Vikan - 19.07.1973, Blaðsíða 48
MIG DREYMDI
BRÚÐARKJÓLL
Kæri draumráðandi!
Ég er hrifin af strák og var að hugsa um hann
kvöldið áður én mig dreymdi þennan draum. Um
nóttina dreymir mig, að ég sé búin að kaupa mér
brúðarkjól og ætli að fara að gifta mig. Ég held, að það
hafi verið áðurnefndur strákur, sem ég ætlaði að
giftast. Svo finnst mér ég vera inni í herberginu mínu
aðmáta kjólinn. Þetta var síður kjóll, gulurá lit, en ég
er yfirleitt ekki hrifin af gulu. Þegar ég stend fyrir
framan spegilinn, kemur mamma inn. Henni lízt
eitthvað ekki vel á kjólinn.,, Jæja, kannski ég hætti þá
bara við þetta", segi ég. En það vill hún alls ekki og
segir að þetta muni allt blessast vel.
Og þá varð draumurinn ekki lengri.
Ég vona að þú getir ráðið eitthvað í þetta fyrir mig.
Með fyrirfram þökk.
Jóna á Akureyri.
Það er liklegt að þú verðir fyrir einhverju smávægi-
legu tjóni, sem þú tekur nær þér en ástæða er til. Móðir
þín muii bæta þér skaðann, sem er langt frá því að vera
alvarlegur.
RIFRILDI
Kæri draumráðandi!
Ég hef aldrei skrifað þér áður , en oft hugsað um að
gera það og nú ætla ég að láta verða af því.
Þetta er kannske ekki neitt sérstakur draumur, en
mig langar til þess að vita hvort hann boðar eitthvað.
Ég var stödd með vinkonu minni i laugunum. Ég er
að fara út í skýli og þá kemur kona, sem ég kannast
við, og rekur mig upp úr. Ég skammaðist við hana..
Svo breyttist umhverfið og ég var sfödd í húsinu, sem
ég átti heima í til ársins 1969. Þar hitti ég konuna aftur
og fannst mér hún eiga heima í íbúðinni, sem ég bjó í í
10 ár. Mér fannst það sama og gerðist í laugunum
endurtaka sig og konan rak mig út. Ég fór niður í
hjólageymsluna og þar fannst mérallt vera eins og það
var, þegar ég átti heima þar.
Þá fór ég allt í einu að segja vinkonu minni, að á
þessum stað hafi ég alltaf verið í mömmuleik árið sem
pabbi dó, en þá var ég átta ára. Þá kom konan aftur
við förum aftur að rífast og við það vaknaði ég.
S.l.
Þaðerekki þægilegtað dreyma endalaust rifrildi, en
þessi draumur boðar þér ekkert slæmt, því máttu
treysta. Hann er fyrir einhverjum gleðitíðindum, sem
koma þér þægilega á óvart.
SPRENGJUFLUGVÉL.
Kæri draumráðandi!
Mig langar að biðja þig um að ráða fyrir mig þennan
draum. Ég er í skóla úti á landi og er að Ijúka honum
og hef spurt nokkrar skólasystur mínar, hvað þetta
boði og þær sögðu mér að skrifa þér.
Mig dreymdi, að ég sæi flugvél f Ijúga í loftinu og hún
varpaði niður sprengju. Þegar spreng jan sprakk, rann
frá henni glóandi hraun. Ég og systirmín vorum inni í
rútu og sáum rennslið. Ég stökk út og bað hana að f lýta
sér, því að rennslið færðist nær. Hún komst út áður en
rennslið kom að bilnum og ég vaknaði við það, að við
vorum báðar komnar heim , heilar á húfi.
Með fyrirfram þökk-
E.Vi
Þér finnst þú sennilega hafa þurft að bíða lengi eftir
svari, þegar draumurinn þinn birtist og ekki sízt vegna
þess, að sennilega er hann nú löngu kominn fram.
Þessi draumur er greinilega fyrir einhverju, sem þið
systurnar upplifið í sameiningu og okkur þykir
trúlegast, að þið vinnið saman í sumar og standið ykk-
ur vel!
SKÍRN í KVIKMYNDAHÚSI.
Kæri draumráðandi!
Ég ætla að biðja þig að ráða fyrir mig draum, sem
mig dreymdi fyrir stuttu og hann er svona: Ég var
stödd í kvikmyndahúsi og ætlaði að fara að horfa á
kvikmyndasýningu. Áður en sýningin hófst, átti að
skíra barn, sem ég átti. Það var strákur, klæddur í
hvítan skírnarkjól. Ég fór með bgrnið inn í klefann þar
sem aðgöngumiðarnir eru seldir og þar var hann skírð-
ur. Þó var engu vatn'upusið á höfuðið á honum. Hann
var dökkhærður með brún augu og dökkur á hörund.
Þegar búið var að skira barnið, retti ég vinkonu
minni það en hún atti lika krakka þarna. Ég fór svo inn
í áhorfendasalinn til þessað ná mér í sæti. Þá kallar á
mig strákur og bíður mér sæti hjá sér og þessi strákur
er með brún augu og dökkur á hörund. Ég þekki
þennan strák. Hann er með mér í bekk i skólanum og
við höfum alltaf verið hálfgerðir óvinir. Ég sezt hjá
honum og hann fer að reyna eitthvað mig og ég tók því
ekkert illa. Annars hef eg alltaf verið svolítið feimin
við stráka.
Kæri draumráðandi. Viltu vera svo góður að ráða
þennan draum fyrir mig. Ég hef einu sinni skrifað þér'
áður, en þá var draumnum mínum ekki sinnt.
Vertu blessaður.
Ein að norðan.
Böl er að þá barn dreymir nema sveinbarn sé og
sjálfur eigi. Þannig réðu formæður og forfeður þá
drauma, sem börn komu fyrir í og ætti. þvi að vera
óhættað spá þér öllu góðu í framtíðinni. Okkur líkar þó
ekki alls kostar sá gifurlegi áhugi sem þú hafðir á
kvikmyndum í draumnum og teljum það tákna að
einhverjartafir verði á því að þú náir settu marki.