Vikan


Vikan - 16.05.1974, Page 16

Vikan - 16.05.1974, Page 16
FY Thailenzkar stúlkur fá mjög strangt uppeldi. Þæt fá aldrei aö fara á dansleik eða út með pilt- um. Á kvöldin veröa þær að halda sigheima. Framtið stúlknanna er ákveðin af foreldrunum. Þær eru aldar upp með það fyrir augum, að þær verði góðar eiginkonur, en samkvæmt thailenzkri hefð jafn- gildir það ambáttarstandi. Foreldrarnir velja þeim eigin- mann og viö valið skipta pening- arnir mestu máli. Maður, sem vill kvænast thailenzkri stúlku, verð- ur að kaupa hana af foreldrum hennar. Lagleg dóttir, sem er eft- irsótt á hjúskaparmarkaðinum, er öruggur fjárhagslegur ábati. Það er hræðilegt áfall, ef hún eignast karlmann aö vini, án þess að vera gift honum. Þá er hún orðin verðlaus á hjónabands- markaðinum og á ekki annað fyrir höndum en aö veröa annaö hvort barstúlka eða vændiskona. Svo segir sænski vörubilstjór inn, Kjell Bladh i Barslös utan við Helsingfors, frá, og hann veit hvað hann er að segja, þvi að hann kynntist ástandinu náið, þegar hann fór til Thailands þeirra erinda aö finna sér eigin- konu. — Thailenzkri stúlku kæmi aldrei til hugar aö andmæla manni sínum. Eina kappsmál hennar, er að gera honum lifið eins þægilegt og hún framast get- ur. Hún er stórkostleg eiginkona, frábær húsmóðir og góð ástkona. Hvers meira er hægt að krefjast? Fái hún hug á ákveönum manni — og það getur komið fyrir — og for- eldrarnir samþykki tilboð mannsins og’ leggi blessun sína yfir ráðahaginn dettur henni aldrei svo mikið sem I hug að 16 VIKAN fara frá honum. Þó að ég til að mynda vinni mikið á kvöldin, fer Thim min aldrei ut. Hún situr heima og biður min og tekur mér opnum örmum, þega'r ég kem. Hún er aldrei þreytt og jagast aldrei. fig fæ svo sannarlega að vera húsbóndi á minu heimili og thailenzkar konur lita alltaf upp til manna sinna. Að þvi er ég bezt fæ séð, er að- eins einn galli á thailenzkum kon- um sem eiginkonu. Þær eru mjög afbrýðisamar. Ég þarf ekki nema renna augum á aðra konu. En af hverju ætti ég að vera að þvi? Ég gæti ekki fengið betri konu. Sænskar konur gera ekki annaö en heimta. Þær vilja alltaf fá að vera sjálfstæöar. Sé eiginmaður- inn að heiman á kvöldin, verða þær reiðar og fara jafnvel út sjálfar. Svoleiöis konum er ekki hægt að treysta. Ef á að fram- kvæma eitthvað, verður að ræða það dögum saman. Kjell Bladh er alls óragur við að segja frá hjónabandi sinu, þó að rauösokkarnir nái sjálfsagt ekki uþpT nefið á ser, þegar þeir lesa frásögn hans. Kjell er 28 ára og hefur þrisvar verið trúlofaöur. Hann hefur ver- iö lofaður tveimur sænskum stúlkum.og einni tékkneskri. Nú er hann kvæntur thailenzkri KONA 2000 SÆN KRÓN

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.