Vikan - 16.05.1974, Blaðsíða 20
5
GUÐMUNDA HULDA
JÓHANNESDÓTTIR
Vorstiilka
Vikunnar
í Evuklaoóuffl
Fyrstu verðlaun: Mallorkaferö meö SUNNU.
Svartur flúnelfóöraftur frakki, víöur i bakiö,
frá DRANELLA.
2.
Gamaldags bómullarblússa meö belti frá
SOS og IB. Blússunni fylgir taska úr sama
efni meö tréhöldum. Bláu gaberdine buxurn-
ar eru frá IN WEAR.
3. >.
Gallabuxur, baggvsniö frá IN WEAR. Blá-
og hvitröndóttur velourbolurmeö rennilás frá
SÖS og IB.
4.
Sftt bómullarpils, beige skyrtublússa og
brúnn velourjakki meö rennilás, allt frá SÖS
og 1“
eva
Guömunda Hulda Jóhannesdóttir er 18 ára,
dóttir Huldu Magnúsdóttur og Jóhannesar
Bjarnasonar. Hún býr á Seljavegi 11 i
Reykjavik.
Guðmunda tók gagnfræðapróf frá verzlun-
ardeild Hagaskóla og vann siðan við gölunar-
vélar hjá StS og Loftleiðum þar til i haust,
aö hún gerði áhugamál sitt, ballettdans, aö
aðalstarfi. Nú er hún ein átta stúlkna i ts-
lenzka dansflokknum.
,,Ég byrjaði að læra ballett, þegar ég var 10
ára, og siðan hef ég þráð að geta alveg helgað
mig dansinum”, segir Guðmunda.
.Hvernig er að vera atvinnuballettdans-
ari?”
„Það er skemmtilegt en ógurlega erfitt.
Við byrjum alltaf klukkan 2 á daginn og æf-
um til fimm. Siðan er hlé á æfingum frá 5—7,
en þá erum við oft að kenna smávegis i ball-
ettskóla Þjóðleikhússins, þvi stjórnandi okk-
ar, Alan Carter, leggur mikla áherzlu á að
við þjálfumst einnig i kennslu. Klukkan rúm-
lega 7 byrjum við aftur og æfum til hálf niu
eða niu og oft lengur, fram til 10 eða 11. Mað-
ur er lika alveg uppgefinn, þegar heim kem-
ur”.
„Hvilirðu þig alveg á morgnana?”
„Já og veitir ekki af. Fyrst i haust eftir að
ég byrjaði i dansflokknum vann ég smávegis
fyrir hádegi, en gafst alveg upp á þvi. Þegar
maður er i svona löguðu þýðir ekki að ætla að
reyna að sinna einhverju öðru. Ballettinn
verður bæði vinna og tómstundagaman — og
heimili þýðir ekki að ætla að hugsa um, enda
erum við allar ólofaðar”.
Guðmunda gerir ráð fyrir aö flokkurinn fái
tveggja mánaða sumarfri og þá langar hana
mikið til að reyna að skreppa utan — á ball-
ettnámskeið.
20 VIKAN