Vikan


Vikan - 16.05.1974, Blaðsíða 18

Vikan - 16.05.1974, Blaðsíða 18
MIM m:\iT\ Látið prenta alls konar aðgöngumiða, kontrolnúmer, afgreiðslumiða og fleira á rúllupappír. Eina prentsmiðj- an á landinu, sem prentar slíka miða. Höfum einnig fyrirliggjandi og útveg- um með stuttum fyrirvara ýmiss konar afgreiðslubox. LEITIÐ UPPLÝSINGA Hilmir hf. SÍÐUMÚLA 12 - SÍMI 35320 Thim áður og þess vegna fórum viö aftur til Bangkok. t Bangkok var mér sagt, að mjög langan tima tæki fyrir út- lendinga að fá skilnað, svo að ég gafst upp og fór heim. Seinna hefur komið i ljós, að Thim kom á hótelið sama kvöld og komst þá að raun um, að mað- ur hennar var þar ekki. Hóteleig- andinn neitaði henni um að búa i herberginu og enn einu sinni var hUn þess fullviss, að Kjell hefði svikið sig, svo að hUn átti ekki annars úrkosta en fara enn einu sinni heim til foreldra sinna. Eftir dálitinn tima í Sviþjóð, fékk ég bréf frá Thim, segir Kjell. — HUn bað mig fyrirgefningar og sagði, að hvað sem á dyndi, væri hún eiginkona min. Ef ég vildi hana, skyldi hún koma til Svi- þjóðar. NU vissi ég ekki almennilega hvað ég átti að gera. En svo tók ég ákvörðun — ég varð að sækja Thim. Þrátt fyrir allt vorum við gift. Fyrir hálfu ári flaug Kjell enn einu sinni til Thailands. Kunn- ingjar hans hlógu i kampinn.’ Kjell hafðt snúið sér til blaðanna og sagt frá þessu ástarævintýri sinu, þegar hann þurfti að fá bréf- ið frá Thim þýtt. Enginn hafði trú á þvi. að þetta gæti farið vel. En i þetta sinn gekk allt vel. Kjeil sleppti aldrei augunum af Thim sinni Viku seinna var hann kominn heim og flutti thailenzku konuna sina inn i ibúð sina i Bar- slös. Thim kann vel við sig þar. Svi- þjóð er henni paradis og stúlkurn- ar heima hjá henni eru vanar að láta sig dreyma um Skandinava. Kjell segist kunna húsbóndahlut- verkinu einkar vel. Thim gerir allt, sem hann segir henni. Hann þarf ekki nema minnast á þaö. — Ég er ekki fyrr kominn inn úr dyrunum, en hún stendur frammi fyrir mér. reiðubúin að verða viö öllum óskum minum. Þegar ég fer i bað, ber hún á mig sápuna og skrúbbar á mér bakið. Hún býr til dásamlegan mat. Hún jagast aldrei og segir aldrei styggðaryrði. Það er alltaf ég, sem tek ákvarðanirnar, þó að ég spyrji hana að sjálfsögðu álits. En hún svarar alltaf, að hún vilji hafa allt eins og ég vil hafa það. Og þannig verður það alltaf. Henni dytti aldrei i hug að iara ein út á kvöldin, þegar ég er að vinna. Hún veit, að hennar staður er á heimilinu, viö hliðina á mér. Þannig hefur hún verið alin upp. Þetta hjónaband hefur oröið mér m jög dýrt fjárhagslega, ef ég legg öll útgjöldin saman. En Thim er þess virði, hvers einasta eyris. Ég veit aö hún fer aldrei frá mér. Ég hef það eins gott og hægt er aö hafa þaö og þarf ekki aö bera kviðboga fyrir framtiðinni. Nú er Thim að læra ensku. Henni hefur dottið i hug, að með timanum geti hún kannski farið að vinna úti. — En ég veit ekki, hvei nig ég bregzt við þeirri mála- leiia. , segir Kjell. — Ég er ekki búinn að ákveða það ennþá. Kjell Bladh hlýtur að vera ein- stakur eiginhagsmunaseggur. Hann hefur ekki minnst einu orði á ást. Hann vill hafa undirgefna þvottakonu á heimili sinu, þokka- lega ástmey og góða húsmóður. Hann var tilbúinn að giftast hvaða konu sem var. aðeins ef hún uppfyllti þessi skiíyrði. Já, saga hans segir þetta reyndar sjálf. En Kjell sjálfum finnst hann ekki vera neinn gikkur. Hann hefur tekið fátæka stúlku úr fá- tæku landi upp á arma sina og farið með hana til velferðarrikis- ins Sviþjóðar. — Ég hef þekkt margar konur og oft og mörgum sinnum verið ástfanginn. en engin kona, sem ég hef kynnzt, kemst i hálfkvisti við Thim, segir Kjell. —■ Við erum mjög hamingjusöm. Mér verður aldrei hugsað um aðrar konur. Auk þess veitir það mér mikiö sjálfsöryggi að eiga svona fallega konu. Aðrir karlmenn tútna út af öfund, þegar þeir sjá hana. og það kann ég vel aö meta. Thim hefur engan samanburö. Hún hafði aldrei verið við karl- mann kennd, þegar Kjell kom eins og stormsveipur inn i lif hennar. Hún haföi ekki efni á aö afþakka tilboð hans. Þegar for- eldrar hpnnar þar á.oian gáfu já- yrði sitt og fengu þokkalega borg- aö fyrir hana, átti hún ekki ann- arra kosta völ. en giftast Kjell og þar meö var málið afgreitt og út- rætt i eitt skipti fyrir öll. Og sjálfri finnst henni hún. hafa verið heppin. 18 VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.