Vikan - 03.05.1973, Qupperneq 47
Hrúts-
merkið
21. marz—
20. apríl
Ef þú hefur ferðalög
og útivist í huga um
þessar mundir, ættirðu
ekki að slá því á frest.
Sértu á lausum kili
hvað atvinnu snertir,
ættirðu að taka úti-
vinnu fram yfir allt
annað.
Nauts-
merkiS
21. april—
21. maí
Þú hefur verið fremur
kærulaus varðandi hús
og heimili undanfarið
og ættir ekki að fresta
deginum lengur því,
sem þar þarf að kippa
( lag. Einnig sakaði
ekki að fara eins og
einu sinni yfir það,
sem þú hefur gert.
Tvfbura-
merkiS
22. maí—
21. júní
Þessi vika ætti að
verða skemmtileg og
ýmislegt óvænt kemur
væntanlega upp á
diskinn. Þú eignast
nýtt áhugamál, sem
áreiðanlega á eftir að
verða þér til mikillar
ánægiu. Ýmislegt, sem
þér hefur áður þótt
Krabba-
merkiS
22. júní-
23. júlí
Þú hefur mikið saman
að sælda við ýmsa fé-
laga þína og kunn-
ingja og hefur gaman
af. Gættu þess að vera
ekki síngjarn og frek-
ur í framkomu við þá.
Á miðvikudaginn ætt-
irðu sérstaklega að
hafa það hugfast.
Ljóns-
merkiS
24. júlí-
24. ágúst
Þú ættir að halda þig
sem mest heima við
þessa vikuna og
blanda ekki mikið
geði við aðra en fjöl-
skyldu og vini. Farðu
varlega í fjármálun-
um. í ástum ætti að
blása heldur byrlega
fyrir þér á næstunni.
Meyjar-
merkiS
24. ágúst—
23. sept.
i
Varastu hvers konar
óhóf og farðu varlega
í peningasökum. Þú
hefur þungan hug á
einhverjum og ekki
að ástæðulausu, en
reyndu að taka því
með stillingu. Hikaðu
ekki við að leita til
þeirra, sem þú treystir.
Vogar-
merkiS
24. sept,—
23. okt.
Víktu hvergi frá þeirri
stefnu, sem þú hefur
markað þér. Láttu þig
engu skipta, þótt ein-
hverjir séu með raus
og aðfinnslur við
gerðir þínar og skoð-
anir. Þú átt gott með
að laga þig að mis-
munandi umhverfi.
Stein-
geitar-
merkiS
22. des.—
20. jan.
Það getur verið, að
þú verðir að leggja
meira á þig til að ná
settu marki, heldur en
þú kærir þig um. Allt
bendir til þess, að tak-
ist þú erfiðið á hendur,
fari allt vel og þú mun-
ir telja þig hafa vel
sloppið.
Dreka-
merkið
24. okt.-
22. nóv.
Haltu þig sem mest að
fjölskyldu þinni, því
að hún mun veita þér
mesta uppfyllingu.
Líklega eru góðir
tímar framundan, sem
færa þér mikla lukku.
Leggðu ekki út í neitt
ferðalag, áður en þú
hefur athugað málið.
Lf
Vatnsbera-
merkiS
21. jan,—
19. feb.
Þú skalt treysta á hag
stæða lausn mála
þinna. Láttu vonir þín-
ar og óskir í Ijós við
þær persónur, sem
helzt geta orðið þér
að liði. Þú munt mæta
skilningi þaðan, sem
þú áttir sízt hjálpar
von.
Bogmanns-
merkiS
23. nóv.—
21. des.
Þetta verður óvenju-
lega þægileg vika
með mörgum skemmti-
legum atburðum.
Sýndu, að þú ert sjálf-
ur fær um að ráða
fram úr þeim vanda,
sem steðjar að þér.
Óskir þínar munu
hljóta stuðning.
Fiska-
merkið
20. feb.—
20. marz
Vandamál, sem þú
hefur átt við að etja
um langt skeið, leysist
skyndilega. Þú ættir
að taka þér hvíld um
nokkurn tíma, ef þess
er nokkur kostur. Boð
hjá ættingjum eða
kunningjum mun veita
þér mikla ánægju.
í hinu margbrotna þjóðfélagi nútímans
eru hvers konar tryggingar æ nauðsynlegri
og mikils um vert að því fé, sem varið er
til þeirra, sé varið á hagkvæman hátt.
Samvinnutryggingar hafa þvi lagt rika
áherzlu á að breyta eldri tryggingategund-
um og kynna ýmis konar nýmæli á sviði
tryggingamála.
Mikils er um vert, að viðskiptavinir noti
sérþekkingu okkar um val á nauðsynlegum
tryggingum og starfsfólk Aðalskrifstofunnar
og umboðsmenn um gllt land eru reiðu-
búnir að gera iðgjaldaútreikninga og
kostnaðaráætlun án nokkurra
skuldbindinga um viðskipti.
tryggingaval
Tryggingafulltrúar okkar eru sérstaklega
þjálfaðir til þessa leiðbeiningastarfs og eru
viðskiptavinir og aðrir hvattir til að nota
þessa þjónustu. Hafið því samband við Að-
alskrifstofuna eða næsta umboð og óskið
leiðbeininga og áætlunar um tryggingamál
yðar.
SAMMNINUTRYGGINGAR
ÁRMÚLA 3 - SÍMI 38500
MIBAPRENTUN
LEITIÐ UPPLÝSINGA
HILNIR HV
Síöumúla 12 - Sími 35320
18. TBL. VIKAN 47