Vikan - 16.05.1974, Blaðsíða 9
;-.j' • ' -.v ■ v- « -
***.*>•
-vA'.-JÁj 'áSfi £$ í$;4&!í
ens Weed, heimspekistúdents i
Berkeley. Unnusta Weeds, Patty
Hearst, vár stödd hjá honum.
Þegar Weed opnaði dyrnar, stóð
úti fyrir ung, hvit kona, sem bað
um að fá að nota simann hjá hon-
um. Hún sagði, að billinn sinn
hefði bilað. Allt i einu stóðu tveir
þeldökkir menn i dyrunum. Þeir
slógu Weed i rot og réðust inn i
húsið og höfðú Patty nauðuga á
brott með sér. Peter Beneson, ná-
granni Weeds, kom aðvifandi, en
negrarnir slógu hann einnig nið-
ur og földu hann i bil hans sjálfs.
Patriciu var hrint inn i annan bil.
Fleiri i nágrenninu urðu varir
við ránið og þyrptust út i glugga.
En þeir hörfuðu þegar undan,
þegar ræningjarnir hófu skothrið.
Enginn særðist, en ræningjarnir
komust undan. Skömmu seinna
fannst Beneson i bil sinum. Lög-
reglunni var þegar tilkynnt um
ránið og allar mögulegar ráðstaf-
anir voru gerðar til að hafa uppi á
ræningjunum, en allt kom fyrir
ekki, enda óttaðist lögreglan, að
ræningjarnir myndu myrða
Patriciu, ef of nærri þeim yrði
gengið.
Randolph Hearst og Catherine
kona hans hafa enn von um að fá
dóttur sina aftur heila á húfi.
Ræningjarnir létu ekki heyra i sér
fyrr en þremur dögum eftir að
ránið var framið. 1 bréfi, sem
merkt var með sjöhöfða kobra-
slöngu, var tilkynnt, að skipunin
um.að handtaka Patriciu Hearst
hefði verið framkvæmd. Enn var
ekki minnzt á lausnargjaldið. Sið-
asta setning bréfsins var á þessa
leið: „Endalok fasistiskra óþrifa,
sem þrúga lif fólksins”. Siðan
segulbandið barst til Berkeley
berjast vonin og óttinn um i
brjóstum aðstandenda Patriciu.
Vonin, vegna þess að hún sagðist
vera við beztu heilsu, en óttinn
vegna þess, að hún sagði að ræn-
ingjarnir myndu hiklaust taka sig
af lifi, ef þeim byði svo við að
horfa.
En Hearst á i erfiðleikum með
að greiða lausnargjaldið, ekki
vegna þess, að hann hafi ekki
fjármagn til þess, heldur vegna
þess að margir þurfalinganna i
Kaliforniu vilja ógjarnan þiggja
hjálp, sem veitt er á þennan hátt.
En hann hefur sýnt mikla við-
leitni til að veita fátækum alla þá
aðstoð, sem hann hefur i té látið.
En enn hefur allt komið fyrir
Þessi mynd af Patriciu og Stev-
en Weed unnusta hennar var tek-
in tveimur dögum, áður eh Patr-
iciu var rænt.
VIKAN 9