Vikan - 19.07.1973, Qupperneq 29
LAMBA-
KJÖTS-
VEIZLA
A fimmtudagskvöldum í júní,
júlí og ágúst býður Hótel Saga
upp á fjölbreytt landkynningar-
kvöld. Þar eru hlaðin borð
íslenzkra rétta sem skolað er nið-
ur með Egilspilsner og íslenzku
brennivíni. Áður en gestirnir eru
leiddir að hlöðnu borði íslenzks
lambakjöts, sem framreitt er á
óteljandi mismunandi vegu, er
þeim veittur mjög hjartsstyrkj-
andi drykkur blandaður úr
islenzku brennivíni og fleiri heil-
næmum vökvum. Á meðan fólkið
rekur tunguna í þennan aperitiv,
sem í sannleika bragðast afar vel,
er messað yfir því um gæði
íslenzks varnings. Því er sagt allt
sem hægt er að segja gott um
íslenzkar sauðkindur. Ullin er
lof uð og prísuð og það sem sagt er
um kjötið lofar öllu góðu urh
framhald kvöldsins. Yfirsaklaust
ferðafólkið er líka dembt hrósi
um íslenzka húsgagnaframleið-
endur, leirmunagerðarmenn og
jafnvel skartgripasala. Tilgang-
inn orðaði Konráð Guðmundsson
hótelstjóri á þessa leið: ,,úr því
að ferðamennirnir koma hingað
er um að gera að láta þá losa sig
við alla þá doll'ara, sem þeir vilja
losna við."
Annars sagði Konráð ástæðurn-
ar fyrir því að stofnað var til þess-
arra kvölda, einkum vera tvær.
Annars vegar sú fyrrnefnda, að
losa ferðafólk við dollara og hins
vegar sú, að útlendingar sem hér
hafa verið á ferð undanfarin
sumur' hafa kvartað undan
skammtanarýrð höfuðstaðarins
og lái þeim hver sem vill. Þessi
fimmtudagskvöld eiga að bæta
lítiis háttar úr þessu. Það hlýtur
að hafa verið ákaflega ánægju-
legt fyrir gömlu amerfsku hjónin,
sem voru í meirihluta á fyrsta
kynningarkvöldinu, að horfa á
falleg íslenzk ullarnærföt á
fallegum íslenzkum stúlkum.
Mikil reiðarinnar ósköp af
fallegum fatnaði er annars hægt
að framleiðar úr íslenzkri ull.
Jakkar og blússur, vesti. pils og
kjólar og svo náttúrulega peysur í
öllum mögulegum stærðum og
gerðum.
VAGEN, PASSAT
hornalínusamtengingu, diskum
að framan, en skálum að aft-
an. Á ,,TS'gerðinni eru loftheml-
ar, en þeir eru fáanlegir á allar
gerðir.
Hæð undir lægsta punkt full-
hlaðins bíls er 12 cm, en þess má
geta til samanburðar, að venju-
legur fullhlaðinn Volkswagen er
14 cm. Hægt er að panta belg-
meiri hjólbarða, sem bæði lyfta
honum aðeins og auka aksturs-
hæfileika hans.
Hitakerfi ersambyggt loftræsti-
kerfinu með blöndun á fersku og
heitu lofti eftir þörfum. Hitinn er
tekinn frá kælikerfi vélar.
Framsætin eru stillanleg í 11
stöður og bökin í 7.
Meðal helztu öryggisatriða má
nefna bólstrað öryggismælaborð,
klætt öryggisstýrishjól, öryggis-
stýrislás og bólstruð sólskyggni.
Meðal nýjunga í bílnum eru sér-
hannaðir plastlistar á hurðum,
sem koma í veg fyrir skemmdir á
hurðum vegna opnunar hurða á
þröngum bílastæðum.
Vélin er frammí og er vatns-
kæld. En vatnskassinn ervið hlið-
ina á vélinni.
Passatinn er með framhjóladrif
og sisamhæfðan f jögra hraða gír-
kassa, en sjálfskipting er fáanleg.
Útsýni úr Passat er sérlega gott.
Sagt er, að sjóndeildarhringur
ökumanns sé 340 gráður.
í júli eru væntanlegir fyrstu 10
bílarnir, en í haust hefst
innflutningur af fullum krafti,að
sögn sölumanns hjá Heklu.
Blaðamanni Vikunnar var boð-
ið í ökuferð í nýja bílnum og
reyndist hann eins og bezt verður
á kosið af bíl í þessum stærðar-
flokki, mjög lipur í stýri og
aksturshæfileikar frábærir.
29. TBL. VIKAN 29