Vikan - 16.05.1974, Page 29
lands. Peysur á alla fjölskylduna
frá prjónastofunum Iðunni, önnu
Þórðardóttur, Dyngju, Peysunni og
Heklu. Herrafot frá JMJ og fleir-
um, dömubuxnasett f rá L.H. Muller
og verksmiðjunni Dúk. Mokka-
skinnkápur og jakkar frá Heklu á
bæði dömur og herra. Einnig mátti
sjá hálsbindi frá Lexa og skó frá
Iðunni, Akureyri og Agilu, Egils-
stöðum. Kaupstefnan stóð í fjóra
daga og hvern dag var haldin tízku-
sýning á helzta úrvalinu. Það var
ungt, þaulæft fólk undir stjórn Pá-
línuJónmundsdóttur, sem sýndi
f atnaðinn og gátu kaupmenn þá séð,
hvernig fötin taka sig út. Það er
auðséð, að framleiðendur leggja
mikið uppúr því, að vanda fram-
leiðslu sína og fyrirleitt hef ur þeim
farið mjög fram hvað gott snið
varðar. Herrafötin eru í toppklassa
og dömufatnaðurinn, sérstaklega
síðbuxur og frakkar með klassísku
sniði, eins og rykfrakkar eða
mokkaskinnkápur er fullkomlega
samkeppnisfær erlendri fram-
leiðslu. Peysur eru í miklu úrvali og
. náttföt og kjólar eru nú með sérlega
léttu og skemmtilegu yfirbragði.
Hér eru nokkrar teikningar sem ég
. gerði eftir eina tízkusýninguna og
eru af náttkjólum, kápu, jakka og
peysum.
EVA
VILHELMS-
DÓTTIR
RISSAR
UfP VOR•
TIZKUNA
VIKAN 29
eva