem eru svo skýr að af honurn megi ráða neitt ákveðið.
Nafn konunnar, sem afgreiddi í búðinni, getur þó bent til
þess að náttúruhamfarimar i Vestmannaeyjum eigi eftir
að snerta þig persónulega, án þess þó að skaða þig nokkuð.
Á SJÚKRAHÚSI
Kæri draumráðandí!
Mig langar til að biðja þig að ráða þennan draum fyrir
mig. Mig dreymdi að ég kom að stórri hæð, þar sem stóð
nýbyggt sjúkrahús og átti ég að gangast þar undir upp-
skurð. Ég vissi að ég átti að fá blóðgjöf áður en ég yrði
skorin upp.
Allt í einu finnst mér ég vera komin i náttföt, sem
sjúkrahúsið átti. í þeim stend ég á breiðum gangi og verð-
ur mér litið inn í setustofuna. Þar situr eldri kona í sams
konar klæðnaði. Ég þekki þessa konu ekki neitt, en móðir
mín er kunnug henni. í heimsókn hjá konunni var amma
mín og sonur hennar. Ég varð hissa á því að sjá þau
þarna, en ég talaði ekkert við þau og þau ekki við mig.
Lengri varð draumurinn ekki. B.S.G.
Þú ert í giítingarhugleiðingum og munt innan skamms
ganga í hjónaband. Þessi gifting þín veldur nokkrum úlfa-
þyt í fjölskyldunni og þú lendir í nokkrum erfiðleikum
þess vegna. Það kemur ekki fram í draumnum, hve lengi
þessir erfiðleikar standa né hvernig þeir leysast, en trú-
lega raknar úr þeim með tímanum eins og öðru.